Morgunblaðið - 19.02.2005, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2005 29
FERÐALÖG
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
27
00
4
01
/2
00
5
*Innifalið: Flug, flugvallarskattar og eldsneytisgjald
Verð frá 36.900kr.*
Netsmellur til USA
Bandaríkjaferðir á frábæru verði
Bókaðu á www.icelandair.is
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
www.golfactivity.co.uk
sími 0044 131 343 1545 • ecescott@aol.com
Vorgolf í Skotlandi
Þriggja daga golfpakki -
innifaldir 2 hringir á
Turnberry - frá kr. 52.550
Margir hafa þann sið að leitauppi markaði í þeim borg-um sem þeir heimsækja
enda er hægt að gera þar góð kaup.
Þessir samkomu- og sölustaðir
segja líka mikið til um persónuleika
viðkomandi borgar og sýna á henni
aðra hlið heldur en þá sem hún býð-
ur jafnan ferðamönnum. Skemmti-
legir karakterar leggja oft leið sína
á markaði sem þessa og enn sér-
stakari karakterar hafa atvinnu af
sölunni.
París er borg sem er þekkt fyrir
góða flóamarkaði og þaðan er nafnið
flóamarkaður reyndar komið
(le marché aux puces) en talið er
að nafnið hafi orðið til árið 1880.
Markaðurinn í Porte de Montreuil
er ekki sá stærsti, flottasti eða
þekktasti en hann er samt sér-
staklega eftirminnilegur.
Þetta er einn af ódýrustu flóa-
mörkuðunum í borginni og hægt er
að gera góð kaup í notuðum fatnaði.
Ég sæki flóamarkaði heim til þess
að finna flott föt eða fylgihluti, þó
alltaf sé líka gaman að skoða ýmsa
muni. Á markaðnum er hægt að
finna heilu borðin með kjólum sem
kosta ekki neitt neitt, ódýrar yfir-
hafnir, afrísk hálsmen, pallíettuboli
og þar fram eftir götunum. Það
góða við flóamarkaði í París er að
þar leynast inn á milli föt frá þekkt-
um hönnuðum og merkjum eins og
YSL Rive Gauche og öðrum ynd-
islegum Parísarmerkjum.
Sá stærsti í heimi
Flóamarkaðir eru með þekktustu
mörkuðum í París og taka oft mikið
pláss. Þess vegna eru stærstu mark-
aðirnir oft við gömul hlið í borgina
eins Porte de Montreuil og allra
stærsti markaðurinn, sem er á milli
Porte de Saint-Ouen og Porte de
Clignancourt. 200.000 manns sækja
markaðinn hverja helgi og eru
ábyggilega margir ferðamenn
þeirra á meðal. Þarna er ekki eins
ódýrt og í Montreuil en það er
vissulega gaman að heimsækja
þennan stærsta flóamarkað í heimi.
Básar eru ótalmargir og líka búðir
og það er hægt að kaupa allt sem
hugurinn girnist.
Amsterdam er borg sem er með
nokkrum skemmtilegum mörk-
uðum. Þekktasti flóamarkaðurinn er
sá á Waterlooplein og flestir ferða-
menn í Amsterdam heimsækja
hann. Hann hefur líkt og Saint-
Quen verið til síðan á nítjándu öld
en var endurbyggður eftir síðari
heimsstyrjöldina.
Mánudagur til lukku
Skemmtilegasti markaðurinn er
þó á Noordermarkt, við Noorder-
kerk í Jordaan-hverfinu, rétt við
Prinsengracht. Markaðurinn er líka
nálægt Húsi Önnu Frank og heppi-
legt að heimsækja hann í sömu ferð.
Miðborg Amsterdam er lítil og er
auðvelt að rata þar. Gott er að
ganga um og ennþá betra að fara
um á hjóli.
Á Noordermarkt er hægt að
kaupa lífrænar vörur á laugar-
dögum milli 9 og 17 en þeir sem eru
í leit að notuðum fötum ættu að
heimsækja markaðinn milli 9 og 1 á
mánudagsmorgnum. Þar leynist
margur fjársjóðurinn og má finna
bæði hluti og föt á betra verði en á
Waterlooplein. Markaðurinn er
mjög vinsæll hjá heimamönnum og
borgar sig að koma snemma til að
finna eitthvað sem varið er í.
Hægt er að gera kjarakaup á Noordermarkt í Amsterdam og er þá nauðsynlegt að vera þolinmóður og þrautseigur.
Greinarhöfundur við nokkra af hinum fjölmörgu básum nærri Porte de
Clignancourt í París en þar er margmenni um hverja helgi.
FLÓAMARKAÐIR
Montreuil-flóamarkaðurinn er
opinn lau – mán. 7.30 til 18. Neð-
anjarðarlestarstöð er Porte de
Montreuil með línu 9.
Saint-Quen-flóamarkaðurinn er
opinn lau – mán. 7.30 til 18. Neð-
anjarðarlestarstöð er Porte de
Clignancourt (lína 4) eða Porte de
St-Ouen (lína 13).
www.parispuces.com
www.discoverfrance.net
Waterlooplein-markaðurinn er
opinn alla daga nema sunnudaga.
