Heimilistíminn - 08.03.1979, Side 6
Jan Todd
hefur
stundað
kraftlyfting-
ar af miklu
kappi undan
farin ár, og
segist hafa
mjög
gaman af
Sterkasta kona heims, eða
Hún er hvorki meö yfirvaraskegg né
heldur slavneskan málhreim, og hún
hefúr gaman af aö fara meö ljóö eftir
Wendell Berry. Hún er gjörólik þessum
venjulegu ljóshæröu stúlkum. Hún heitir
Jan Toddoger 26 ára gömul, og venjulega
er talaö um hana sem sterkustu konu i
heimi. Nýlega staöfesti hún iika þennan
oröróm meö þvi aö setja ný met f kraft-
iyftingum i keppni i St. Lous f Bandarfkj-
unum.
Jan er svo sannarlega enginn kjána-
kollur. Hún var ritstjóri háskólablaösins,
þegarhún var í háskólanum, oghefur tek-
iömagisterspróf,ennúkennir hún ensku I
gagnfræöaskóla i Nova Scotia skammt
þar frá, sem hún ogmaöur hennar Terry
eiga sér bújörö. Hún hefur óendaniega
gaman aö þvi aö sauma bótaábreiöur,
baka kanelsnúöa og sjóöa niöur ávexti,
auk þess sem garöyrkjan erhennar uppá-
hald. — Mig langar til þess aö vera heil-
brigö og sönn f öllu sem ég geri, en ekki
yfirborösmanneskja, segir hún.
Jann vann sér þaö til frægöar, þegar
hún var heima I Plant City í Florida I
gangfræöaskóla, aö sigra i keppni, sem
nefndist Betty Crocker Homemaker of
6
hvað?
Tomorrow, eöaframtiöarhúsmóöirin. Svo
var þaö.þegar hún var 19ára, aö hún fékk
hugboö um þaö, hversu sterk hún var i
raun og veru. Þá tókst henni aö vinna föö-
ur sinn, en hann var verkamaöur I stál-
verksmiöju, þegar þau kepptu um þaö,
hvort þeirra væri sterkara.
Ekki fór Jan þó aö taka þátt I lyftingum
fyrir alvöru fyrr en hún kom i Mercer
College I Macon I Georgiu, en þar hitti hún
lika Terry, prófessor i i'þróttasögu. Hann
stundaöi lyftingar fyrr á árum, en er nú
hættur öllu sliku, 41 árs að aldri. Eitt sinn
átti hann meira aö segja 15 heimsmet I
lyftingum, og er i þann veginn að ijúka
fjóröu bók sinni um þetta efni.
Þau uröu fyrst hrifin hvort af ööru,
þegar þau voru i smáferðalagi, og Jan
sýndi hvaö í henni bjó I lyftingunum. Hún
lyfti þungum viöardrumbi, og um þaö
segir Terry: — Þaö var eitthvaö s"érs‘takt
viö þaö, hvernig hún lyfti þessum drumbi.
— Hún var ekkert aö flissa eöa látast um
leiö og hún gerði þaö.
Þegar þau svo giftu sig þremur árum
slðar, var Jan farin aö æfa viö hliö Terry
og sökkti sér niöur i ailar bækurnar, sem
hann átti um lyftingar. Sérstaka athygli
vakti frásögnin um frönsku konuna Jane
de Vesley, sem setti met i kraftlyftingum
kvenna árið 1926. Hún lyfti þá 392
pundum. Jan sagöi: — Ég get slegiö þetta
met, og innan 16 mánaöa, áriö 1975 tókst
henni að lyfta 394.5 pundum.
1 kraftlyftingum, gagnstætt viö
olympiskar lyftingar, er ekkert lagt upp
úr fallegum stil, heldur miöast allt viö aö
reyna styrkleika mannsins. (1 olympisk-
um lyftingum — jafnhöttun — er metiö
t.d. 564 pund á meðan þaö er 934 pund i
kraftlyftingum). Jan setti nýlega met i
flokki kvenna 181 pund að þyngd i þremur
keppnisgreinum kraftlyftinganna: 402
pund I hnébeygju, 176 pund i bekkpressu
og 424 pund i réttstöðulyftu. Samanlögö
þyngd þess sem hún lyfti var 1002 pund,
sem lika mun vera met. 1 júni i fyrra náöi
hún 1127 pundum i keppni I Nýfundna-
landi.Þá vóghúnsjálf 196 pundogkeppti i
samræmi viö þaö.