Morgunblaðið - 12.05.2005, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2005 15
FRÉTTIR
!
" # $"
%&&'
"((()
)
'*+
,
, -
-
)
. -
/
0
! /
/
-
0'
! 123456)
-78
%
0
)
19:37;4*3
0') -1<35=>??87:
099@ABBC>7D52EC93+1
''
%
FG
G
G GF GHG
-)
H0-
0
#
/0
-(- I
/
0'--
,
KLJ
. .
/
.
-
, ,
,
,
))))
%
%
%
(F
,
K
%
VIÐEYJARSTOFA verður opin um
hvítasunnuhelgina og mun Múla-
kaffi sjá um veitingasölu sam-
kvæmt samkomulagi við Árbæj-
arsafn og verða ferðir frá
Miðbakka og Sundahöfn. Enn hafa
þó ekki tekist samningar um var-
anlegan veitingarekstur í eyjunni.
Eins og kunnugt er bauð enginn í
veitingarekstur í eyjunni í útboði
sem fór fram í mars sl.
Guðný Gerður Gunnarsdóttur
borgarminjavörður segir að ekki
þurfi að bjóða reksturinn aftur út
þar sem verkefnið sé ekki útboðs-
skylt. Engu að síður hafi verið
ákveðið að bjóða reksturinn út til
að gefa áhugasömum aðilum kost á
að bjóða í verkefnið. Þar sem eng-
inn hafi boðið í reksturinn hafi ver-
ið rætt við Múlakaffi um að fyr-
irtækið taki að sér reksturinn en
samningar um það hafi ekki tekist.
Í útboðinu var gert ráð fyrir að
samið yrði um reksturinn til 41⁄2 árs
og hægt væri að framlengja samn-
inginn tvisvar um eitt ár í senn.
Ferðir út í Viðey um hvítasunnu-
helgina, laugardag, sunnudag og
mánudag, verða sem hér segir: Frá
Miðbakka Reykjavíkurhafnar kl. 13
og 14. Frá Viðey til Reykjavík-
urhafnar kl. 14.30 og 15.30. Frá
Sundahöfn kl. 13, 14, 15, 16 og 17.
Frá Viðey til Sundahafnar kl. 14.15,
15.15, 16.15 og 18.15. Reglubundn-
ar áætlunarferðir hefjast á þriðju-
deginum en samkvæmt annarri
áætlun.
Veitingar í Viðey
um helgina
VATNSTANKARNIR við Stýri-
mannaskólann hafa fengið nýtt
hlutverk en þar opnar Finnbogi
Pétursson sýningu á laugardag.
Finnbogi segist vinna með eld, súr-
efni, vatn og jörð, en sýningin er í
tveimur vatnstönkum. Verkin eru
hljóðverk en að sögn Finnboga hef-
ur staðið til lengi að setja upp sýn-
ingu í tönkunum. „Ég skoðaði tank-
ana fyrst fyrir nokkrum árum og
það hefur staðið til þennan tíma að
ég myndi vinna þarna,“ segir Finn-
bogi og bætir við að verkið hefði
aldrei gengið upp ef ekki væri fyrir
styrktaraðilana; Burðarás og Orku-
veituna.
Finnbogi segir að annar tank-
urinn sé fullur af vatni en hinum
megin hefur hann komið upp fjög-
urra metra langri eldlínu. Hann
notar síðan hljóðin úr náttúrunni til
að skapa hljóðverkið. „Það er dálít-
ið skemmtilegt að fara inn í tank-
ana. Þetta eru ferskvatnstankar
sem ekki hafa verið lagðir af op-
inberlega en hafa ekki verið í notk-
un síðan 1985,“ segir Finnbogi og
bætir við að tönkunum hafi verið
haldið mjög vel við.
Sýningin verður opnuð kl. 16 á
laugardag og stendur til 5. júní.
Eftir þann tíma verður hún opin
samkvæmt samkomulagi.
Morgunblaðið/Sverrir
Finnbogi Pétursson hefur sett upp listasýningu í vatnstönkunum við Há-
teigsveg. Sýningin verður opnuð nk. laugardag og stendur til 5. júní.
Vatnstankar fá nýtt og
listrænna hlutverk
VEGNA fréttar í Morgunblaðinu í
gær um kvikmyndafræðinám við
Háskóla Íslands vill Guðni Elísson,
dósent við hugvísindadeild, taka
fram að hann hefur aldrei verið
andvígur því að íslenskir kvik-
myndagerðarmenn beini augum að
Hollywood enda sé það hvorki ávís-
un á góðar né vondar myndir.
Guðni segir því að um misskilning
sé að ræða í frétt Morgunblaðsins í
gær þar sem haft er eftir honum að
íslenskar kvikmyndir séu heldur
mótaðar af Hollywood.
Að hans mati er íslensk kvik-
myndalist ennþá mótuð af evrópsk-
um viðmiðum og af sjálfstæðri,
bandarískri kvikmyndalist fremur
en af Hollywood enda þurfi gríð-
arlegt fjármagn til að framleiða
mynd í alvöru Hollywood-stíl. „Ég
er aftur á móti á þeirri skoðun (og
hér liggur misskilningurinn) að í
kvikmyndaneyslu Íslendinga sé
Hollywood full einráð og að sá stíll
sem þar ríki megi ekki vera eina
mælistikan sem íslenskir kvik-
myndahúsagestir og sjónvarps-
áhorfendur tileinka sér þegar meta
á gæði mynda. Það segir sig sjálft
að ef þau viðmið sem ríkja í Holly-
wood-myndum fá ein að ráða
einangrast íslenskur almenning-
ur jafnvel frá kvikmyndagerð sam-
landa sinna sem verður annarleg
og framandi,“ segir í athugasemd
frá Guðna þar sem jafnframt kem-
ur fram að með markvissu kvik-
myndafræðinámi sé hægt að kynna
fyrir nemendum gríðarlega fjöl-
breytni alþjóðlegrar kvikmynda-
listar í þeirri von að sú kennsla
skili sér smám saman út í sam-
félagið.
„Námi í kvikmyndafræðum við
hugvísindadeild Háskóla Íslands er
ætlað að opna augu nemenda fyrir
margbreytileika fjölþjóðlegrar
kvikmyndagerðar um leið og við
sinnum rækilega ýmsu sem kemur
frá Hollywood, bæði því besta sem
og kvikmyndum sem fyrst og
fremst hafa afþreyingargildi,“
bendir Guðni á og bætir við að ís-
lensk kvikmyndagerð skipi jafn-
framt mikilvægan sess í náminu.
Hollywood full-
einráð í kvik-
myndaneyslu
en ekki í kvik-
myndagerð
♦♦♦