Vísir - 17.02.1981, Qupperneq 16
16
Þriðjudagur 17. febrúar 1981. '
yísm_
lesendur haía orölö
S.P. skrifar:
Á mannlifssiðu Visis á fimmtudaginn i siðustu
viku birtust nektarmyndir af karlmönnum, sem ég
hélt að væru hreinlega bannaðar, svo opinskáar
voru þær. Þar er talað um, að sjálfsagt sé að sýna
hina hliðina, en ég hef aldrei á þessum siðum séð
nakinn kvenmann, eða með svo fáa leppa um sig, að
bókstaflega skini i allt, eins og var á einni mynd á
siðunni.
Er ekki hægt að halda áfram með kvenfólkið, i
stað þess að vera að vaða inn á þessa vafasömu
braut?
Eg er viss um, að kvenfólkið hefur engan áhuga á
svona stripli, og þetta þjónar þvi eingöngu áhuga
einhverra manna með einkennilegan hugsunarhátt,
svo að vægt Sé til orða tekið.
Kvenfólk, sem komið hefur á siðunni, hefur flest
haft atvinnu af þvi að syna sig, en þeir karlmenn,
sem birtust á siðunni fæstir.
Þá birtist islensk nektarmynd af karlmanni við
heita lækinn svonefnda, en ég hef aldrei séð mynd af
kvenmanni þar,nemaniðri i vatninu. Þetta eru þvi
ekkertnemaofhvörf.stefnt gegn karlmönnum, sem
hafa siður en svo ánægju af að sýna likama sinn,
hvað þá að taka laun íyrir slikan asnaskap.
Sjálfur get ég skilið, að menn hafi gaman af þessu
stöku sinnum, en ég ræddi þetta við spilafélaga
mina, sem hvöttu mig eindregiö til þess að hripa
linur þessar og óska eftir þvi, að framvegis verði
slikar myndir af karlmönnum ekki birtar. Sýni-
kroppar kvenmanna eru hins vegar viðurkennd
söluvara um allan heim og ekki nema sjálfsagt að
við fáum að njóta þeirra, eftir framboðs- og eftir-
spurnarreglunni.
Bréfritari óskar ekki eftir þvi að fleiri slikar myndir
séu birtar.
„BIRTIÐ EKKI FLEIRI MYNDIR
AF NÖKTUM KARLMÖNNUM"
Skyldi þessi hafa lokað innkeyrslunni?
„Leikur Dann leik að
iestast í innkeyrslu”
Þreyttur ökumaður
hringdi:
Ég bý i Orrahólunum og likar
bærilega. En einn er þó galli á
gjiíf N jarðar, og hann má skrifa á
ibúa einn, sem erlitt er viö aö
eiga.
I fannferginu, sem lagst hefur á
okkur borgarbúa að undanförnu,
þarf þessi aumingja maður alltaf
ab veröa fyrstur til aö f esta bilinn
sinn i innkeyrslunni. Hann er á
sumardekkjunum, mjög slitnum,
þannig að honum rétt tekst að
komastúrstæði sinu, inn i þrönga
innkeyrsluna og þar stöövast
hann.
Ég færði þetta i tal við hann
þegar atvikið kom íyrir annan
daginn i röð, en hann skeytti engu
um orð min.
Ég er ekki sá maöur að kalla til
lögreglu, en ég ætlast til að hún sé
á verði gagnvart þeim sem enn
hafa ekki sett vetrardekk undir
bilana, og stunda þaö aö festast i
innkeyrslum.
F éggf* yfk; I
HAn ■BÍ
Minnklð ekkl sjón-
varpsefnl öarnanna
Stóra systir hringdi:
1 tilefni af þvi að nú er rætt um
að skera niður sjónvarpsefni,
vildi ég koma eftirfarandi á
framfæri fyrir hönd yngri
systkyna minna.
Mér skilst að það eigi að byrja á
þvi að fella niður þáttinn „Grenj-
að á gresjunni”, eins og við segj-
um gjarnan, en við teljum rang-
látt að taka af barnaefninu þvi af
nógu öðru er að taka.
Þá viljum við eindregið fá
Tomma og Jenna aftur. Fimm
ára systir min sagði mér að þeir
félagar fengjust ekki aftur af þvi
að þeir kenndu okkur að hrekkja
og striða, sem hún gat alls ekki
skilið, þvi hún væri sjáll' mun
þægari að fara i háttinn eftir að
hafa horft á þessa skemmtilegu
kumpána.
Fjölskylduþættir eins og Land-«*
nemarnir mættu vera fyrr á dag-
skrá svo yngri börnin fái notið
þeirra, en siðast á dagskránni
mætti þá frekar vera efni fyrir
sérhópa.
Er ekkl hægt að lá
öflýr farglöld tu
Skanfllnavfu?
Helgi Sigurðsson skrif-
ar:
Nú i vor mun danska ierða-
skrifstofan Tjæreborg hafa viku-
legar lslandsferðir i samvinnu
við Ótsýn, og er ekkert nema gott
um það að segja. En maður er
hissa á þvi, að íslendingum er
ekki boðið uppá slik vildarkjör
sem þeir hjá Tjæreborg bjóða,.
Maður spyr, hvað veldur? Er orð-
ið útilokað að fá ódýr fargjöld til
dæmis til Kaupmannahafnar,
einsoghægt varáður! Hvað veld-
ur?
Mitt álit er það, að hver íerða-
skrifstofa ætti að sjá sóma sinn i
þvi að bjóða Islendingum ódýrar
ferðir til Skandinaviu. Flestir
vilja fara þangað, þó að íerða-
skrifstofur vilji fá fólk til Spánar.
Hvernig stendur á þvi, að það
er aldrei sagt frá likamsárásum,
nauðgunum og morðum, sem
framin eru á Spáni og bitna á sak-
lausum ferðamanni, en það er
staðreynd, að á hverju ári er
hundruðum kvenna nauðgað á
Spánarströndum.
Ég vil taka það skýrt fram, að
ég er alls ekki á nokkurn hátt að
kenna ferðaskrifstoíum um þessa
glæpi, siður en svo. Það veldur
ferðaskrifstofunum miklum
áhyggjum, hve glæpalýðurínn á
Spáni hefur fært sig upp á skaftið,
og lögreglan er gjörsamlega dauð
vegna mútuþægni og spillingar.
Hver er hin
MiðinOddur?
Fagmaður hringdi:
Vegna athugasemdar Odds
Thorarensens við grein Friðriks
Sophussonar i Visi vegna Dalvik-
urmálsins, vildi ég óska eftir nán-
ari skýringum Odds á þvi, hver
hin hliðin á málinu sé, sem honum
er svo tiðrætt um.