Morgunblaðið - 12.05.2005, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2005 29
UMRÆÐAN
MANTRA ríkis-
stjórnarinnar hefur ver-
ið síðustu árin um að
„allt sé í stakasta lagi“
og þess vegna þurfi ekki
að breyta. Stuðnings-
menn Össurar Skarp-
héðinssonar hafa haldið
sömu möntru gangandi
um ágæti þess að halda
stöðunni óbreyttri. Þeg-
ar stjórnmálamenn eru komnir í
þann fasa að básúna um ágæti núver-
andi stöðu sem forsendu fyrir áfram-
haldandi áhrifum þeirra, er hættunni
boðið heim. Sem betur fer er það
okkar kjósenda að krefjast framtíð-
arsýnar og gera stöðuga kröfu um að
stjórnmálamenn leitist við að gera
betur.
Stöðugleiki í efnahagslífinu er góð-
ur en of mikill stöðugleiki í stjórn-
málum er til þess fallinn að stjórn-
málamenn gleyma sér í valdabuslinu
og framþróun stöðvast.
Ingibjörg er óhrædd
við að leita nýrra leiða
Það er grundvallaratriði að stjórn-
málamenn sem bjóða fram krafta
sína leiti stöðugt nýrra leiða til að
betrumbæta samfélagið, ætli þeir að
biðla til kjósenda. Stjórnmálaflokkur
þarf að hafa sterka sýn til framtíðar
og vera óhræddur við að leita nýrra
leiða til lausna á vandamálum. Fram-
tíðarhópur Samfylkingarinnar sem
hefur starfað innan flokksins er ein-
mitt sú leið flokksins að leita að nýj-
um leiðum, nýjum aðferðum til að
bæta hag þjóðarinnar. Það að ýta
framtíðarhópnum úr vör er gott
dæmi um hvernig stjórnmálamaður
Ingibjörg Sólrún er.
Ef flokkur á að ná árangri, þarf að
ná til sem flestra og nýta þann mann-
auð sem í flokknum býr til þess að ná
fram sem bestum árangri. Ingibjörg
hefur sýnt að hún á auðvelt með að
virkja fólk í kringum sig til starfa
sem er lykilatriði svo lýðræðið sé
skilvirkt.
Árangur í jafnréttismálum
– fyrirmynd annarra
Jafnrétti er ein af þremur meg-
instoðum í stefnu Samfylkingarinnar
og eitt brýnasta mannréttindamál
samtímans. Í forystu fyrir Reykja-
víkurlistann lagði Ingibjörg Sólrún
fram stefnu í jafnréttismálum fyrir
um áratug sem í dag er tekin til fyr-
irmyndar um stefnu og aðferðir sem
hafa sýnt árangur í jöfnuði milli
kynjanna. En betur má ef duga skal.
Samfylkingin þarf að komast til valda
í landsmálunum til þess að hægt sé að
beita sömu áherslum og framtíðarsýn
í jafnréttismálum á landsvísu.
Veðjum á framþróun
Í stjórnmálum eins og annars stað-
ar er hæfni til verka lögð á vogarskál-
arnar þegar kjósendur gera upp hug
sinn. Við í Samfylkingunni höfum nú
tækifæri til að velja okkur leiðtoga og
stjórnanda fyrir flokkinn okkar
næstu tvö árin. Val okkar getur haft
söguleg áhrif á stjórnmálalandslagið
í framtíðinni. Í mínum huga er eng-
inn vafi á því að Ingibjörg Sólrún
verður kröftugur og sterkur formað-
ur Samfylkingarinnar. Ég hvet því
alla flokksmenn að taka þátt í for-
mannskosningunni og
veðja á framþróun en
ekki stöðnun.
Kjósendur Samfylk-
ingarinnar og kjós-
endur Reykjavíkurlist-
ans hafa sýnt að þeir
treysta Ingibjörgu Sól-
rúnu. Hún hefur sýnt í
verki að hún getur haft
forystu fyrir breyt-
ingum. Stjórnmála-
menn án trausts geta
ekki leitt samtíð sína á
vit nýrra tíma.
Sterk sýn á jafnrétti, fram-
kvæmd sem hefur skilað árangri
Bryndís Ísfold Hlöð-
versdóttir fjallar um
formannskjör Sam-
fylkingarinnar
’Ingibjörgu Sólrúnu ertreystandi til að breyta
landslagi íslenskra
stjórnmála. Nýtum at-
kvæðisrétt okkar, Sam-
fylkingarfólk.‘
Bryndís Ísfold
Hlöðversdóttir
Höfundur er formaður jafnrétt-
isnefndar Reykjavíkurborgar og fé-
lagi í Samfylkingunni.
❖ Opið virka daga 10-18
❖ Laugardaga 10-16
Nýbýlavegi 12
Kópavogi
s. 554 4433
Föt fyrir
allar konur
Nýju sláttutraktorarnir frá
eru komnir
Atvinnumenn, garðeigendur,
verktakar, bæjarfélög
og sumarbústaðaeigendur:
Nýja KUBOTA GR-línan er
fyrir þá sem gera kröfur.
Nánari upplýsingar
veita sölumenn.
ÞÓR HF | Ármúla 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor. is
OPNUNARTÍMAR UM HVÍTASUNNUHELGINA
OPIÐ Á LAUGARDAG 10.00-17.00
LOKAÐ SUNNUDAG OG MÁNUDAG
BÆJARL IND 12 - S : 544 4420
201 KÓPAVOGUR
Falleg garðhúsgögn
úr gegnheilu tekki
-20%
Stækkanlegt borð (120cm x 120cm + 60cm)
og sex staflanlegir stólar
Verð : 83.400.-
Tilboðsverð:
66.720.-
-20%
Átthyrnt borð (120cm x 120cm)
og fjórir klappstólar
Verð : 47.500.-
Tilboðsverð:
38.000.-
-10%
Sefgras sófasett 3+1+1 (sessur fylgja)
Verð : 144.000.-
Tilboðsverð:
129.600.-
-20%
Washington bekkur
Verð : 42.000.-
Tilboðsverð:
33.600.-
Fáanlegar í 3 litum
í garðhúsgögn
Sessur