Morgunblaðið - 19.02.2005, Side 22
Reyðarfjörður | Litlu krílin á
leikskólanum Lyngholti á
Reyðarfirði una dagana langa
við leik og starf í skólanum
sínum.
Eins og í öðrum leikskólum
er yfirleitt eitthvað skemmti-
legt um að vera á daginn. Þá
eru börnin farin að hlakka til
vorsins, eins og vera ber, enda
hálfgert vorveður víða um land
þótt enn sé vetur á dagatalinu
og stórviðra og vetrargarra
alltaf von.
Þau fást svo sem ekki um
það, halda bara sínu striki og
fara prúð og frjálsleg í fasi
eins og þar stendur, fram nú
allir í röð.
Kannski alveg að koma mat-
artími og allir tilbúnir.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Una sér sæl á Lyngholti
Halarófa
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Árborg
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Í vor eru 15 ár liðin síðan Stykkishólms-
kirkja var vígð. Kirkjan er mikil bygging og
setur svip á bæinn. Hún stendur uppi á borg,
sést víða að og er gott kennileiti. Allir sem
heimsækja Stykkishólm taka eftir kirkjunni
Nú er komið að því að að endurnýja máln-
inguna á kirkjunni sem hefur dugað vel, því
mikið hefur mætt á veggjum hennar. En það
er mikið verk að mála kirkjuna. Fletirnir eru
um 2.000 fermetrar og er áætlað að það þurfi
meira en tonn af málningu eða um 300 stk. af
4 lítra dósum. Kirkjuturninn er um 28 metra
hár og þarf að leigja öfluga vinnupalla til að
ná þar upp á toppinn. Sóknarnefnd hefur
ákveðið að ráðast í verkefnið í vor og mun
leita til sóknarbarna og sækjast eftir vinnu-
fúsum höndum.
Tíðarfarið undanfarnar vikur hefur verið
þreytandi. Sífelldur útsynningur hefur gert
mönnum lífið leitt bæði til sjós og lands. Eft-
ir áramót hafa verið stöðugar ógæftir og er
langt síðan svona erfið tíð hefur verið til sjó-
sóknar. Það hefur verið náðugt hjá trillukörl-
um og hafa þeir í fáa róðra komist og sagði
einn þeirra að ef hann hefði átt von á slíkri
ótíð hefði tímanum verið betur varið á sólar-
strönd á Kanarí, í stað þess að fara sífellt
niður á bryggju athuga veðrið og bíða eftir
að gefi á sjó.
Sstór hópur Hólmara hefur farið síðustu vik-
ur til Kanarí í leit að betra veðri. Þaðan ber-
ast þær fréttir að tíðarfarið þar sé líka allt
öðruvísi en það á að vera. Fyrirhyggjusamar
konur, sem tóku með sér skjólgóðan fatnað,
hrósa happi en aðrir eiga á hættu að koma
kvefaðir heim.
Þorrablótið er búið og það tókst vel. Að
baki því liggur mikill undirbúningur hjá 20
manna hópi. Næsta stórverkefni á menning-
arsviðinu er að leikfélagið Grímnir hefur haf-
ið æfingar á leikritinu Fiðlarinn á þakinu.
Það er mikið átak hjá Grímni að ráðast í slíkt
stórvirki í ekki stærra samfélagi. Alls taka
um 50 manns þátt í uppfærslunni. Þar koma
saman leikarar, hljóðfæraleikarar, söngfólk
og þeir sem sjá um búninga og leiksvið.
Það vekur athygli að margir unglingar taka
þátt í sýningunni. Það eru jákvæð merki
þess að Fjölbrautaskóli Snæfellinga hefur
tekið til starfa sem gefur unglingunum kost
á því að vera heima yfir vetrartímann.
Um tónlistina sjá kennarar og nemendur
tónlistarskólans og kór Stykkishólmskirkju
ásamt kórstjóra.
Úr
bæjarlífinu
STYKKISHÓLMUR
EFTIR GUNNLAUG ÁRNASON FRÉTTARITARA
Áhugafólk um stofn-un félagsins„Þingeyskur
sagnagarður“ hefur boðað
til stofnfundar í safn-
aðarheimili Þorgeirs-
kirkju næsta miðvikudag,
23. febrúar kl. 16. Við-
fangsefnin munu í fyrstu
afmarkast af Þorgeirs-
kirkju, Goðafossi og Þing-
ey, en tilgangur félagsins
er að afla nýrrar þekk-
ingar og safna saman og
miðla fyrirliggjandi sögu-
þekkingu á svæðinu.
Markmiðið er að stuðla að
varðveislu sagnfræðilegra
fornminja, þjóðsagna og
annarra menningarminja
á svæðinu, efla rannsóknir
á íslenskri miðaldamenn-
ingu og kristnisögu með
samvinnu fræðimanna,
fyrirtækja, stofnana og
einstaklinga sem og að
skapa styrkari forsendur
fyrir menningartengda
ferðamennsku á svæðinu.
