Morgunblaðið - 19.02.2005, Side 20
20 LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
AÐ minnsta kosti tuttugu og átta
manns biðu bana í hrinu sprengju-
tilræða í Bagdad í gær en árásirnar
virðast hafa beinst gegn íröskum
sjía-múslímum. Tugir manna til við-
bótar særðust en um er að ræða
einn blóðugasta daginn í Írak síðan
kosningar voru haldnar í landinu 30.
janúar sl.
Talið er öruggt að í öllum til-
fellum hafi verið um sjálfsmorðs-
árásir að ræða. Fyrsta sprengjan
sprakk í Dora-hverfinu í suðurhluta
Bagdad, nálægt al-Khadimain-
moskunni, og dóu að minnsta kosti
fimmtán í henni. Næsta sprengja
sprakk fyrir utan Al Bayaa-mosk-
una í sjítahverfi í vesturhluta
Bagdad. Þar dóu a.m.k. tíu. Þriðja
sprengjan sprakk í Ash Shulah-
hverfinu í norðvesturhluta borgar-
innar, þar sem sjítar höfðu safnast
saman í tilefni Ashoura-hátíðarinn-
ar, einnar mestu trúarhátíðar sjíta.
Og fjórða sprengjan sprakk síðan
nálægt lögreglustöð annars staðar í
Bagdad.
Skæruliðar í Írak gerðu einnig
árásir á sjíta á sama tíma í fyrra og
þá beið 181 bana í tveimur
sprengjutilræðum í Bagdad annars
vegar og í Karbala hins vegar. Mik-
ill viðbúnaður var í tengslum við
Ashoura-hátíðina að þessu sinni,
enda óttuðust menn að skæruliðar
myndu reyna að endurtaka leikinn
frá í fyrra. Var landamærum Íraks
m.a. lokað af þessu tilefni.
Mannrán og morð
Að minnsta kosti tólf Írakar og
einn bandarískur hermaður biðu
bana í árásum skæruliða annars
staðar í landinu frá því á fimmtu-
dagskvöld, að sögn embættismanna.
Þá er tveggja indónesískra frétta-
manna saknað og er óttast að þeir
hafi lent í höndum mannræningja. Á
fimmtudagskvöld höfðu arabískar
sjónvarpsstöðvar ennfremur sýnt
myndband þar sem sjá mátti Minas
Ibrahim al-Yussufi, kristinn Íraka
sem hefur sænskt ríkisfang, biðja
Karl Gústaf Svíakonung og Jóhann-
es Pál páfa um að beita sér fyrir því
að honum verði sleppt úr haldi. Al-
Yussufi var rænt fyrir þremur vik-
um og hafa mannræningjarnir hótað
að afhöfða hann ef lausnargjald er
ekki greitt.
Skæruliðar í Írak með hrinu
hryðjuverka gegn sjítum
Að minnsta kosti 28 biðu bana í sprengjutilræðum í Bagdad í gær
Bagdad. AP.
PORTÚGALSKI Sósíalistaflokkurinn fer með
sigur af hólmi í þingkosningunum á morgun,
sunnudag, ef marka má skoðanakannanir.
Samkvæmt fimm af sex könnunum sem birtust
í gær nær flokkurinn meirihluta á þingi í
fyrsta skipti frá því að lýðræði var endurreist í
landinu árið 1974.
Á fimmtudag birti vikuritið Visao könnun
sem leiddi í ljós að sósíalistar hafa aukið for-
skot sitt á helsta stjórnarflokkinn, Sósíal-
demókrataflokkinn, sem þykir hægrisinnaður
þrátt fyrir nafnið. Samkvæmt könnun þessari
mælist fylgi við Sósíalistaflokkinn 39%. Sósíal-
demókrataflokkurinn fær 28% atkvæða sam-
kvæmt Visao og myndi sú niðurstaða teljast
nánast niðurlæging fyrir flokkinn. Sósíal-
demókratar eru í stjórn með hinum hægri-
sinnaða Þjóðarflokki. Fylgi við þann flokk
mælist nú 7% og hefur aukist lítillega frá í jan-
úarmánuði en flokkurinn hlaut 8,75% atkvæða
í síðustu þingkosningum. Fylgi nokkurra smá-
flokka sem eru til vinstri við sósíalista hefur
einnig aukist, ef marka má skoðanakannanir.
