Morgunblaðið - 19.02.2005, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÚR VERINU
á morgun
Tímaritið á
sunnudögum
Hafa Íslendingar ekki
tíma til að taka þátt í
fjölmenningarsamfélaginu
og til að gera það að
raunveruleika?
TIL greina kemur að selja fiskrétta-
verksmiðju SÍF í Boulogne Sur-Mer
í Frakklandi en þó hafa enn ekki far-
ið fram neinar viðræður í þá veru, að
sögn stjórnarformanns SÍF.
Á vefmiðlinum IntraFish er í gær
greint frá því að
dótturfélag SÍF, SIF
France, hafi nú um
nokkurra mánaða
skeið reynt að selja
verksmiðju sína í
Boulogne Sur-Mer
en ekki haft árangur
sem erfiði.
Ólafur Ólafsson, stjórnarformað-
ur SÍF, segir að félagið sé að endur-
skoða sinn rekstur í Frakklandi og
þá komi meðal annars til greina að
selja verksmiðjuna í Boulogne Sur-
Mer, enda passi hún ekki nægilega
vel inn í þá viðskiptaflóru sem félag-
ið ætli að stunda. Hann segir þó
engar söluviðræður hafnar og engin
vinna í þá átt verið sett af stað.
Verksmiðjan í Boulogne Sur-Mer
framleiðir um 30 þúsund tonn á ári
og segir í frétt IntraFish að hún sé
afar vel staðsett gagnvart mörkuð-
um í Evrópu. Margir keppinauta
SÍF renni þannig
hýru auga til hennar
en umframgeta í
hvítfiskframleiðslu
og erfitt ástand á
franska vinnumark-
aðnum fæli þá frá,
auk þess sem sagt er
að SÍF fari fram á of
hátt verð fyrir verksmiðjuna. Eru
nefndir nokkrir hugsanlegir kaup-
endur til sögunnar, m.a. Royal
Greenland, Unilever, Pickenpack og
Frosta. Forstjóri Young’s Bluecrest
Seafood, Mike Parker, segir í frétt
IntraFish að félagið hafi ekki átt í
viðræðum um kaup á verksmiðj-
unni.
Verksmiðja SÍF í Boul-
ogne Sur-Mer til söluKLETTUR, félag smábátaeigenda
frá Ólafsfirði að Tjörnesi, mótmæl-
ir harðlega þeirri undanþágu frá
banni við dragnótaveiðum á Eyja-
firði sem dragnótabátnum Sól-
borgu EA í eigu Brims hf., hefur
verið veitt. Klettur hefur sent Árna
M. Mathiesen sjávarútvegsráherra
áskorun um að fella þessa undan-
þágu nú þegar úr gildi.
Í yfirlýsingu frá Kletti segir að
félagið hafi á undanförnum árum
margoft ályktað um dragnótaveið-
ar og hafi þær allar verið á þá leið
að færa veiðarnar utar í firðinum,
jafnþví sem félagið hafi mótmælt
harðlega öllum undanþágum frá
gildandi reglum. Segir að drag-
nótaveiðar á svæðum sem friðuð
hafi verið til margra ára fyrir tog-
veiðarfærum séu ekkert annað en
skemmdarstarfsemi og megi það
með ólíkindum teljast ef að stærstu
útgerðarfyrirtæki landsins telji sig
ekki geta komist af nema með því
að fremja skemmdarverk á frið-
uðum svæðum. Jafnframt segir að
fiskgengd í Eyjafirði hafi verið í
örum vexti á undanförnum árum
og útgerðarmenn smábáta með
kyrrstæðum veiðarfærum nýtt sér
hana. „Það er því með mikilli skelf-
ingu sem þessir sömu útgerðar-
menn horfa upp á stórvirkt veiði-
skip skarkandi með togveiðarfæri
á veiðislóð sem jafnvel hefur verið
friðuð í áratugi, eða aldrei verið
leyfð dragnótaveiði á.“
Tilraunaveiðar
Brim sendi í gær frá sér tilkynn-
ingu þar sem fram kemur að Brim
fiskeldi hefur fengið leyfi sjávarút-
vegsráðuneytisins tímabundið til
að stunda tilraunaveiðar innan línu
í Eyjafirði og inn að Hjalteyri. Til-
gangur þeirra er að afla þorsks í
tilraunaeldi á vegum Brims fisk-
eldis. Veiðarnar verða stundaðar
innan svokallaðrar línu til 21. feb.
n.k. en eftir það utan við línu
Segir að tilraunaveiðar sem
þessar séu mikilvægur þáttur í
rannsókna- og þróunarstarfi á sviði
þorskeldisrannsókna. Veiðar sem
þessar séu stundaðar í nokkrum
mæli umhverfis landið og yfirleitt
grunnt inni á fjörðum. Veiðar með
togveiðarfærum í rannsóknaskyni
hafi þannig verið stundaðar um
árabil í innanverðum Eyjafirði.
„Það er stefna Brims að stuðla að
ábyrgri nýtingu náttúruauðlinda,
meðal annars með því að þróa fisk-
eldi sem raunhæfan valkost til við-
bótar við veiðar á nytjastofnun
sjávar. Miklir þjóðhagslegir og
staðbundnir hagsmunir liggja í því
að gera fiskeldi að hagkvæmum
valkosti í íslenskum sjávarútvegi
svo ekki sé minnst á þann mark-
aðslega styrk sem í fiskeldi getur
falist. Það er því mikilvægt að það
þróunarstarf eins og nú fer fram í
Eyjafirði á vegum Brims fiskeldis
fái að mæta skilningi smábáta-
sjómanna í firðinum,“ segir í til-
kynningu Brims.
