Morgunblaðið - 07.12.2001, Side 23
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2001 23
NÓTASKIPIÐ Júpiter ÞH frá Þórshöfn
fékk um 200 tonn af loðnu við Kolbeinsey í
gær og er þetta fyrsta loðnan sem berst á
land á vetrarvertíðinni. Jón Axelsson skip-
stjóri segist bjartsýnn á góða veiði á næstu
vikum.
Loðnan veiddist um 35 sjómílur norð-
austur af Kolbeinsey í svokölluðu „Viki“ en
að sögn Jóns Axelssonar skipstjóra er það
yfirleitt góðs viti þegar loðnan kemur
þangað. Loðnan er þokkalega góð og fer
líklega meiri hluti aflans beint í frystingu
sem þá þýðir aukna vinnu í landi og mark-
aðsútlit er gott fyrir afurðirnar. Júpíter
ber um 1.200 tonn en rafall bilaði í þriðja
kastinu svo skipstjórinn varð að sigla í land
með þessi 200 tonn sem komin voru. „Loðn-
an hefur oft gefið sig á þessum slóðum áð-
ur og okkur þykir best að byrja vertíðina
þarna. Við sáum töluvert af loðnu, í nokkuð
þykkum torfum á 30 til 40 faðma dýpi. Ég
held að fyrst að loðnan er komin á þessar
slóðir sé það vísbending um góða veiði
áfram. Við fórum ekki yfir stórt svæði en
það er oft loðna nokkru vestar en þar sem
við vorum. Það hefur verið mikið magn af
loðnu allt frá Kolbeinsey og vestur fyrir
Hala og hún er nú vonandi að ganga upp á
Kolbeinseyjarhrygginn. Þar að auki er hita-
stig sjávar á bilinu ein til tvær gráður með-
fram öllum landgrunnskantinum, austur að
Þistilfjarðargrunni. Það er kjörhitastig fyr-
ir loðnuna sem enn frekar ætti að gefa fyr-
irheit um góða veiði,“ sagði Jón skipstjóri.
Fékk 200 tonn af
loðnu við Kolbeinsey
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Jón Axelsson, skipstjóri á Júpiter, landaði um 200 tonnum af loðnu á Þórshöfn í gær.
Nótaskipið Júpiter ÞH frá Þórshöfn
með fyrsta afla vetrarvertíðarinnar
ÍSLANDSSÍMI hefur gefið út útboðs- og
skráningarlýsingu vegna forgangsréttarút-
boðs félagsins sem fram fer dagana 10.-13.
desember nk. Í útboðinu er til sölu nýtt
hlutafé að nafnverði 410.090.648 kr. í sam-
ræmi við samþykkt hluthafafundar félagsins
18. október 2001. Sölugengi er nafnverð
hlutafjár eða 1,0. Hluthafar í Íslandssíma
samkvæmt hlutaskrá félagsins í lok dags 10.
október sl. eiga rétt á að taka þátt í útboð-
inu.
Stærstu hluthafar miðað við þessa dag-
setningu eru Landsbankinn – Fjárfesting hf.
með 16,71% hlut, Frumkvöðull ehf. með 16%
hlut og 3p fjárhús ehf. með 10,87% hlut.
Eignarhlutar þessara aðila voru þeir sömu
26. nóvember sl. en fjórði stærsti hluthafinn
var orðinn Íslandsbanki með 7,49% miðað við
5% 10. október.
MP Verðbréf hafa umsjón með útboðinu
og milligöngu um skráningu hlutafjáraukn-
ingarinnar á Aðallista Verðbréfaþings Ís-
lands. Í maí sl. var haldið almennt útboð á
bréfum Íslandssíma og bréf félagsins í kjöl-
farið skráð á Aðallista VÞÍ. Þá var einnig
gefin út útboðs- og skráningarlýsing og í lýs-
ingunni sem gefin var út í gær, eru hluthafar
hvattir til að kynna sér fyrri lýsinguna þar
sem þar komi fram ítarlegri upplýsingar.
Möguleiki á að jafna meðalkaupgengið
Tilgangur hlutafjáraukningarinnar nú er
að veita þeim hluthöfum Íslandssíma sem
keyptu hlut í félaginu á árinu 2000 eða síðar
möguleika á að jafna meðalkaupgengi eign-
arhluta sinna í félaginu, að því er fram kem-
ur í frétt frá Íslandssíma.
Forgangsréttarhöfum gefst kostur á að
falla formlega frá forgangsrétti en fá í stað-
inn áskriftarréttindi að hlutum í félaginu á
genginu 4,5 til 18 mánaða frá og með 18.
október 2001 að sömu nafnverðsfjárhæð sem
kann þó að skerðast.
Nafnverð áður útgefinna hlutabréfa Ís-
landssíma hf. er 587.995.000 kr. en verður
allt að 998.085.648 kr. eftir útboðið sem er
allt að 69,74% aukning. Fyrirhugað er að til
framkvæmda komi á næstunni heimild
stjórnar Íslandssíma til að hækka hlutafé fé-
lagsins um allt að 28 milljónir til greiðslu fyr-
ir hlutabréf í fjarskiptafélaginu Títan hf.
Heildarhlutafé félagsins fer því eftir þá
aukningu yfir einn milljarð, að því er fram
kemur í útboðs- og skráningarlýsingunni.
Eigin bréf keypt og seld
Íslandssími greindi einnig frá því að nú
ætti félagið engin eigin bréf. Hinn 8.október
sl. hefði félagið keypt eigin bréf að nafnverði
kr. 13.913.342 á verðinu kr. 3,40 og eftir
kaupin hefði Íslandssími átt eigin bréf fyrir
kr. 15.452.036 að nafnverði. Um var að ræða
framvirkan samning með gjalddaga 28. des-
ember nk. Samkvæmt tilkynningu félagsins
til Verðbréfaþings Íslands var ekki hægt að
greina frá viðskiptunum fyrr vegna við-
kvæmrar samningsstöðu félagsins, en bréfin
verða notuð til uppgjörs við Nýherja og
Landsbankann – Framtak vegna kaupa á
Fjarskiptafélaginu Títan.
Íslandssími hefur einnig selt eigin bréf að
sama nafnverði, þar sem um var að ræða
skipti á hlutabréfum. Fyrir hvert bréf í Ís-
landssíma kemur 1,57 bréf í Títan. Um er að
ræða framvirkan samning með gjalddaga 28.
desember 2001.
Forgangsréttar-
útboð Íslands-
síma í næstu viku