Morgunblaðið - 19.02.2005, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2005 55
DAGBÓK
Alþjóðahús býður til Þjóðahátíðar í Perl-unni í dag frá kl. 12–18, en í henni takaþátt fulltrúar 20 þjóðlanda auk ýmissaeinstaklinga sem starfa að málefnum
innflytjenda.
Hátíðin sem er liður í Vetrarhátíð Reykjavíkur
er tileinkuð minningu Snjólaugar Stefánsdóttur,
sem lést í fyrra, en hún starfaði ötullega að mál-
efnum innflytjenda, beitti sér mjög fyrir stofnun
Alþjóðahússins og átti sæti í fyrstu stjórn þess.
Markmið Þjóðahátíðar er að kynna það fjöl-
menningarlega samfélag sem Ísland er í dag og
hvaða áhrif fólk af erlendum uppruna hefur á
samfélagið; hvernig það auðgar menningu okkar
og stuðlar að fjölbreyttara mannlífi.
Þátttökuþjóðir í þjóðahátíð í ár eru: Angóla,
Ástralía, Búlgaría, Filippseyjar, Grænland, Ítalía,
Japan, Kanada, Kenýa, Kína, Nikaragva, Palest-
ína, Pólland, Rússland, Slóvenía, Sri Lanka, Sví-
þjóð, Túnis, Taíland og Víetnam.
Samhliða ýmsum menningarkynningum verður
boðið upp á fjölmenningarleg skemmtiatriði á
sviði. Má þar nefna búlgarska dansa, japanska og
kínverska bardagalist, taílenskan söng og dans,
filippseyskan söng og dans, rússneskan hljóð-
færaleik, sænskan kórsöng, grænlenskan
trommudans, dans frá Kenýa og arabískan maga-
dans. Kvikmyndir sem fjalla um málefni tengd
innflytjendum verða sýndar í sýningarsal í kjall-
ara Perlunnar. Þá verður boðið upp á lestur upp
úr barnabókum á japönsku, kínversku, singala og
arabísku. Einnig verða lesnir stuttir útdrættir úr
bókunum á íslensku. Undir lestrinum verður blað-
síðum úr bókunum varpað á tjald. Þeir sem hlusta
geta þá einnig séð myndskreytingar bókanna og
framandi letur viðkomandi tungumála.
„Ísland er og hefur ávallt verið fjölmenning-
arsamfélag, mismunandi mikið þó eftir tímabilum
í sögunni,“ segir Sigurður Þór Salvarsson, upplýs-
ingafulltrúi Alþjóðahúss. „Nægir að nefna að
landnámsmenn komu víða að, bæði frá Norð-
urlöndunum og Bretlandseyjum og eflaust víðar.
Fjölmenningarsamfélagið færir Íslandi stöðugt
nýja strauma í menningu og mannlífi og í þeirri al-
þjóðavæðingu sem við lifum við held ég að þessi
blöndun sé okkur bæði holl og nauðsynleg.
Við höfum að sama skapi margt fram að færa til
fjölmenningarsamfélagsins og erum sífellt að
reyna að koma okkur og okkar málefnum á fram-
færi líkt og aðrar þjóðir.“
Sigurður segir mikilvægt að auðvelda fólki sem
vill setjast að hér á landi aðlögun að samfélaginu.
„Þar er grundvallaratriði að greiða götu innflytj-
enda að íslenskunámi. Þetta á að vera ókeypis
nám fyrir þá sem þurfa á því að halda og við eig-
um stöðugt að sjá til þess að nægilegt framboð sé
af námsefni og námsframboði. Kannanir sýna að
langflestir innflytjendur vilja læra íslensku enda
vita þeir að lykillinn að því að vera virkur í sam-
félaginu er að hafa góð tök á tungumálinu.“
Fjölmenning | Alþjóðahús efnir til Þjóðahátíðar í Perlunni í dag
Mikilvægt að auðvelda aðlögun
Sigurður Þór Salvars-
son er fæddur í Reykjavík
árið 1955. Hann lauk námi
frá Blaðamannaháskól-
anum í Gautaborg 1983.
