Vísir - 17.02.1981, Qupperneq 5
Geimskutlan
á lokastigí
Bandariskir geimferðasér-
fræðingar sjá nú fram á lokin á
smiði geimskutlunnar. Siðar i
vikunni munu þeir gera einhverj-
ar siðustu og mikilvægustu
tilraunirnar með geimferjuna..
Eftir tvo og hálfan dag verða
allir þrir hreyflar skutlunnar
ræstir og knúnir til sins ýtrasta (i
20 sekúndur), en siðan látnir
ganga með 60% aflnýtingu.
Undirbúningurinn hófst i gær-
kvöldi og er honum i öllu hagað
eins og þegar geimförum er fyrir
alvöru skotið á loft út i geiminn.
Þetta verður i fyrsta sinn sem
allir hreyflarnir þrir verða sam-
tengdir.
Skutlan stendur á skotpalli sin-
um (nr. 39) i Kennedygeim-
stöðinni á Canaveral-höfða i
Flörida. Þaðan er ætlunin að
senda hana i sina fyrstu geimferð
um miðjan april.
Auk lokatilrauna á hrevflinum
<---------------
verður um leið prófaður hinn nýi
tölvubúnaður og mælakost'ur
skutlunnar. Er sá búnaður allur
nýr, og hefur ekki áður verið
reyndur i geimferðum.
Geimskultluáætlunin hefur orö-
ið fyrir miklum og mörgum
seinkunum. Er hún orðin tveim
árum á eftir upphaflegri áætlun,
og hefur reynst þrem milljörðum
dollara dýrari en gert haföi veriö
ráð fyrir. Kostnaður af smiði
hennar nemur þvi orðið um átta
milljörðum dollara.
Geimskutluáfanginn er eina
ge im f erðaá æ tlunin , sem
Bandarikin hafa á prjónunum
fram til næstu aldamóta. Er i ráði
aösmiða f jórar eða fimm skutlur,
sem verða i ferðum með geim-
fara og tækjakost milli jarðar og
geimstöðva á brautu umhverfis
jörðu. Upp úr 1985 ættu skutlur
samkvæmt áætlunum aö vera i
förum á hálfsmánaðar fresti.
Fyrsta bandariska geimskutlan heitir „Columbia”og á neðri myndinni
hér að ofan sést hiín i flutningi á út i Kennedy-geimstöðina á
Canaveral-höfða, en á efri myndinni sést hdn á þaki stærri þotu á fyrra
tilraunastigi
Stjórniagabreytingar í Kanada
Umræður hefjast i dag i
kanadiska sambandsþinginu um
fyrirhugaðar breytingar Ottawa-
stjórnarinnar á stjórnarskrá
landsins. — Stjórnir sex af tiu
rikjum Kanada eru. þessum
stjórnlagabreytingum andvigar.
Það er þvi búist við harðri
rimmu á þingfundum og naumast
von á, að önnur mál komist mikið
að i umræðum næstu vikurnar.
Nema gripið verði til þess að
takmarka ræðutima þingmanna.
Sambandsstjórnin, með þing-
meirihluta Frjálslynda flokksins
á bak við sig, þykir nokkuð örugg
um að koma stjórnlagabreyting-
unum fram. Enda nýtur hún i
málinu einnig stuðnings Nýja
lýðveldisflokksins.
Um er að ræða tillögu, sem fel-
ur i sér, að Bretland verði beðið
um að senda „breska
Norður-Amerikusáttmálann”
vestur um haf, en út frá honum
eru stjórnlög Kanadamanna
reist. Stendur til að gera á honum
þær breytingar sem veita Kanada
fullt forræði yfir stjórnarskrá
sinni.
Það eru breytingarnar, sem
hinar einstöku stjórnir sex af tiu
rikjum Kanada setja sig upp á
móti. Telja þau breytingarnar
leiða til meiri miðstýringar Ott-
awa-stjórnarinnar, sem dragi úr
sjálfstjórn rikjanna. Þessar
breytingarhugmyndir vöknuðu,
þegar einstök riki risu upp gegn
aukinni sköttun Ottawastjórnar-
innar á oliuframleiðslu þeirra.
Pálinn í Nlanila
Enskir kolanámumenn
í verkfallshug
Kolanámumenn i Suður-Wales
ákváðu að hefja verkfall i dag til
að mótmæla áætlun stjórnvalda
um lokun nokkurra náma, óhag-
kvæmra i rekstri.
26 þúsund velskir námamenn
greiddu þvi atkvæði i gær að
leggja niður störf við allar 34
námurnar i S-Wales, uns stjórn-
völd hyrfu frá áætlunum um
lokun á 50 námum hér og þar um
landið. — Virtu þeir að vettugi til-
mæli rikisstjórnarinnar um við-
ræður milli kolanámumanna og
námaráðsins.
Aætlun stjórnarinnar um
námalokunina gæti þýtt atvinnu-
missi 30 þúsund manna.
Joe Gormley, forseti landsam-
taka námamanna, skoraði á
Walesmenn að hinkra við, svo að
- ekki rofnaði samstaða innan
samtakanna. Hefur hann boðað
til fundar á fimmtudag til at-
kvæðagreiðslu um allherjarverk-
fall meðal 230 þúsund náma-
manna landsins.
