Morgunblaðið - 12.05.2005, Side 46
46 FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.003
WWW.BORGARBIO.IS
Frá leikstjóra
Die Another Day
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.I 12 ÁRA
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.I 12 ÁRA
TV
Kvikmyndir.is
KINGDOM OF HEAVEN
ORLANDO BLOOM
Ridley Scott, leikstjóri
Gladiator, færir
okkur eina
mögnuðustu mynd
ársins!
ÓÖH DV
Orlando Bloom, Liam
Neeson og Jeremy
Irons fara á kostum í
epískri stórmynd.
Missið ekki af þessari
KINGDOM OF HEAVEN
ORLANDO BLOOM
Ridley Scott, leikstjóri
Gladiator, færir
okkur eina
mögnuðustu mynd
ársins!
Orlando Bloom, Liam
Neeson og Jeremy
Irons fara á kostum í
epískri stórmynd.
Missið ekki af þessari
Sýnd kl. 4 og 6. m. ísl taliSýnd kl. 10.15 . B.i. 14 ára. Sýnd kl. 8 og 10.30.
Skráðu þig á bíó.is
Sýnd kl. 5.45 og 8.
kl. 4, 7 og 10.
Sýnd kl. 5, 8 og 11. B.i. 16 ára.
Frá leikstjóra
Die Another Day
Sýnd kl. 5.20 , 8 og 10.45. B.I 16 ÁRA
HL mbl
HL mbl l
DIARY OF A
MAD BLACK
WOMAN
P
latan Army of Sound-
waves er frumraun
rokksveitarinnar Lok-
brár, sem hefur vakið
athygli fyrir kraftmikla
spilamennsku. Platan er komin í
búðir og er formlegur útgáfudagur
hennar í dag, á afmælisdegi móður
Trausta Laufdal Aðalsteinssonar,
söngvara og gítarleikara sveit-
arinnar.
Þessi plata á sér nokkurn aðdrag-
anda en sveitin hefur starfað í nokk-
ur ár eins og Trausti og Óskar Þór
Arngrímsson trommuleikari upp-
lýsa í viðtali. Upphafið var samstaf
Baldvins Albertssonar hljómborðs-
leikara og Óskars en þeir störfuðu
saman að gerð tölvutónlistar þegar
þeir rákust á Trausta, sem þá var í
hljómsveitinni Moðhaus. „Við sáum
þarna gríðarlega hæfileika og stál-
um honum. Við urðum að fá hann,“
segir Óskar en þá tók við leit að
bassaleikara.
Oddur Ingi Þórsson smellpassaði
inn í hljómsveitina og hafa þeir
starfað fjórir saman sem einn mað-
ur síðustu þrjú árin eða svo. „Við
vorum búnir að sætta okkur við
engan bassaleikara og vorum farnir
að spila með hljómborð, gítar og
trommur. Oddur krafðist þess að
mæta á æfingu og við sömdum Nos-
irrah þá. Eftir þetta kvöld var hann
endanlega kominn í bandið,“ segir
Trausti en lagið sem hann ræðir um
er „Nosirrah Egroeg“ (George
Harrison afturábak), og naut mik-
illa vinsælda síðasta sumar. „Við
vorum allir að syrgja Harrison mik-
ið en þetta var skömmu eftir að
hann dó. Við ákváðum að búa til lag
honum til heiðurs,“ segir Óskar.
Óslítanleg keðja
Samstarfið gengur vel og líkir
Óskar sambandinu við „óslítanlega
keðju,við erum orðin heildin sem við
vorum að leitast eftir að vera“ og
kallar Trausti sambandið „fullkom-
inn her“. „Við pössum saman fé-
lagslega og andlega, getum hangið
saman öllum stundum,“ segir Óskar
og tekur Trausti undir þetta, „við
erum tengdir við sömu bylgjuna“ en
þessi samstilling skilar sér á tón-
leikum.
Strákarnir eru líka fæddir sama
ár, 1983, og fagna því 22 ára afmæli
á árinu. „Baldvin og Trausti eru
fæddir sama dag, 1. maí, þannig að
við erum byltingarbörn,“ segir Ósk-
ar.
Lögin á plötunni eru sum nokkuð
gömul. „Fólk getur hlustað á plöt-
una og farið yfir ágrip af síðustu
þremur árum hjá okkur,“ segir Ósk-
ar en elsta er „Nosirrah Egroeg“ en
það yngsta er „Stop the music“, sem
komst hátt á lista hjá Xfm og hefur
myndband við lagið líka verið í spil-
un á PoppTíví.