Níu prósent þátttakenda kváðust enn ekki
hafa gert upp hug sinn í könnun Visao. Ljóst
er að Sósíalistaflokkurinn þarf að fá mikinn
meirihluta þessara kjósenda á sitt band eigi
draumurinn um hreinan meirihluta á þingi að
rætast.
Kannanir sem birtust í gær gáfu til kynna að
sú gæti jafnvel orðið raunin. Fylgi við sósíal-
ista í þessum könnunum mælist mun meira en
í könnun Visao eða á bilinu 45 til 46%. Fylgi
sósíaldemókrata mældist á bilinu 27 til 31%.
Á þingi Portúgal sitja 230 fulltrúar og hafa
sósíalistar aldrei haft þar meirihluta. Þeir eiga
nú 95 menn á þingi en sósíaldemókratar 102.
Forsetinn snerist gegn ríkisstjórninni
Núverandi stjórn Sósíaldemókrataflokksins
og Þjóðarflokksins tók við eftir kosningarnar
árið 2002. Þá unnu sósíaldemókratar stór-
sigur, fengu 40,12% atkvæða og felldu stjórn
sósíalista, sem verið hafði við völd í tæp sjö ár.
Almennt hafði verið búist við því að kosningar
færu ekki fram fyrr en árið 2006. Jorge
Sampaio, forseti Portúgals og sósíalisti, lýsti
hins vegar yfir því í desembermánuði að hann
bæri ekki traust til ríkisstjórnarinnar en fyrir
henni fer Pedro Santana Lopes, forsætisráð-
herra og leiðtogi sósíaldemókrata. Forsetinn
ákvað því að rjúfa þing og boða til kosninga.
Fylgisaukning sósíalista er einkum rakin til
þriggja þátta. Fyrir flokknum fer nú Jose
Socrates, fyrrum aðstoðarumhverfisráðherra,
sem þykir búa yfir umtalsverðum persónutöfr-
um. Hagvöxtur hefur verið heldur lítill að und-
anförnu og atvinnuleysi fer vaxandi. Í janúar-
mánuði mældist það 7,1% og hafði ekki verið
meira frá árinu 1998.
Sósíalistar í mikilli
sókn í Portúgal
Reuters
Jose Socrates, leiðtogi sósíalista, á kosningafundi. Hann er 47 ára og verkfræðingur að mennt.
Hann var fyrst kjörinn á þing 1987 og hefur verið atkvæðamikill á vettvangi umhverfismála.
Sósíalistaflokkurinn kann að ná meirihluta
á þingi í kosningunum á morgun
GERRY Adams, leiðtogi
Sinn Féin, hafnaði í gær al-
farið ásökunum um að flokk-
ur hans hefði verið viðriðinn
peninga-
þvætti það er
írska lögregl-
an telur sig
hafa komið
upp um með
handtöku á
sjö manns í
Cork og í
Dublin í
fyrradag.
Peninga-
þvættið er talið tengjast
bankaráni sem framið var á
N-Írlandi fyrir jól og Írski
lýðveldisherinn (IRA) hefur
verið sakaður um að hafa
staðið fyrir.
Lögreglan upplýsti í gær
að sex af þeim sjö, sem hand-
teknir voru í fyrradag, væru
grunaðir um aðild að IRA.
Sjá sjöundi er sagður liðs-
maður klofningshóps úr IRA.
Fram hefur komið að einn
hinna handteknu var í fram-
boði fyrir Sinn Féin fyrir
þingkosningarnar á Írlandi
2002.
Eitt það mesta
í breskri sögu
Umrætt bankarán er eitt
hið stærsta í breskri sögu en
ránsfengurinn var um 26,5
milljónir punda, eða um 3,1
milljarður ísl. kr. Hefur IRA
verið sakað um að standa
fyrir ráninu, sem fyrr segir,
og leiðtogar Sinn Féin um að
hafa haft vitneskju um það.
Lýsti dómsmálaráðherra
Írlands, Michael McDowell,
IRA sem „risastórri glæpa-
maskínu“ í samtali við írska
ríkisútvarpið RTÉ í gær og
hann fullyrti að samtök lýð-
veldissinna skiptust alls ekk-
ert í tvo arma, IRA réði
nefnilega gerðum pólitísks
arms samtakanna, þ.e. Sinn
Féin.