Sagnagarður
Félagið Íslensk ættleiðing afhenti í vikunni styrktil verkefna UNICEF á flóðasvæðunum við Ind-landshaf. Styrkupphæðin er 305 þúsund krónur
en það samsvarar þúsund krónum á hvert barn sem
hefur verið ættleitt frá þeim löndum sem lentu í ham-
förunum annan í jólum sl. Róbert Davíð Yoder Pálma-
son afhenti styrkinn fyrir hönd Íslenskrar ættleiðingar
en Hólmfríður Anna Baldursdóttir upplýsingafulltrúi
tók við honum. UNICEF starfar á öllum sviðum þróun-
ar- og neyðaraðstoðar á svæðunum með hag barna að
leiðarljósi. Meðal verkefna er að sameina fjölskyldur,
finna munaðarlausum börnum athvarf, bólusetningar
barna, að tryggja hreint vatn og hreinlætisaðstöðu.
Íslensk ættleiðing styrkir UNICEF
Rúnar Kristjánssoná Skagaströnd lasjónru Jóns Ingvar
Jónssonar, limru fléttaða
í sléttubönd. Rúnar orti
þá sléttubönd með inn-
gangi:
Sá ég nettan limruleik,
liprar glettur hressa.
Vel það setti kraft í kveik,
kynnti fléttu þessa:
Sjóður ljóða laðar góður,
móður hljóður herðir róður.
Fóður andans, óður landans,
skjóður fyllir – færir hróður!
Og þannig er hún lesin
afturábak:
Hróður færir – fyllir skjóður,
landans óður, andans fóður.
Róður herðir hljóður móður,
góður laðar ljóða sjóður
Þá yrkir Rúnar að hætti
forföður síns Eldjárns
Hallgrímssonar, en lesa
má háttinn lóðrétt sem lá-
rétt:
Helgar sólar seiður vorið,
sólar birtan vonir kveikir.
Seiður vonir vekur hlýjar,
vorið kveikir hlýjar myndir.
Áfram um
limruleik
pebl@mbl.is
Stokkseyri | Jóhann Óli Hilmarsson,
ljósmyndari á Stokkseyri, opnar ljós-
myndasýningu í Kaffisal Hólmarastar-
hússins á morgun,
sunnudag. Jóhann
Óli sýnir myndir frá
heimasveit sinni og
er myndefnið allt frá
hinu smæsta til hins
stærsta, frá smáfugl-
um og smæstu
plöntum til úfins Atl-
antshafsins og brak-
andi Norðurljósa.
Meginhluti myndanna er þó fuglamynd-
ir.
Jóhann Óli er þekktur fyrir náttúru-
ljósmyndir sínar, sérstaklega fugla-
myndir. Myndir hans hafa birst í bókum,
blöðum, tímaritum og sýningum um all-
an heim. Þekktasta verk hans er met-
sölubókin Íslenskur fuglavísir, sem þýdd
hefur verið á ensku og þýsku. Með fram
náttúruljósmyndun starfar Jóhann Óli
að fuglarannsóknum og hann er frétta-
ritari Morgunblaðsins á Stokkseyri.
Hann er formaður Fuglaverndar og hef-
ur verið í forsvari fyrir Friðlandið í Flóa.
Sýningin er sölusýning og er opin á
sama tíma og Draugasetrið, laugardaga
og sunnudaga frá kl. 14.
Náttúra
Flóans
Vesturbyggð | Bæjarráð Vesturbyggðar
hefur samþykkt að sett verði á fót mötu-
neyti við Grunnskóla Vesturbyggðar í
Birkimelsskóla. Er það gert að beiðni
foreldra skólabarna. Í haust barst bæj-
arráði undirskriftarlisti frá foreldrum
þar sem óskað var eftir að mötuneyti
yrði sett á fót í skólanum. Þá taldi bæj-
arráð rétt að bíða með ákvörðun þar til
fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi ár
lægi fyrir. Í bókun bæjarráðs segir að í
henni hafi verið gefið svigrúm til þess að
tilraun yrði gerð á þessu sviði yrði vilji
til þess. Verður tilraun nú gerð til starf-
rækslu mötuneytis til loka yfirstandandi
skólaárs þar sem skólinn kosti starfs-
mann en foreldrar sjái um hráefniskostn-
að. Kemur fram í bókun ráðsins að að-
eins yrði um að ræða léttan hádegisverð
og starfshlutfall starfsmannsins taki mið
af því. Var bæjarstjóra Vesturbyggðar
falið að vinna að undirbúningi málsins
ásamt skólastjórnendum.
Setja upp
mötuneyti
♦♦♦
Dagskrá
Kl.: 14:00 Afhending fundargagna
Kl.: 14:10 Setning
Pétur Rafnsson, formaður Ferðamálasamtaka hbsv.
Kl.: 14:20 Ávarp
Lúðvík Geirsson, Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar
Kl.: 14:40 Kaffihlé
Kl.: 15:00 Aðalfundarstörf skv. lögum FSH
Kl.: 16:00 Samstarf í ferðaþjónustu á
höfuðborgarsvæðinu,
Dóra Magnúsdóttir, markaðsstjóri Reykjavíkurborgar
Kl.: 16:25 Fyrirspurnir
Kl.: 16:45 Fundarslit
Fundarstjóri: Sigurrós Þorgrímsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi
Skráning á fundinn er í síma 898-6635 eða petur@icetourist.is .
Stjórnin
Aðalfundur Ferðamálasamtaka
höfuðborgarsvæðisins 2005
Verdur haldinn í Smárahóteli í
Kópavolgi 4. mars 2005, kl: 14:00