Morgunblaðið - 12.05.2005, Page 32
32 FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Sigurður Jónssonfæddist í Reykja-
vík 4. janúar 1925.
Hann lést á Land-
spítala – háskóla-
sjúkrahúsi í Fossvogi
3. maí síðastliðinn.
Faðir hans var Jón
Sigurðsson raffræð-
ingur, f. 22. febr.
1884, d. 4. júlí 1928,
sonur Sigurðar Jens-
sonar prófasts í Flat-
ey á Breiðafirði, og
Guðrúnar Sigurðar-
dóttur. Móðir Sig-
urðar var Ólöf Guð-
rún Sigurðardóttir, f. 7. febr.
1903, d. 14. júní 1954, dóttir Sig-
urðar Bjarnasonar, sjómanns í
Reykjavík, og Oddnýjar Sigríðar
Jónasdóttur. Fósturfaðir Sigurð-
ar var Albert P. Goodman sendi-
ráðsfulltrúi, f. 22. okt. 1906, d. 24.
júní 1967, sonur Lárusar Guð-
mundssonar og Ingibjargar Guð-
mundsdóttur í Winnepeg í Kan-
ada. Systir Sigurðar er Oddný
Sigríður Jónsdóttir, f. 28. okt.
1926.
Sigurður kvæntist 11. ágúst
1951 Guðlaugu Ágústu Hannes-
dóttur, f. 4. mars 1926. Börn
þeirra eru: 1) Jón Sigurðsson, f.
11. nóv. 1954, kvæntur Unu Ey-
þórsdóttur, f. 23. febr. 1955; dæt-
ur þeirra eru Hjördís og Ásdís. 2)
Hannes Sigurðsson, f. 3. mars
1960, kvæntur Sesselju Guð-
mundsdóttur, f. 29. sept. 1961;
dætur þeirra eru Guðný og Hug-
rún. 3) Ólöf Guðrún Sigurðardótt-
ir, f. 17. okt. 1961. 4)
Albert Páll Sigurðs-
son, f. 17. okt. 1961,
kvæntur Rannveigu
Sigurðardóttur, f. 3.
nóv. 1962. Dóttir Al-
berts er Ingibjörg,
móðir Iðunn Gests-
dóttir. Albert og
Rannveig eiga börn-
in Sigurð Jens, Þor-
stein Ívar og Guð-
laugu Evu.
Sigurður lauk
stúdentsprófi frá
stærðfræðideild
Menntaskólans í
Reykjavík 1945. Hann lauk námi í
lyfjafræði (Exam. pharm) frá Há-
skóla Íslands 1949. Hann var í
verknámi í Ingólfsapóteki árin
1946–1949 og lauk Cand. pharm
námi frá Danmarks Farmaceut-
iske Høgskole 1953. Sigurður var
aðstoðarlyfjafræðingur í Apóteki
Vestmannaeyja og Ingólfsapóteki
1949–1951. Hann var lyfjafræð-
ingur í Ingólfsapóteki 1953–l955
og í Vesturbæjarapóteki l955–
1967. Sigurður hóf störf hjá H.
Ólafsson & Bernhöft fyrir Ho-
echst Danmark A/S árið 1967 og
vann við það fyrirtæki til starfs-
loka 1993.
Sigurður var prófdómari í
lyfjafræði lyfsala við Háskóla Ís-
lands 1964–1967 og ritari Lyfja-
fræðingafélags Íslands 1959–
1960.
Útför Sigurðar verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Af eilífðar ljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en augað sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
(Einar Ben.)
Í dag kveðjum við elskulegan
tengdaföður til margra ára, Sigurð
Jónsson. Þegar við kynntumst hon-
um fyrst var hann á miðjum aldri,
börnin komin til manns og barna-
börnin að koma til sögunnar.
Það sem einkenndi Sigurð, eða
Sigga eins og hann var jafnan kall-
aður í okkar hópi, var áhuginn á öll-
um nýjungum, sérstaklega ef það
tengdist vísindum eða tæknibúnaði.
Ljósmyndun var á árum áður eitt af
hans helstu áhugamálum, enda hafði
hann næmt auga fyrir myndefninu.
Hann var góður faðir og ávallt
reiðubúinn til þess að aðstoða og út-
rétta fyrir börnin sín og síðar barna-
börn. Siggi var einstaklega blíður og
tilfinninganæmur maður og sagði
sjálfur að falleg tónlist gæti auð-
veldlega grætt hann. Það var einnig
stutt í glettnina og var hann hrókur
alls fagnaðar á mannamótum.
