Morgunblaðið - 12.05.2005, Side 1
Hvað er
í matinn?
Dagur B. Eggertsson kaupir fisk á
Freyjugötunni | Daglegt líf
Viðskipti | Heimilin skulda bönkunum 369 milljarða Google
skoðar Kína Calidris á flugi Svipmynd Íþróttir | Olga úr leik
Örn ekki með í Andorra Tite og Roland í Stjörnuna
Gjafadagar
Nýtt kortatímabil
Opið til 21 í kvöld
12. - 22. maí
LESBÓK Morgunblaðsins, sem
fylgir blaðinu að jafnaði á laug-
ardögum, kemur út í sérútgáfu í dag
sem helguð er listsköpun Ólafs Elías-
sonar myndlistarmanns. Þessi
óvenjulega Lesbók er afrakstur sam-
starfs þriggja að-
ila við listamann-
inn, en þeir eru
KB banki og
Eiðastóll, auk
Morgunblaðsins.
Ólafur Elíasson
hefur vakið vax-
andi athygli á
undanförnum ár-
um fyrir myndlist
sína, en eftir vel
heppnaða sýningu hans í Túrbínusal
Tate Modern í London haustið 2003
hefur hann notið heimsfrægðar fyrir
óvenjuleg verk sem oft á tíðum hverf-
ast um samþættingu vísinda, náttúru,
samfélags og skynrænnar upplifunar.
Samstarf í fyrsta sinn
Samstarf atvinnulífsins og list-
heimsins hefur aukist umtalsvert hér
á landi á undanförnum árum og nú er
svo komið að atvinnulífið kemur að
kostun á list og menningarfram-
leiðslu með margvíslegum hætti,
bæði beint og óbeint. Þetta er í fyrsta
sinn sem Morgunblaðið gengur til
samstarfs við utanaðkomandi aðila til
þess að framleiða blað með þessum
hætti, en það er óvenju veglegt, 104
síður, og hannað sem ein listræn
heild. Textar eru bæði á íslensku og
ensku, enda verður blaðinu dreift er-
lendis í nokkur þúsund eintökum.
Í blaðinu gefur að líta ljós-
myndaverk Ólafs, Jökluseríuna –
skrásetningu listamannsins á Jökulsá
á Dal [Jöklu] frá jökulrótum að svæð-
inu þar sem verið er að byggja stífl-
una við Kárahnjúka og töluvert langt
áleiðis niður að sjó. Jökluserían mun
einnig koma við sögu á Listahátíð í
Reykjavík sem hefst um helgina, en
hún verður til sýnis í 101 gallery.
Eins og fram kemur í viðtali við lista-
manninn í blaðinu í dag, hefur hann á
undanförnum árum gert fjölmargar
ljósmyndaseríur af íslensku lands-
lagi. Þessi sería hefur þó í hugum
margra annarskonar vægi þar sem
um er að ræða landsvæði sem mikill
styr hefur staðið um og brátt mun
hverfa sjónum manna undir vatn.
Lesbókin
helguð
listsköpun
Landslag/miðopna
London. AP, AFP. | Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, var ákaft
fagnað og þykir hafa bætt verulega
stöðu sína í Verkamannaflokknum í
gær er þingflokkurinn kom saman í
fyrsta sinn eftir kosningarnar. And-
stæðingar Blairs höfðu krafist þess
að hann viki sem fyrst, hann væri
orðinn baggi á flokknum þar sem
ljóst væri að margir kjósendur hefðu
viljað refsa Blair fyrir Íraksstríðið.
Meirihluti flokksins í neðri deildinni
er nú aðeins 67 sæti en var 161.
„Sérhver sem leyfði sér að segja
að Blair væri eitthvað minna en full-
kominn var hrópaður niður,“ sagði
Ken Purchase, einn af þingmönnun-
um í gær. „Eftir þriðja kosningasig-
ur Verkamannaflokksins í röð er
ekki undarlegt að fólk slái um hann
[Blair] skjaldborg.“
Blair minnti á að stjórn hans hefði
þrátt fyrir allt haldið velli. „Ef við
látum eins og þetta hafi verið ósigur,
ekki sigur, verður niðurstaðan ekki
annars konar Verkamannaflokkur
heldur Íhaldið,“ sagði Blair og hvatti
til þess að flokkurinn héldi áfram að
treysta stöðu sína á miðjunni en ekki
„þjóta í þessa átt eða hina“.
Hann tjáði þingmönnunum að
hann myndi vinna að því að leiðtoga-
skipti í flokknum, þegar þar að
kæmi, færu vel fram. Almennt er bú-
ist við því að Gordon Brown fjár-
málaráðherra taki við af Blair. Blair
sagði að Verkamannaflokkurinn
gæti unnið fjórða kjörtímabilið í röð
ef flokksmenn stæðu saman.
Þingmenn hylltu Blair ákaft
MJÖG mikill verðmunur var á hæsta og
lægsta verði nær allra vörutegunda í verð-
könnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í tólf
matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu í
gær.