Mótmæla dragnótaveiðum
„Á SAMA hátt og hægri menn
markaðsvæddu Ísland er stærsta
mál jafnaðarmanna nú á dögum að
taka markvisst og af sama krafti til
við að lýðræðisvæða Ís-
land. Markaðsvæð-
ingunni er lokið. Nú
tekur lýðræðisvæð-
ingin við,“ segir Stefán
Jón Hafstein, formaður
framkvæmdastjórnar
Samfylkingarinnar og
borgarfulltrúi R-list-
ans, í nýrri ritgerð sem
hann kynnti í Iðnó í
gær.
Stefán Jón segir að
ritgerðin eigi að
gagnast fyrst og fremst
til að róta í huga þeirra
sem vilji byggja nú-
tímalegt, frjálslynt og
framsækið samfélag á
Íslandi í anda jafn-
aðarstefnu og félagshyggju.
Hann sé að kallast á við samherja
sína og áhugafólk um pólitík. Það
sem hafi drifið hann áfram sé nauð-
syn þess að halda umræðunni um
sköpunina í stjórnmálunum áfram
eftir að draumurinn um stóran jafn-
aðarmannaflokk varð að veruleika.
Einnig sé hann með þessu að leggja
fram sínar hugmyndir eftir að hafa
verið framarlega í pólitísku starfi í
nokkur ár.
Í ritgerðinni segir Stefán að rétt-
ur borgaranna til að hafna gjörðum
ríkisstjórnar eða Alþingis með því að
krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu sé
svo eðlilegur að jafnaðarmenn setji
hann á oddinn. „En eigum við ekki
að ganga enn lengra og krefjast þess
að skipulögð samtök borgara geti
samið frumvarp til laga og safnað
fyrir því svo miklum stuðningi að
hægt sé að krefjast atkvæðagreiðslu
um það án atbeina Alþingis?“
Stefán Jón nefnir sem dæmi að
Alþingi hafi mistekist
æ ofan í æ að tryggja
atkvæði um sameign
auðlinda þjóðarinnar í
stjórnarskrá. Það
sama eigi við um lag-
færingar á kjör-
dæmaskipan. Réttur
til þjóðaratkvæða-
greiðslu eigi að fela í
sér tækifæri til að taka
frumkvæði um mál og
knýja í gegn með
fjöldahreyfingu og
samþykki þjóðarinnar.
Hann segir umræðu
um málskotsrétt for-
seta Íslands hafa leitt í
ljós hversu takmark-
aður hann er. „ Mál-
skotsrétturinn er lifandi veruleiki,
og hann á að formfesta og skilgreina
og hann á að vera í höndum borgara
sem bindast um það samtökum að
hafna vilja Alþingis, ekki bara hjá
einum manni á Bessastöðum.“
Brýn mál í lýðræðisvæðingunni
eru að mati Stefáns Jóns: Að gera
landið að einu kjördæmi, ráðherrar
sitji ekki á Alþingi og dómsvaldið
verði í raun sjálfstætt og dómarar
ekki skipaðir með geðþótta eins ráð-
herra.
Umbuna á fólki
Skylda okkar er að hafa í heiðri
gildi velferðar, en ríkisvaldið er ekki
eina og ekki alltaf besta leiðin til
þess, segir Stefán Jón. Ýtrustu kröf-
um um samábyrgð eigi að mæta með
spurningu um sjálfsábyrgð. Mönn-
um sé of tamt að horfa til samfélags-
umræðna út frá kröfugerðapólitík-
inni.
Knýja eigi einstaklinga og hópa til
að líta í eigin barm fyrst og krefjast
svo. Þessu eigi að ná með siðvæð-
ingu og fræðslu og skattlagningu;
umbun fyrir jákvæða breytni sem
felst í forvörn við vanda.
„Í stað þess að banna eða boða má
umbuna ríkulega, hvetja og styðja
jákvæða hegðun, en refsa með skött-
um og gjöldum fyrir sóun og slæma
hegðun. Þeir sem taka upplýsta
áhættu greiða, þeir sem nýta auð-
lindir borga, þeir sem leggja lið
spara.“
Stefán Jón útfærir þetta fyrir
heilbrigðiskerfið og segir að það
mætti umbuna þeim sem gæta
heilsu sinnar í stað þess að refsa fyr-
ir áhættuhegðun eins og í einka-
reknu tryggingakerfi. Röksemd
hans er þessi: „Fólk sem vísvitandi
fer illa með heilsu sína og neitar ráð-
um um annað tekur óhóflega stóran
hluta takmarkaðra gæða til sín á
kostnað þeirra sem axla ábyrgð.“
Gæti skipt um skoðun
Fjölmargar aðrar hugmyndir er
að finna í ritgerð Stefáns Jóns. Í
anda samræðustjórnmálanna er
hann tilbúinn að ræða þessar hug-
myndir og er hægt að nálgast rit-
gerðina á heimasíðu hans, www.stef-
anjon.co.is. Gefur hann fólki kost á
að koma með athugasemdir og áskil-
ur hann sér rétt til að skipta um
skoðun.
Verði útkoman góð geti farið svo
að hann gefi ritgerðina út á bók.
Stefán Jón Hafstein fjallar um jafnaðarstefnu 21. aldarinnar
Lýðræðisvæðingin tekur við
Morgunblaðið/Jim Smart
Fjölmenni var í Iðnó í gær þegar Stefán Jón Hafstein kynnti hina nýju ritgerð sína um lýðræðisvæðingu á Íslandi.
Stefán Jón
Hafstein
Meira á mbl.is/itarefni