„Rás 2 gerir mikið fyrir íslenska
tónlist og Xfm er byrjað að spila
mikið af nýrri íslenskri tónlist. Ís-
lendingar hafa áhuga á Íslendingum
og hvað þeir eru að gera.
Fólk vill heyra íslenska tónlist,“
segja þeir.
„Stop the music“ er tekið upp síð-
asta sumar þegar dansrokkararnir í
Franz Ferdinand hljómuðu hvar-
vetna. „Þetta er svo mikið sumarlag.
Við vorum í diskófílíng,“ segir Ósk-
ar. „Við gátum ekki losnað við hann
fyrr en við gáfum lagið út,“ bætir
Trausti við.
Strákarnir í Lokbrá pæla mikið í
tónlist og segjast þeir lifa og hrær-
ast í tónlist. „Við verðum að prófa
allt, hvort sem það er sinfónía eða
sítar, söngkonur eða tölvutónlist, þó
það sé ekki nema eitt lag,“ segir
Trausti enda prófar Lokbrá sig
áfram með ýmsar tónlistarstefnur á
plötunni. „Þetta er kántrí, diskó,
rokk og ról, blús, þjóðlagatónlist,
ballöður, popp,“ segir Óskar en
samt sem áður hefur Lokbrá mjög
ákveðinn hljóm.
Áhrifavaldarnir eru margir en
þeir segjast líka hafa áhrif hver á
annan. „Fyrst vorum við að leita eft-
ir áhrifum en núna hlustum við á
hver annan. Við spilum mikið á til-
finningar okkar og leitum meira
inná við en útávið. Við erum alltaf að
reyna að bæta okkur sem menn,“
segja þeir.
Spila með hjartanu
„Við liggjum ekki yfir neinum
nótum,“ segir Óskar og Trausti
bætir við: „Venjulega þegar við tök-
um lög sem við eigum ekki er okkur
bent á að við séum að spila þau vit-
laust. Okkur er alveg sama. Við för-
um ekki eftir neinum kerfum. Við
brjótum reglurnar og búum til okk-
ar eigin,“ segir hann og skýtur inn
að það geti verið ástæðan fyrir Lok-
brárhljómnum.
„Við spilum nákvæmlega það sem
okkur langar til að spila. Það er eng-
in músíklögregla sem bannar okkur
að gera eitthvað,“ segir Óskar.
„Maður heyrir muninn á lærðum
hljómsveitum og hljómsveitum eins
og okkur sem kunna ekkert svo
mikið. Við þurfum að spila á tilfinn-
ingarnar,“ segir Trausti og Óskar
tekur við: „Þetta er spurningin
hvort þú spilar með hausnum eða
hjartanu.“
„Við vorum ekkert rosalega klárir
þegar við hittumst fyrst,“ segir
Trausti. „Það nennti enginn að spila
með mér og ég nennti ekki að spila
einn. Það var svo gaman að hitta
þessa menn sem nenntu að spila og
mæta á æfingar og voru með metn-
að. Maður varð betri og betri með
hverri æfingunni,“ segir Óskar.
Þeir segjast læra mikið á því að
hlusta á eigin tónlist. „Við höfum
lært að hlusta á það sem maður er
að gera, ekki bara spila það,“ segir
Óskar.
„Við hlustum mikið á okkur sjálfa
og pælum mikið í okkar eigin tón-
list. Það er fátt sem ég hlusta á
meira en okkur. Það er gaman ef
maður getur lært af sjálfum sér,“
segir Trausti en vinnuferlið fer því
oft fram á milli æfinga. „Við erum
alltaf með hugann við Lokbrá. Þetta
gefur okkur svo mikið,“ segir Óskar
Þeir semja því lögin í sameiningu
en Trausti semur textana enda
syngur hann þá. „Það væri meiri
uppgerð ef maður væri alltaf að
syngja annarra manna texta.“
„Þetta er órjúfanlegur hringur,
það er enginn stóri kallinn eða litli
Tónlist | Fyrsta plata Lokbrár, Army of Soundwaves, kemur út í dag
Hamingjusöm
hljómsveit
Trausti Laufdal Aðalsteinsson og Óskar Þór
Arngrímsson úr Lokbrá upplýsa Ingu Rún
Sigurðardóttur um hvernig ung rokksveit í
Reykjavík starfar og segja frá hvernig her
hljóðbylgnanna myndaðist.
Ljósmynd/Sigurjón Guðjónsson
Óskar, Baldvin, Oddur og Trausti í íslenskri fjöru en þessi mynd prýðir
umslagið á nýju plötunni. Lokbrá hefur tekið þjóðlög á tónleikum og hefur
séríslenskan hljóm og er þjóðlegt umslag því við hæfi.