Gerry Adams ítrekaði aft-
ur á móti í gær að hann teldi
ekki að IRA hefði haft neitt
með bankaránið í Belfast að
gera.
Adams
hafnar
aðild
Sinn Féin
Gerry Adams
Reuters
Myndirnar frá Abu Ghraib í Írak vöktu óhugnað er þær voru birtar.
BANDARÍSKIR hermenn í Afgan-
istan misþyrmdu föngum sínum
rétt eins og kollegar þeirra gerðu í
Abu Ghraib-fangelsinu í Írak. Þetta
má lesa út úr gögnum frá Banda-
ríkjaher sem Mannréttindasamtök
Bandaríkjanna (ACLU) hafa fengið
afhent og gert opinber þó að ekki
sé ljóst hvort brotin voru jafn um-
fangsmikil. Fram kemur hins veg-
ar í gögnunum að í fyrravor eyddu
hermenn ljósmyndum sem sýndu
brot þeirra eftir að misþyrming-
arnar í Abu Ghraib urðu opinber-
ar.
Um er að ræða um þúsund síðna
skýrslu sem Bandaríkjaher gerði
vegna rannsóknar á pyntinga-
málum í Írak og Afganistan og
ACLU hafa síðan fengið afhenta
eftir langa baráttu og málarekstur
fyrir dómstólum. Fram kom í frétt
The Guardian að gögnin bentu til
þess að pyntingar hefðu verið
stundaðar í Bagram, nálægt Kabúl,
og einnig í minna fangelsi sem
Bandaríkjaher rekur í nágrenni
borgarinnar Kandahar í suður-
hluta Afganistans.
„Gögnin sýna að ljósmyndir sem
teknar voru í Suður-Afganistan og
sýndu bandaríska hermenn úr 22.
fótgönguliðssveitinni stilla sér upp
fyrir myndavélina í sviðsetningum
á aftökum á föngum, sem bundið er
fyrir augun á og bundnir eru niður,
voru viljandi eyðilagðar eftir Abu
Ghraib-hneykslið. Átti með því að
fyrirbyggja aðra eins uppákomu,“
sagði í frétt The Guardian.
Sem kunnugt er vakti það sterk
viðbrögð í fyrra þegar fram í sviðs-
ljósið komu myndir sem sýndu
fangaverði í Abu Ghraib-fangelsinu
í útjaðri Bagdad niðurlægja íraska
fanga sína með ýmsum hætti. Í
gögnunum sem ACLU hefur nú
komist yfir er að auki að finna um-
fjöllun um mál Íraka, sem haldið
var í fangelsi í borginni Tikrit, en
hann mun hafa fullyrt að hann hafi
verið yfirheyrður af þremur
Bandaríkjamönnum, þeir hafi mis-
þyrmt honum þannig að handlegg-
urinn fór úr lið, hlaupi óhlaðinnar
byssu hafi verið stungið upp í
munn hans og hleypt af, þá hafi
þeir þrengt að öndunarfærum hans
með reipi og loks barið hann með
hornaboltakylfu.
Sagði í frétt The Guardian að
læknisskoðun hefði staðfest fram-
burð Írakans en rannsókn hefði
engu að síður verið hætt í október
á síðasta ári.
Priki stungið upp í endaþarm
The Guardian segir að tveir fyrr-
verandi fangar í Afganistan hafi
gefið eiðsvarna yfirlýsingu um þá
meðferð sem þeir máttu sæta þar
og í herbúðum Bandaríkjamanna í
Guantanamo á Kúbu. Annar þeirra,
Palestínumaðurinn Abdulkadr
Youssouf Mustafa, er sagður hafa
tjáð mannréttindalögmanninum
Clive Stafford-Smith að bandarísk-
ir hermenn í Bagram hafi bundið
fyrir augu hans, keflað hann og
bundið og síðan stungið priki upp í
endaþarm hans. Munu þessir at-
burðir hafa átt sér stað 2002.
Jórdaninn Wesam Abdulrahman
Ahmed Al Deemawi er hins vegar
sagður hafa upplýst að á meðan
fjörutíu daga vist hans í Bagram
stóð hafi honum verið ógnað með
hundum, hann neyddur til að ber-
hátta og ljósmyndaður í niðurlægj-
andi stellingum.
Sagðir hafa eytt
ljósmyndunum
New York, London. AP, AFP.
Bandarískir hermenn misþyrmdu einnig föngum sínum í Afganistan