Rifjast upp fyrir mönnum, að
verkföll kplanámamanna vetur-
inn ’73—'74 átti drjúgan þátt i falli
siðustu rikisstjórnar Ihalds-
flokksins undir forystu Edwards
Heath.
Um ein milljón dansandi
Filippseyinga, veifandi fánum,
veitti Jóhannesi Páli páfa
hjartanlegar móttökur, þegar
hann kom til Manila i gær frá
Karachi i Pakistan.
Manila er annar viðkomustaður
páfa á tólf daga ferðalagi um
austurlönd fjær.
1 dómkirkju Manila ávarpaði
páfinn nunnuhóp og sagði þeim,
að þær skyldu fylgja dyggilega
boðum kirkjunnar og biskupa
sinna. Þótti páfi þar vikja nærri
nunnum, sem i andstöðu viö
rikisstjórn Filippseyja hafa yfir-
gefiö klausturreglur sinar til þess
að lifa meðal fátækra.
I ávarpi hjá bræðrareglum i
dómkirkju Manila kvaö páfinn
jafnvel enn fastar aö oröi: „Þið
eruð ekki félagsmálamenn eöa
stjórnmálaleiðtogar....’” og
varaði hann þá við þvi að láta
áhugann fyrir vandamálum
liöandi stundar hlaupa með sig i
gönur.
En páfinn sagði, aö kirkjan gæti
ekki verið sinnulaus fyrir
samfélagsvandamálum og hvatti
kirkjunnar fólk til aö halda áfram
i heiðri manngildi og réttindi, eins
og kirkjan túlkar þau.
Samdrátlur enn
I bílasöiu USA
Sala bandariskra bila á heima-
markaði dróst saman um 8% á
fyrstu tíu dögum febrúar. Tvö
fyrirtæki gátu þó greint frá sölu-
aukningu. Það var Ford Motor
Co. og Volkswagen i Ameríku.
Hjá Ford jókst salan um 26% en
hjá VW um 72,2%.
Vinnuslys i
Hongkong
Verkalýður i Hongkong er
frægur fyrir mikil afköst og sem
ódýrt vinnuafl en það virðist dýru
verði keypt samt. Aö minnsta
kosti virðist ekki of mikið lagt i
örvggi á vinnustööum.
110 létust af vinnuslysum þar i
fyrra, en alls slösuöust 46.138 (af
einnar milijón manna vinnuafii).
Segir það þó ails ekki alla söguna,
þvi að mikið er enn um ólöglega
iðnaðarstarfsemi i bakherbergj-
um og kjailaraholum, sem ekki
tiikynnir um vinnuslys.
Umhleyplngar I
Ukrainíu
og Rússlá
Frost og meiri snjóþyngsli eru
nú i Evrópuhluta Rússlands og
Úkrainu á nýjan leik eftir
fádæma þiðu um miðjan vetur.
Höfðu menn áhyggjur af vetrar-
hveitinu eftir tiu daga mildan
veðurkafla i byrjun febrúar. Slikt
veður er sjaldgæft I þessum
heimshluta (kannski þritugasta
hvert ár).
Sovéskir bændur treysta á snjó-
inn til þess aö einangra vetrar-
sáningu hveitis frá frostum og
hefur mikið legið við hjá þeim i
vetur, eftir lélegar uppskerur
undanfarinna ára.
Minna kiöi njá
Rússum
Óliklegt þykir, að Sovétmenn
fái staðið við áætlun sina um kjöt-
framleiðslu á þessu ári vegna
skorts á fóðri. Þvi veldur slælegri
uppskera siðustu tvö árin og
kornsölubann Bandarikjamanna
eftir innrásina i Afganistan.
Kjötframleiðsla Sovétmanna I
fyrra var 4% minni en árið 1979,
og var þá gripiö til þess aö flytja
inn kjöt og kjúklinga. Sá innflutn-
ingur verður að likindum aukinn
þetta árið.
Palsley rekinn
al blngi
Einum öfgamesta stjórnmála-
manni mótmælenda á Norður-
irlandi, Ian Paisley, var vikið af
breska þinginu isiðustu viku fyrir
að kaila Humprey Atkins,
irlandsmálaráöherra, „lygara”.
Atkins var aö svara fyrirspurn-
um i þinginu, en Paisley hélt þvi
fram, aö breskur varðflokkur
hefði setið að sumbli, þegar hann
átti að vera aö skyldustörfum, en
á meðan hafi tveir áhrifamenn
mótmælenda verið myrtir á varð-
svæðinu fyrir mánuði.
Atkins neitaði að svara áburöi
Paisley, um að reynt væri að
hylma yfir málið. Forseti neðri
málstofunnar visaði Paisley af
þingi í fimm daga.
Það er stutt sföan Paisley var I
fréttum, þegar hann lét 500 fylgis-
menn sina heima i kjördæmi sinu
marséra, veifandi byssuleyfum,
fyrir framan fréttamenn, og
sagðist hafa þúsundir slikra liðs-
manna reiðubúna að berjast gegn
samciningu N-lrlands og trska
lýðveldisins á S-trlandi. Paisley
heldur þvi fram, að i gangi séu
leyniviöræður, sem stefni að slik-
um samruna.