Morgunblaðið - 19.02.2005, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2005 19
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Eldaskálinn
Brautarholti 3
105 Reykjavík
Sími: 562 1420
www.invita.com
HAGNAÐUR Tryggingamiðstöðv-
arinnar (TM) í fyrra nam 1.980 millj-
ónum króna á móti 1.424 milljónum
árið áður. Þetta er í góðu samræmi
við afkomuviðvörun sem félagið birti
í Kauphöllinni í lok ársins en í henni
kom fram að áætlaður hagnaður
2004 yrði um tveir milljarðar. Hagn-
aður af vátryggingarekstri dróst
verulega saman og nam 202 milljónir
en mikil umskipti urðu í fjármála-
rekstri félagsins, m.a. vegna sölu
fjárfestinga og losaði hagnaður í
fjárfestingarekstri 2,3 milljarða á
móti 1,16 milljörðum árið 2003.
Í Morgunkorni Íslandsbanka seg-
ir að lækkun iðgjaldataxta, einkum í
ökutækjatryggingum ásamt aukinni
tjónatíðni, hafi leitt til óviðunandi af-
komu af vátryggingastarfsemi á síð-
asta fjórðungi ársins. Afkoma félags-
ins hafi verið borin uppi af sölu-
hagnaði fjárfestinga. Þá segir að
brunatjón TM í Grindavík kosti TM
um 200 milljónir og spáir Íslands-
banki því að afkoman verði í járnum
á fyrsta ársfjórðungi þessa árs.
Í tilkynningu TM kemur fram að
tjónaþungi hafi verið í meira lagi,
eigin tjón á móti iðgjöldum hafi verið
92,5% í fyrra en 84,6% árið 2003.
!"
"
!!
"#
!##
!
!
$
#$"
TM hagnast
um nær tvo
milljarða
HALLI á vöruskiptum við útlönd á
árinu 2004 nam 37,8 milljörðum
króna. Fluttar voru út vörur fyrir
202,4 milljarða króna en inn fyrir
240,2 milljarða. Árið áður var hallinn
16,7 milljarðar á sama gengi. Vöru-
skiptajöfnuðurinn var því 21,1 millj-
arði króna lakari árið 2004 en árið
2003. Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Hagstofu Íslands.
Sjávarafurðir 60%
Heildarverðmæti vöruútflutnings
á árinu 2004 var 22,3 milljarðar eða
12,4% meira á föstu gengi en árið áð-
ur. Sjávarafurðir voru 60% alls vöru-
útflutnings og var verðmæti þeirra
8,5% (9,6 milljörðum) meira en árið
áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru
35% alls útflutnings og var verðmæti
þeirra 16,5% (10,1 milljarði) meira
en árið áður. Ál vó þyngst í útflutn-
ingi iðnaðarvöru. Aukningu í útflutn-
ingi á iðnaðarvörum má einna helst
rekja til meiri útflutnings á lyfjum
og lækningavörum, áli og öðrum iðn-
aðarvörum, að því er fram kemur í
tilkynningu Hagstofunnar.
Heildarverðmæti vöruinnflutn-
ings í fyrra var 43,3 milljarðar eða
22,0% meira á föstu gengi en árið áð-
ur. Stærstu liðir innflutnings á árinu
2004 voru hrá- og rekstrarvara með
25% hlutdeild, fjárfestingarvara með
22% hlutdeild og neysluvara (önnur
en mat- og drykkjarvara) með 18%
hlutdeild.
Aukinn innflutningur
Aukning varð í flestum liðum inn-
flutnings. Mest aukning í krónum
talið var í innflutningi á flutninga-
tækjum eða 50% (13,3 milljarðar),
hrá og rekstrarvöru, 16,8% (8,8
milljarðar) og fjárfestingarvöru
16,2% (7,4 milljarðar).
Greiningardeild Íslandsbanka tel-
ur að útlit sé fyrir eins til þriggja
milljarða afgangi á vöruskiptum í
janúar sem væri talsvert meira en í
fyrra. Að mati bankans kemur þar
bæði til að innflutningur hafi verið
lítillega minni og útflutningur meiri,
væntanlega um 18 til 20 milljarðar
og munar þar mest um nær fjórð-
ungi meiri fiskafla en í janúar í fyrra.
Vöruskiptahallinn við útlönd
eykst um 21 milljarð milli ára
BRESKI matvælaframleiðandinn
Geest, sem Bakkavör stendur í yf-
irtöku á, hefur gert óbindandi sam-
komulag við fyrirtækið G’s Market-
ing (GML) um kaup á sölu- og
framleiðsluhluta þess fyrir tilbúið
salat. GML er stærsti framleiðandi
salathausa á breskum markaði og
fimmti stærsti birgi stórmarkaða í
tilbúnu salati. Þetta kemur fram í
Morgunkorni Íslandsbanka en
rekstrareiningin sem Geest hyggst
kaupa skilaði 18,6 milljónum punda
eða hátt í 2,2 milljörðum í tekjur á
síðasta fjárhagsári.
Ágúst Guðmundsson, stjórnarfor-
maður Bakkavarar Group, segir
Geest hafa upplýst stjórnendur
Bakkavarar um þessa ákvörðun og
þeir séu sammála því að halda áfram
með málið þar sem þeir telji þetta
vera skynsamleg kaup. „Þetta er
gert í fullu samráði við okkur,“ segir
Ágúst.
Ætla má að tekjur Geest verði um
910 milljónir punda eða um 106,7
milljarðar árið 2004 og mun velta
rekstrareiningarinnar því nema um
2% af heildartekjum Geest en verð-
mæti rekstursins sem Geest mun
kaupa samkvæmt samkomulaginu er
um 258 milljónir króna og má vænta
þess að yfirtökunni verði lokið í enda
mars.
Gert er ráð fyrir að áreiðanleika-
könnun Bakkavarar á Geest ljúki á
næstu vikum.
Geest kaup-
ir salat-
framleiðslu
♦♦♦