Sigurður hefur starfað við
fjölmiðla síðan hann lauk
námi, lengst af hjá Rík-
isútvarpinu, en nú gegnir
hann starfi upplýsinga-
fulltrúa Alþjóðahússins.
Sigurður er kvæntur Guð-
rúnu Öldu Harðardóttur lektor við Háskólann
á Akureyri og eiga þau þrjú börn.
Er biluð klukka rétt …
UNDANFARIÐ hefur það heyrst í
fjölmiðlum og víðar að hinir og
þessir, þ.m.t. alþingismenn, séu eins
og biluð klukka, hafi aðeins rétt fyr-
ir sér tvisvar á sólarhring!
Þetta þykir nokkuð fyndin sam-
líking en er hún rétt? Hversu lengi
getur stopp klukka verið rétt? Er
hún rétt í 1 klst.? Nei, segja flestir,
en er hún þá rétt í eina mínútu eða
eina sekúndu? Nei, á sama hátt get-
ur hún ekki verið rétt í eina sek-
úndu þar sem tíminn stöðvast ekki í
eina sekúndu. Það skiptir ekki máli
hvað settir eru margir aukastafir og
hversu brotið er lítið, klukkan er
ekki rétt í eina nanósekundu frekar
en 1 klst. eða 12 tíma vegna þess að
tíminn líður.
Niðurstaðan er því sú að þeir sem
halda því fram að klukkan sé rétt
tvisvar á sólarhring geta á sama
hátt reiknað út og haldið því fram
að hún sé rétt allan sólarhringinn!
Bara spurning um aukastafi.
Kannski umræddir aðilar og al-
þingismenn séu eins og biluð klukka
og hafi rétt fyrir sér allan sólar-
hringinn.
Ingi.
Íslendingar og RÚV
KÆRU landsmenn.
Athugið nú vel hvað við erum að
kalla yfir okkur. Að setja nefskatt
til að greiða afnotagjöldin með er
vafasamur kostur. Það myndi þýða
að allir sem eru komnir á skatt-
skyldan aldur greiða og við skulum
ekki láta okkur detta í hug að ef 2
eða fleiri búa á sama heimili verði
útkoman ekki dýrari en er í dag.
Kannski þurfum við ekki að hafa
fyrir því að fara með seðlana í bank-
ann en það væri líka það eina sem
áynnist með þessari leið. Þar að
auki er hægt að greiða þetta í gegn-
um bankalínu og með greiðslukorti
og greiðast þá gjöldin mánaðarlega
í stað á 3ja mánaða fresti með gíró-
seðli. Síðan má hugsa út í það að
RÚV er ein af fáum stofnunum sem
ekki setur seðilgjald á sína seðla.
Í dag hafa örorku- og ellilífeyr-
isþegar afslátt sem myndi falla nið-
ur við þessar aðgerðir. Það má líka
taka tillit til þess að einungis er
greitt einfalt gjald, sama hversu
mörg tæki eru á heimilinu. Sam-
keppnisaðilar RÚV taka gjald fyrir
hvern afruglara þó það sé lægra af
aukatækinu.
Við skulum bara vera stolt af
RÚV og greiða gjöldin okkar. Við
vorum ánægð 1966 þegar það hóf
rekstur sinn á sjónvarpi og við skul-
um meta það að þeir voru frum-
kvöðlar hér á landi fyrir þessa starf-
semi.
Áfram RÚV!
Áhorfandi.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
1. d4 d6 2. e4 g6 3. c4 Rd7 4. Rc3 e5 5.
Rf3 Bg7 6. Be2 Rgf6 7. Be3 Rg4 8. Bg5
f6 9. Bh4 Rh6 10. 0-0 0-0 11. dxe5 dxe5
12. b4 Rf7 13. c5 c6 14. Bc4 De7 15.
