Heimilistíminn - 08.03.1979, Qupperneq 15
TVIBURAR
í VÖGGU
œttaðir frá Mexikó
Roheo discolor eða tvíburar
i vöggu heitir þessi planta.
Látið ekki villa um fyrir
ykkur, að fremst til hægri i
pottinum hjá henni eru tvö
blöð af blaðkaktus, og eiga
þau auðvitað ekkert skylt
við aðalplöntuna, heldur var
þeim bara stungið þarna
niður og hafa þau dafnað vel
i sambýlinu.
Tviburar i vöggu er upprunnin i
Miö-Ameriku, liklega i Mexikó. Blööin
geta oröiö allt aö 30 cm löng og 8 cm
breiö. Aö ofan eru þau dökkgræn, en
aö neöan vinrauö meö silfruöum blæ.
Planta þessi hefur yfirleitt stuttan
legg, en þó hefur þaö viljaö brenna viö
hjá sjálfri mér, aö i ónógri birtu hafi
hún tekiö aö teygja sig einum um of
mikiö upp, og hefur hún þá oröiö
rengluleg og ekki eins falleg og ella.
Sagt er, aö hún þurfi góöa birtu, en
ekki sól.betta á viö um sumrin, en á
veturna, getur veriö gott aö láta pott-
inn standa úti i glugga, vegna þess aö
inni í stofúnum, er þá aldrei næg birta
til þess aö plantan haldi áfram aö vera
sterkleg og falleg.
A vorin fer plantan aö blómstra.
Blómin koma i litlum pokum upp milli
blaöanna, og eru næsta undarleg og
ólfk blómum annarra plantna, aö
minnsta kosti umbúnaöur þeirra.
Ekki á aö vera erfitt aö hugsa um
tvíbura i vöggu. A sumrin þarf aö
vökva plötuna vel og gefa henni áburö
einu sinni i viku, eöa þar umbil, en á
veturna er óhætt aö láta hana þorna
næstum alveg á milli. Eina vandamál-
iö er, aö blööunum hættir til aö
skorpna i endana á veturna, en meö
réttum aöbúnaöi á aö vera hægt aö
komast hjá þvi.
Auövelt er aö fjölga tviburum i
vöggu. biö getiö byrjaö meö þvi aö
taka toppinn af plöntunni ykkar, og
eftir þaö tekur hún aö skjóta út öngum
i aliar áttir, og þá fáiö þiö ótal græöl-
inga. Veriö ekkert aö sýta þaö aö
klippa þessa plöntu, né heldur aörar,
sem þiö eigiö, og ykkur finnst vera aö
veröa rytjulegar. baö er þaö eina sem
dugar, og meðöörumóti fáiö þiöaldrei
fallegar, þéttar og gróskumiklar
plöntur. Fólk er yfirleitt allt of ragt
viö aö klippa, heldur aö þá sé plantan
ónýt, en þaö er nú yfirleitt alveg þver-
öfugt. fb.