Af 44 vörum sem kannað var verð á var
yfir 100% munur í 15 tilvikum og yfir 50%
munur í 39 tilfellum. Bónus var langoftast
með lægsta verðið eða í 36 tilvikum af 44.
Tíu-ellefu var oftast með hæsta verðið eða í
29 tilfellum. Sjaldan hefur munað jafnmiklu
og nú fyrir neytendur á því hvar þeir gera
innkaupin til heimilisins, segir Henný Hinz,
verkefnisstjóri hjá verðlagseftirliti ASÍ.
Bilið
breikkar
Verðkönnun í tólf
matvöruverslunum á
höfuðborgarsvæðinu
Bónus með /24
VIRTASTA kvikmyndahátíð heims,
Cannes-hátíðin, hófst í gær og lýkur 22.
maí næstkomandi. Hundruð kvikmynda
eru sýndar á hátíðinni og eru tuttugu og
ein mynd í aðalkeppni hátíðarinnar.
Um 40.000 manns streyma ár hvert til
hátíðarinnar og umturnast þá Cannes,
sem er lítill og friðsæll bær við suður-
strönd Frakklands, í mikið markaðs- og
menningartorg þar sem framsækin kvik-
myndagerð af öllu tagi er á borð borin.
Skarphéðinn Guðmundsson, blaðamað-
ur Morgunblaðsins, er á staðnum og seg-
ir frá opnun hátíðarinnar sem sett var í
58. sinn í gær./48
Hátíðin hafin
EITT af þrem málverkum eftir simpans-
ann Congo frá árinu 1957 sem verða til
sölu á uppboði í London í júní. Congo var
eitt sinn nefndur „Cezanne apanna“.
Gagnrýnendur skilgreindu á sínum tíma
verkin sem abstrakt expressionisma.
AP
Sígildur simpansi
Jalalabad. AP, AFP. | Hermenn voru látnir taka sér
stöðu á götum Jalalabad í austanverðu Afganistan í
gær eftir að fjórir féllu og tugir manna slösuðust í
átökum við lögreglu sem urðu vegna frétta um að
bandarískir hermenn hefðu svívirt Kóraninn, helg-
asta rit múslíma. Á það að hafa gerst í Guantanamo-
fangabúðum Bandaríkjamanna á Kúbu. Talsmenn
stjórnvalda í Washington segja að verið sé að rann-
saka hvort orðrómurinn eigi við rök að styðjast.
Fullyrt er að Kóraninn hafi verið svívirtur við yf-
irheyrslur á stríðsföngum í búðum Bandaríkjahers
við Guantanamo-flóa á Kúbu til að skjóta föngunum
skelk í bringu. Fréttirnar birtust fyrst í tímaritinu
Newsweek en þar kom fram að í eitt skipti hefði síð-
um úr ritinu verið sturtað niður úr klósetti í búð-
unum.
Frásögnin af meðferðinni á Kóraninum hefur
valdið mikilli gremju víða í löndum múslíma. Fólkið
í Jalalabad brenndi brúðumyndir af Hamid Karzai,
forseta Afganistans, og George W. Bush Banda-
ríkjaforseta og æpti „Niður með Bandaríkin!“ Lög-
reglan hóf að skjóta upp í loftið til að dreifa mann-
fjöldanum en fólkið kveikti í tugum húsa, m.a. í
pakistönsku ræðismannsskrifstofunni og húsnæði
sænskra hjálparsamtaka. Varð mikið eignatjón í
átökunum og hafa flestir starfsmenn Sameinuðu
þjóðanna á staðnum verið fluttir á brott, að sögn
AFP-fréttastofunnar. Tvö hús samtakanna voru
brennd.
Kóraninn svívirtur?
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
FUNDUM Alþingis var frestað í
gærkvöld fram til september-
loka. Halldór Ásgrímsson for-
sætisráðherra las upp forseta-
bréf þess efnis á tólfta tímanum.
Áður hafði Alþingi samþykkt
fjölmörg lagafrumvörp. Halldór
Blöndal stýrði sínum síðasta
fundi í gær sem forseti þingsins.
Gert er ráð fyrir því að Sólveig
Pétursdóttir, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks, taki við starfi hans
næsta haust. Ögmundur Jón-
asson, þingflokksformaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, notaði tækifærið í
gær til að þakka Halldóri fyrir
prýðilegt samstarf og fyrir
framlag hans til þingsins. Sagð-
ist Ögmundur ekki hirða um að
ræða um hitt. „Mistök eru til að
læra af þeim og vítin eru til að
varast þau,“ sagði Ögmundur.
Hló þá þingheimur enda hefur
Halldór í forsetatíð sinni vítt
Ögmund fyrir ummæli sem hann
lét falla í umræðum á þingi.
Morgunblaðið/Þorkell
Þingmenn hylltu Halldór Blöndal, en hann stýrði sínum síðasta fundi í gær sem forseti Alþingis.
Alþingi slitið
Viðskipti, Íþróttir, Lesbók
♦♦♦
♦♦♦
STOFNAÐ 1913 127. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is