Db3 g5 16. Bg3 b6 17. Hfd1 bxc5 18. b5
cxb5 19. Rd5 Dd8 20. Dxb5 Kh8 21. h4
g4 22. Rh2 Rb6 23. Dxc5 Rxc4 24. Rc7
Rcd6 25. Rxa8 Bb7 26. Rc7 Dd7 27.
Rd5 Rxe4 28. De7 Dxe7 29. Rxe7 Red6
30. h5 He8 31. Rd5 f5 32. Bh4 e4 33.
Hac1 He5 34. Rf4 Ha5 35. Hc2 Be5 36.
Bg3 Kg7 37. Rf1 Kf6 38. Re3 Kg5 39.
Re6+ Kxh5 40. Bxe5 Hxe5 41. Rd8 f4
42. Rc4 Rxc4 43. Rxb7 Rb6 44. Hc5
Kg5
Staðan kom upp á alþjóðlegu skák-
móti sem lauk fyrir skömmu í Gíbralt-
ar. Búlgarski ofurstórmeistarinn Kiril
Georgiev (2.654) hafði hvítt og tókst að
koma í veg fyrir allt mótspil skoska
stórmeistarans Colins McNab (2.440)
með einfaldri fléttu. 45. Rd6! Hxc5 45.
... Kf6 hefði ekki verið álitlegra vegna
46. Hxe5 Rxe5 47. Rxe4+. Eftir texta-
leikinn er svarta staðan einnig töpuð.
46. Rxe4+ Kf5 47. Rxc5 h5 48. Hd4
Re5 49. Rd3 f3 50. Rxe5 Kxe5 51. Hd3
fxg2 52. Ha3 h4 53. Kxg2 Rd5 54.
Hxa7 Rf4+ 55. Kh2 Rd3 56. Kg1 Rf4
57. Hh7 h3 58. Hg7 Re2+ 59. Kh2 og
svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Bridshátíð.
Norður
♠K63
♥1043
♦G5
♣ÁG853
Vestur Austur
♠G875 ♠D109
♥ÁKD97 ♥G8652
♦8 ♦D4
♣D102 ♣974
Suður
Suður
♠Á42
♥--
♦ÁK1097632
♣K6
Tvímenningi Bridshátíðar lýkur í
kvöld á Hótel Loftleiðum, en á morgun
hefst sveitakeppnin – Icelandair Open
– og verður punkturinn settur aftan
við það mót á mánudagskvöld. Í þætti
gærdagsins sáum við að Bretinn Tony
Forrester er hallur undir það að spila
trompunum til enda – en Forrester
spilar nú á Bridshátíð eins og oft áður.
Hann segir sjálfur: „Renndu lang-
litnum þegar öll sund virðast lokuð.“
Sem minnir dálkahöfund á spil frá
Bridshátíð 2003. Tony var þá með suð-
urspilin og endaði í fimm tíglum eftir
heldur misheppnaðar sagnir. Vestur
spilaði út hjartaás og þegar blindur
kom upp sá Forrester strax að
slemma var á borðinu. En hann lét á
engu bera, trompaði hjartaásinn og
lagði niður tígulás. Spilaði svo tíg-
ulkóng.
Í tvímenningi er skiljanlegt að spila
þetta til enda, en spilið kom upp í
Flugleiðamótinu (sem er sveitakeppni)
og flestir myndu láta sér nægja að
leggja upp á tólf til þrettán slagi með
yfirlýsingu um að trompa út laufið. En
Forrester var að skemmta sér og þeg-
ar tígulkóngurinn kom á borðið lagði
vestur frá sér spilin til að íhuga fram-
haldið. Eftir nokkra umhugsun sá
vestur að hann mátti missa eitt hjarta.
Forrester spilaði þá tígultíu og enn
lagði vestur frá sér spilin, en henti
loks öðru hjarta, og það gerði austur
líka.