Allt sem hann tók sér fyrir hend-
ur var gert af mikilli fagmennsku og
nákvæmni, sama hvaða málefni voru
tekin fyrir voru þau skráð í tölvuna
og afrit sett í skjalaskáp. Siggi starf-
aði sem lyfjafræðingur í apóteki
Vestmannaeyja, Ingólfsapóteki og
Vesturbæjarapóteki. Síðar starfaði
hann hjá H. Ólafsson & Bernhöft
fyrir þýska fyrirtækið Hoechst hér á
Íslandi og gerði það af mikilli trú-
mennsku og alúð, enda fannst fjöl-
skyldunni stundum nóg um þegar
umræður um fyrirtækið og velferð
þess áttu sér stað innan veggja
heimilisins.
Líf Sigga var ekki alltaf dans á
rósum því hann missti föður sinn
þriggja ára gamall og varð móðir
hans ekkja aðeins 25 ára með tvö lít-
il börn, Sigurð og systur hans Odd-
nýju á öðru ári. Það var einkar kært
á milli systkinanna og nutu þau um-
hyggju Guðrúnar föðurömmu, Ólaf-
ar föðursystur og manns hennar
Ólafs Sveinssonar í Garðastræti þar
sem þau bjuggu öll. Síðar giftist
móðir hans Alberti P. Goodman og
gekk hann þeim systkinum í föður-
stað og reyndist þeim góður faðir.
Siggi sagði okkur oft frá sveitar-
dvöl sinni í Breiðuvík á Snæfellsnes-
inu þar sem hann var ein níu sumur.
Sú dvöl mótaði hann og skildi eftir
sig góðar minningar, enda heimsótti
Siggi sveitina sína á hverju ári.
Leiðin lá í Menntaskólann í Reykja-
vík og hefði hann fagnað 60 ára stúd-
entsafmæli á þessu ári. Að loknu
stúdentsprófi fór hann í lyfjafræði
við Háskóla Íslands og eftir útskrift
vann hann í nokkur ár til þess að
geta farið í framhaldsnám í lyfja-
fræði til Danmerkur, en þaðan út-
skrifaðist hann 1953 við góðan orðs-
tír.
Ekki verður rætt um Sigga án
þess að minnast á lífsförunaut og
eiginkonu hans Guðlaugu Ágústu
Hannesdóttur, sem var án efa mesta
gæfa hans í lífinu. Þau hjónin voru
samtaka í því að koma börnum sín-
um til manns og höfðu með sér
óformlega verkaskiptingu í því efni.
Siggi sá um útréttingar en Lauga
um uppeldið og hélst sú skipting alla
tíð. Ekki verður þó annað sagt en að
þetta samstarf hafi heppnast með
ágætum og má sjá árangurinn í
frambærilegum börnum og sterkum
fjölskylduböndum. Okkur tengda-
dætrunum var einstaklega vel tekið
og hefur það veitt okkur mikla
ánægju að verða hluti af fjölskyld-
unni.
Við kveðjum góðan tengdaföður
með söknuði og þökkum fyrir sam-
veruna. Minning þín er ljós í lífi okk-
ar.
Una Eyþórsdóttir,
Sesselja Guðmundsdóttir,
Rannveig Sigurðardóttir.
Við barnabörnin minnumst afa
Sigga af mikilli ást og hlýhug og
fannst okkur hann vera besti afi í
heimi. Hann sýndi okkur ætíð blíðu
og væntumþykju og var óspar á að
hrósa okkur og hvetja.
Afi Siggi var glaðlyndur og
skemmtilegur. Hann elskaði tæki og
tól og augu hans ljómuðu þegar
hann sagði okkur frá nýjustu tækni
og vísindum. Afi var mikill sælkeri
og deildi þeim áhuga með barna-
börnunum. Hann var einnig mikill
dýravinur og náttúruunnandi.
Við áttum margar góðar stundir
með afa og ömmu heima hjá þeim
þar sem við gistum oft og ýmislegt
var brallað og einnig á ferðalögum
um landið. Við minnumst góðra
stunda í Flatey á Breiðafirði með afa
Sigga, Ossý frænku og fjölskyldum
þeirra þegar unnið var að uppbygg-
ingu Klausturhóla, sem afi þeirra
systkina, séra Sigurður Jensson,
hafði byggt.
