Morgunblaðið - 25.03.2001, Page 25
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. MARS 2001 B 25
Rauði kross Íslands
auglýsir eftir
umsóknum um styrki
úr Minningarsjóði
Sveins Björnssonar
Mannréttinda- og mannúðarmál eru hornsteinar í starfi
Alþjóðahreyfingar Rauða krossins og Rauða hálfmánans.
Rauði kross Íslands stofnaði Minningarsjóð Sveins
Björnssonar, fyrsta forseta lýðveldisins og fyrsta formanns
Rauða kross Íslands, í tilefni af 70 ára afmæli félagsins
árið 1994.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja rannsóknir á mannréttinda-
og mannúðarsamningum og framkvæmd þeirra, sem og
rannsóknir og starfsemi sem stuðla að þekkingu og þróun á
mannréttinda- og mannúðarmálum.
Í skipulagsskrá sjóðsins er gert ráð fyrir að einstaklingar
gangi að jafnaði fyrir stofnunum um styrki ef umsóknir
þeirra teljast sambærilegar.
Til úthlutunar eru u.þ.b. tvær milljónir króna og fer
úthlutun fram á alþjóðadegi Rauða krossins, 8. maí.
Umsóknarfrestur er til 20. apríl nk.
Umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur sjóðsins fást á
skrifstofu Rauða kross Íslands að Efstaleiti 9 í Reykjavík.
Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Snævarr, sími 570 4000,
netfang: inga@redcross.is.
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
VEL á annað þúsund nemendur í
27 grunnskólum í Reykjavík tóku
þátt í Stóru upplestrarkeppninni
sem er að ljúka. Alls voru upples-
ararnir 1414 úr 62 bekkjardeildum
í 7. bekk. Keppnin hefst ár hvert á
degi íslenskrar tungu, 16. nóvem-
ber, og lýkur í mars með því að
valdir eru þrír bestu upplesarar í
hverju byggðarlagi, eða umdæmi
hverrar skólaskrifstofu.
Hápunktur keppninnar er menn-
ingardagskrá lokahátíða sem
haldnar eru á fjórum stöðum í
Reykjavík. Þar fá gestir notið bók-
mennta og tónlistar í flutningi
nemenda í fallegu umhverfi. Nem-
endur lesa bundið og óbundið mál,
sumt að eigin vali. Veitt eru bóka-
verðlaun og peningaverðlaun sem í
þetta sinn eru frá sparisjóðunum.
Lokahátíðir hverfanna eru
haldnar í fjórum kirkjum í borginni
á tímabilinu 19.- 29. mars: Aust-
urbær: Bústaðakirkja þriðjudaginn
27. mars, kl. 15, verðlaunaaf-
hending: Guðrún Helgadóttir, rit-
höfundur, Grafarvogur: Grafar-
vogskirkja, fimmtudaginn 22.
mars, kl. 16.30, verðlaunaafhend-
ing: Ingibjörg S. Gísladóttir, borg-
arstjóri. Árbær/Breiðholt: Breið-
holtskirkja, fimmtudaginn 29.
mars, kl. 15, verðalaunaafhending
Sigrún Magnúsdóttir formaður
fræðsluráðs.
Aðstandendur keppninnar eru
sem fyrr Heimili og skóli, Íslensk
málnefnd, Íslenska lestrarfélagið,
Kennaraháskóli Íslands, Kennara-
samband Íslands og Samtök móð-
urmálskennara. Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur hefur umsjón með
keppninni í Reykjavík.
Stóra upplestrarkeppnin
Nærri 15 hundruð
ungir upplesarar
M. ALLYSON Macdonald, for-
stöðumaður Rannsóknarstofnunar
KHÍ, heldur fyrirlestur á vegum
stofnunarinnar næstkomandi
þriðjudag, 27. mars kl. 16.15. Fyr-
irlesturinn verður haldinn í stofu M
201 í aðalbyggingu Kennaraháskóla
Íslands við Stakkahlíð og með fjar-
fundabúnaði í Menntaskólanum á
Ísafirði. Fyrirlesturinn er öllum op-
inn.
Í fyrirlestrinum verður sjónum
beint að nokkrum grundvallarhug-
myndum í kennslufræði, svo sem
áhugahvöt, námsárangri, samskipt-
um og skilningi. Umfjöllunin byggir
á reynslu af nokkrum námskeiðum
sem haldin voru árin 1998–2000.
Þátttakendur námskeiðanna voru
flestir starfandi kennarar á öllum
skólastigum. Ákvarðanataka kenn-
ara verður skoðuð og sérstaklega
fjallað um ábyrgð og íhugun út frá
fagmennsku, siðfræði og niðurstöð-
um nokkurra rannsókna. Sagt verð-
ur frá stofnun og samtökum sem
hafa beitt sér fyrir kennslu sem
fagstarfi á grunn-, framhalds- og
háskólastigi. Að lokum verður varp-
að fram nokkrum spurningum til
umræðu um þróun kennslu.
Hvað ligg-
ur á bak við
ákvarðanir
kennara?
Frá Rannsóknar-
stofnun KHÍ
THAI-Chi-kennarinn Khinthisa er
væntanleg til landsins og heldur
námskeið fyrir byrjendur og lengra
komna í húsi Styrktarfélags lamaðra
og fatlaðra, Háaleitisbraut 11-13,
dagana 28. mars til 1. apríl.
Khinthisa er ættuð frá Burma og
hefur kennt Thai-Chi í yfir tvo ára-
tugi víðs vegar í heiminum. Megin-
áhersla er lögð á hið einfalda grunn-
kerfi meistara Chen Ziaowang sem
hann kennir við Silkiorminn. Auk
þessa kennir Khinthisa 19 skrefa
Chen og í fyrsta sinn býður hún upp
á kennslu í sverða-Thai-Chi (sabre)
sem verður 1. apríl.
Námskeiðsgjald fyrir 19 kennslu-
stundir er 19.000 kr. Nánari upplýs-
ingar veitir Guðný Helgadóttir.
Námskeiðið hefst kl. 18 miðvikudag-
inn 28. mars.
Námskeið í
Thai-Chi-
leikfimi
♦ ♦ ♦
M O N S O O N
M A K E U P
lifandi litir