Enn kom Forrester með tígul og
enn á ný lagðist vestur undir feld og
íhugaði afkastið af kostgæfni. Þá gat
Forrester ekki stillt sig og sagði:
„Það eru fleiri á leiðinni!“
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Afmælisþakkir
Hjartans þakkir til ykkar, sem glöddu mig í til-
efni áttræðifmælis míns 9. febrúar sl.
Guð blessi ykkur öll.
Jóna G. Snævarr.
FRELSARINN er yfirskrift
ljósmyndasýningar Katr-
ínar Elvarsdóttur, sem opn-
uð var í gær í SÍM-húsinu í
Hafnarstræti 16. Titillinn
vísar að sögn listamannsins
til aðgerða nokkurra leið-
toga vestrænna ríkja í utan-
ríkismálum, „... þó sér-
staklega heimsvaldastefnu
þá sem Bandaríkin hafa
verið að móta með innrás-
inni í Írak og umræðum
þeirra um innrás í fleiri
lönd“.
Katrín Elvarsdóttir út-
skrifaðist frá Art Institute
of Boston árið 1993 og hef-
ur síðan tekið þátt í fjölda
samsýninga og haldið einkasýn-
ingar í Bandaríkjunum, Danmörku
og Íslandi. Einkasýning hennar
Minni var haldin í Hafnarborg
haustið 2004 og sýningin Mórar í
Listasafni Akureyrar 2002. Af
helstu samsýningum Katrínar má
nefna „Haunted“ í Gallery Korea í
New York 2003, „White, Black &
Shades of Gray“ í South Shore Art
Center í Massachusetts 2002 og
„Seasons of Icelandic Photog-
raphy,“ í Moscow House of Photo-
graphy í Rússlandi 2002.
Sýning Katrínar stendur til 28.
febrúar og er opin laugard. og sun-
nud. kl. 13–17, mánud.–föstud. frá
9 til 17.
Katrín Elvarsdóttir sýnir ljósmyndir í SÍM.
Frelsarinn í SÍM-húsinuStaðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Borgfirðingafélagið í Reykjavík | fé-
lagsvist í dag kl. 14 í Síðumúla 37, 3.
hæð. Aðalfundur að spilum loknum.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Að-
alfundur Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni, verður hald-
inn í Ásgarði, Glæsibæ, í dag kl. 13.
Venjuleg aðalfundarstörf. Ath. aðeins
þeir sem framvísa félagsskírteinum
hafa atkvæðisrétt. Félagar fjölmennið
og takið með ykkur gesti. Stjórnin.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Gönguhópur fer frá Kirkjuhvolskjall-
aranum kl. 10.30.
Hraunsel | Félagsstarfsemi í gangi
alla virka daga frá kl. 9–17.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Gönguhópur Háaleit-
ishverfis fer frá Hæðargarði 31 alla
laugardagsmorgna kl. 10 hvernig svo
sem veður og vindar blása. Boðið er
upp á teygjuæfingar og íslenskt vatn
að göngu lokinni. Tilvalin sam-
verustund fyrir alla fjölskylduna.
Upplýsingar í síma 568-3132.
Kirkjustarf
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Bænastund alla laugardag kl. 20.
Einnig eru bænastundir alla virka
morgna kl. 07–08. Ath. breyttir tímar
á morgunbænastundunum.
REYKJAVÍK Fashion tízkusýn-
ingin fer fram í Sundhöll Reykja-
víkur kl. 16 í dag, en ellefu íslenskir
hönnuðir taka þátt að þessu sinni
og þrír þeirra verða valdir áfram af
British Fashion Council sem
fulltrúar Íslands í Iceland Fashion
Week í ár.
Sýningin er öllum opin og er að-
gangur ókeypis. Fyrirsæturnar eru
allar íslenskar og koma þær frá
stærstu umboðsskrifstofum lands-
ins, Icelandic Models, Eskimo Mod-
els, Element Models og Model.is.
Sýningunni verður síðan lokið
með óvæntri uppákomu.
Reykjavík Fashion 2005