Afi var mjög veikur síðustu mán-
uðina og fannst okkur hann kveðja
allt of fljótt. Við munum sakna hans
innilega, en minningin um góðan afa
lifir áfram.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring,
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Hvíldu í friði, elsku afi.
Hjördís, Ásdís, Guðný, Hugrún,
Ingibjörg, Sigurður Jens,
Þorsteinn Ívar, Guðlaug Eva.
Andlát Sigurðar Jónssonar mágs
míns kom ekki óvænt. Hann hafði
átt við alvarleg veikindi að stríða
undanfarin misseri, sem unnið höfðu
hægt og bítandi á þreki hans og lífs-
þrótti. Margar eru þær minningar,
sem upp í hugann koma eftir yfir
hálfrar aldar kynni eða frá því er
systir mín Guðlaug og hann gengu í
hjónaband sumarið 1951. Þá kynnt-
ist ég Ólöfu móður Sigurðar og fóst-
urföður Alberti Goodman og hinu
glæsilega og listræna heimili þeirra
í Garðastræti. Í sama húsi bjó föð-
ursystir Sigurðar, Ólöf Sigurðar-
dóttir og maður hennar Ólafur
Sveinsson, skipaskoðunarstjóri.
Það var mikill lærdómur og
reynsla, sem fylgdi því að tengjast
fjölskylduböndum þessu merka
fólki. Ljúfmennska Ólafar móður
Sigurðar og Alberts manns hennar
var einstök og miklir höfðingjar
voru þau heim að sækja. Minnisstæð
eru mér málverkin eftir okkar
fremstu myndlistarmenn, sem
prýddu veggi heimilisins.
Afi Sigurðar var Sigurður Jens-
son prófastur í Flatey á Breiðafirði.
Einhver fallegasta mannlýsing, sem
ég hef augum litið, er lýsing Hall-
dórs Kiljans Laxness á séra Sigurði.
Honum kynntist Halldór innan við
tvítugt, þegar hann kom til Flateyj-
ar í fyrst sinn. Í bók sinni Dagleið á
fjöllum segir hann frá kynnum sín-
um „af þessum þögula höfðings-
anda, þessum suðræna öðlingi með
SIGURÐUR
JÓNSSON
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is
Okkar elskulegi faðir, tengdafaðir, afi, langafi,
bróðir og mágur,
JÓN B. KVARAN
loftskeytamaður,
Laugarásvegi 66,
Reykjavík,
andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut miðvikudaginn 4. maí.
Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 13. maí kl. 11.00.
Hrafnhildur E.K. Egilsson,
Gunnar Ó. Kvaran, Sigríður Þ. Kvaran,
Elísabet M. Kvaran, Þorvaldur G. Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
KRISTINN GUÐLAUGUR
HERMANNSSON,
Jörfalind 4,
Kópavogi,
áður til heimilis Molastöðum,
Fljótum,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn 13. maí kl. 13.00.
Inga Jóna Stefánsdóttir,
Sigríður Sóley Kristinsdóttir, Bjarni Heimir Traustason,
Heiðrún Meldal Kristinsdóttir,
Selma Hrönn Kristinsdóttir, Ólafur Kári Júlíusson,
Stefán Þór Kristinsson
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, teng-
dafaðir og afi,
SIGFÚS MAGNÚS STEINGRÍMSSON,
Fossvegi 15,
Siglufirði,
verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 14. maí kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlega
bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Sædís Eiríksdóttir,
Steingrímur Sigfússon, Kolbrún Jónsdóttir,
Ester Sigfúsdóttir, Jón Jónsson,
Eiríkur Sigfússon, Margrét Kristinsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
JÓNA M. SIGURJÓNSDÓTTIR,
Skildinganesi 4,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Neskirkju föstudaginn
13. maí kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
líknarsjóði barna.
Þórður M. Adólfsson,
Sólborg H. Þórðardóttir, Atli Karl Pálsson,
Sigurjón Þórðarson, Hrafnhildur Garðarsdóttir,
Ragnheiður M. Þórðardóttir, Jón Oddur Magnússon,
Gróa María Þórðardóttir, Baldvin Kárason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
ELÍN J. JÓNASDÓTTIR
kennari,
Sóltúni 2,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 10. maí sl.
Jarðarförin fer fram frá Háteigskirkju miðviku-
daginn 18. maí kl. 13.00.
Jónas Finnbogason, Kristín Arnalds,
Edda Finnbogadóttir, Guðgeir Pedersen,
Matthías Axelsson.