Hægt er að taka sporvagna 9 og
14 á Waterloo-torgið. Skemmti-
legur flóamarkaður er á Noorder-
markt á mánudögum milli 9 og 1. Á
laugardögum er verslað með líf-
rænar vörur á sama stað milli 9 og
17. Hægt er að taka sporvagana 13,
14, 17 og 20 á Centraal Station og
fara út á Westerkerk-biðstöðinni.
www.visitamsterdam.nl
ingarun@mbl.is
Ertu á leiðinni til Parísar eða Amsterdam? Inga Rún Sigurðardóttir
mælir með nokkrum góðum flóamörkuðum til að gramsa í á.
Grafið eftir gullmolum
Hópferðamiðstöðin-Vestfjarðaleið efnir tilsumarferðar í beinu
leiguflugi til Nýfundnalands í
Kanada dagana 11.–19. ágúst nk.
Að sögn Kristjáns M. Bald-
urssonar, markaðs- og ferðafull-
trúa, hafa fjögurra daga haust-
ferðir fyrirtækisins til höfuð-
borgarinnar St. John’s á
umliðnum árum notið sívaxandi
vinsælda og er stefnt að þremur
slíkum ferðum í október-, nóv-
ember- og desembermánuðum.
Margir hafi hins vegar sýnt
áhuga á því að heimsækja þessar
slóðir að sumarlagi til að fá betra
tækifæri til að kynnast landinu og því
var afráðið að efna til sumarferðar í
ár.
Flogið verður með Boeing 757-200
þotu Flugleiða og er flugtíminn áætl-
aður rúmar þrjár klukkustundir.
Flugmiðinn með sköttum kemur til
með að kosta 38.500 krónur og gefst
Kanadamönnum jafnframt kostur á
að koma til Íslands á sama tíma.
Átta dagar nýtast ytra, hvort sem
menn kjósa að dvelja í höfuðborginni
St. John’s eða til ferðalaga um landið.
Farþegum gefst kostur á að taka þátt
í skipulögðum ferðum, þar með tal-
inni sex til sjö daga rútuferð með leið-
sögn á sagnaslóðir þar sem m.a. verð-
ur farið í þjóðgarðinn L’anse aux
Meadows þar sem Leifur heppni er
talinn hafa komið er hann fann Am-
eríku árið 1000.
Þá eru einnig tilboð fyrir þá sem
vilja ferðast á eigin vegum.
Nýfundnaland er eyja, litlu stærri
en Ísland, sem er mjög spennandi til
ferðalaga, að sögn Kristjáns. Með
Labrador á meginlandinu myndar
hún yngsta og austasta fylki Kanada.
Sumt minnir á náttúru Íslands, en
annað er mjög ólíkt. Meðalhiti sum-
armánuðina er talsvert hærri en hér
heima, náttúrufegurð er mikil og
gestrisni íbúa margrómuð.
Ganga, golf, veiði, siglingar
„Þetta er gósenland fyrir ævin-
týraþyrst útivistarfólk. Þarna er til
dæmis kjörið að stunda golf, göngur,
veiði og kajaksiglingar. Efnt verður
til tveggja gönguferða um tvo þekkt-
ustu þjóðgarða Nýfundnalands,
Terra Nova og Gros Morne, sem tal-
inn er einn sá fallegasti í Kanada.
Að sama skapi getur verið
skemmtilegur möguleiki að dvelja í
St. John’s og nýta tímann til að upp-
lifa borgina, umhverfi hennar og ekki
spillir hagstætt gengi Kanadadollars,
segir Kristján. Meðal annarra stefna
íslenskir skógræktaráhugamenn að
því að fjölmenna í ferðina undir
merkjum Skógræktarfélag Íslands
og verður heimsókn þeirra skipulögð
sér. Íslenskir náttúrufræðingar
verða fararstjórar í þeim hópi en
heimamenn koma til með að sjá um
leiðsögnina.
Rútunýjungar innanlands
Auk Nýfundnalands kemur Hóp-
ferðamiðstöðin-Vestfjarðaleið til með
að selja nokkrar flugferðir til Genfar
og Zürich í Sviss í sumar, líkt og und-
anfarin sumur, í samvinnu við sviss-
neskt leiguflug. Aftur á móti er stefnt
að því að brydda upp á þeirri nýjung
innanlands að bjóða Íslendingum upp
á dags- og helgarrútuferðir í sam-
vinnu við Ferðafélag Íslands. Nefna
má dagsferðir í Þórsmörk, helgar-
vorferð á víkingaslóðir á Snæfellsnesi
og helgarhaustferð í Núpsstaðarskóg
og Höfðabrekkuafrétt.
Beint leiguflug til
Nýfundnalands
Morgunblaðið/Einar Falur
Eftirlíking víkingaskála í þjóðgarðinum
L’anse aux Meadows á Nýfundnalandi.
www.vesttravel.is
www.gov.nl.ca/tourism/
www.st.johns.ca
HÓPFERÐAMIÐSTÖÐIN-VESTFJARÐALEIÐ