Morgunblaðið - 12.05.2005, Page 48
48 FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Byggð á metsölubók
Clive Cussler
3 ÓSKARSTILNEFNINGAR
MBL
Ó.H.T Rás 2
Ó.H.T Rás 2
Sláandi sálfræðitryllir eins og hann gerist bestur. Með
Óskarsverðlaunahafanum, Adrien Brody (ThePianist) og Keira
Knightley úr „Pirates of the Caribbean” og „King Arthur”.
FURÐULEGASTA ÆVINTÝRI ALHEIMSINS HEFST
ÞEGAR JÖRÐIN ENDAR
The Hitchhiker´s Guide to the Galaxy kl. 5.45 - 8 - 10.15
The Jacket kl. 5.50 - 8 - 10.10 b.i. 16
The Motorcycle Diaries kl. 8 og 10.30
Maria Full og Grace kl. 6 - 10 b.i. 14
Napoleon Dynamite kl. 8
Vera Drake kl. 10
Geggjaðasta og frumlegasta
grínmynd ársins er komin í
bíó.Byggð á einni vinsælustu bók
alheimsins eftir Douglas Adams.
Algjör bíósmellur bæði í
USA og á Bretlandi.
l j í ll i í
l i
S.V. MBL
Kvikmyndir.is
DV
Rómantísk gamanmynd með debra messinger úr will og grace þáttunum
Heilagasta trúarhátíð þeirrasem tilbiðja kvikmynda-listina hófst í gær með til-
heyrandi helgiathöfnum í Cannes
í Frakklandi; sýningu á opn-
unarmyndinni, kynningu á dóm-
nefnd og almennu fjölmiðlafári og
stjörnufans.
Reyndar var glansinn yfir opn-
uninni í ár ekki nándar nærri því
eins mikill og oft áður, sem skrif-
ast aðallega á það að opn-
unarmyndin, franska myndin
Læmingi (Lemming), reyndist
ekki eins aðgengileg og stjörnum
prýdd og opnunarmyndir síðustu
ára. Þar er nefnilega á ferð myrk-
ur sálfræðitryllir með gráglettn-
um undirtóni eftir Dominik Moll,
sem gat sér gott orð um heim all-
an fyrir síðustu mynd sína Harry,
un ami qui vous veut du bien, sem
segja má að hafi slegið í gegn eft-
ir að hafa verið frumsýnd á
Cannes-hátíðinni árið 2000. Talað
er um að með Lemming hafi verið
ansi djarflega valið; því myndin er
ekki einasta býsna þungmelt held-
ur skortir hana eiginlegar alþjóð-
legar stórstjörnur kvikmyndanna.
Reyndar eru aðalleikararnir fjór-
ar stórstjörnur í heimalandinu og
vel kunnir meðal þeirra sem að-
hyllast það sem stundum er kallað
listrænar kvikmyndir.
Charlotte Rampling er þeirrakunnust en líkt og Andre
Dussolier þá á hún að baki langan
og farsælan feril. Charlotte
Gainsbourg er orðin kunnari fyrir
annað og meira en að vera bara
dóttir Serge Gainsbourg og Jane
Birkin því hún hefur leikið í á
þriðja tug kvikmynda og leikur
m.a. í væntanlegum myndum eftir
Michel Gondry og Todd Haynes.
Þá er Laurent Lucas einn af eft-
irsóttustu leikurum Frakka um
þessar myndir og er líklega kunn-
astur fyrir að hafa leikið aðal-
hlutverk í Harry, un ami qui vous
veut du bien.
Hér er á ferð margslungin, dul-
arfull og um margt spennandi
mynd sem á hraða snigilsins tekur
ótrúlega margar ófyrirsjáanlegar
og óræðnar beygjur. Myndin segir
frá ungum efnilegum verkfræð-
ingi sem allt virðist ganga í hag-
inn. Hann á unga fallega eig-
inkonu sem styður við bakið á
honum, þau eiga nýtt hús í góðu
rólegu hverfi, allt gengur að ósk-
um í vinnunni og hann virðist í
sérstöku uppáhaldi hjá yfirmanni
sínum. Svo miklu að yfirmaðurinn
býður sér og eiginkonunni í mat
til hjónanna ungu. Við borðhaldið
sýður upp úr milli yfirmannsins
og eiginkonu hans og þau hrökkl-
ast á brott, hinum ungu hjónum
til mikillar undrunar. Sama dag
stíflast vaskurinn og ungi verk-
fræðingurinn finnur þar í píp-
unum lítið nagdýr sem við nánari
grennslan reynist vera læmingi,
dýr sem hvergi er að finna annars
staðar en norðarlega í Skandinav-
íu. Þar með er hafin stjórnlaus og
ófyrirsjáanleg atburðarás sem á
eftir að hafa veruleg áhrif á líf
hins unga verkfræðings sem taldi
sig hafa allt á hreinu.
„Það heillaði mig að gera mynd
um mann í fullkomnu jafnvægi,
mann með fulla stjórn á lífi sínu,
að hann heldur, sem síðan missir
algjörlega fótanna án þess að
hann hafi hugmynd um hvers
vegna. Að steypa manni rök-
hyggjunnar inn í fullkomlega
órökrétta atburðarás,“ sagði leik-
stjórinn Moll við blaðamenn að
lokinni blaðamannasýningunni í
gærmorgun. Viðtökur blaða-
manna við myndinni voru álíka
óræðnar og myndin sjálf, ómögu-
legt að sjá hversu vel þessi um
margt áhugaverða mynd féll al-
mennt í kramið. En svo mikið er
víst að hún mun ekki draga eins
mikla athygli að hátíðinni sjálfri
og m.a. Moulin Rouge gerði 2001.
Þessar tvær myndir eiga það
reyndar sameiginlegt að vera í
hópi fárra opnunarmynda sem
einnig eru með í keppni um Gull-
Mekka kvikmyndalistarinnar
’Það er nefnilega þann-ig að þótt sú göfuga
hugsun eigi að vera við
lýði að þjóðernið eigi
ekki að skipta máli þeg-
ar kvikmyndalistin er
annars vegar þá virkar
kvikmyndahátíð stund-
um eins og íþróttakapp-
mót – og getur hátíðin í
Cannes þá vart verið
minna en Ólympíu-
leikarnir.‘
AF LISTUM
Skarphéðinn Guðmundsson
skrifar frá Cannes
Ljósmynd/Halldór Kolbeins
Mexíkóska leikkonan Salma Hayek. Þúsundir ljósmyndara vaka yfir hverju
skrefi stærstu stjarnanna.
Charlotte Rampling, einn aðalleikarinn í Lemming, en sú mynd var opn-
unarmynd hátíðarinnar.
Bashing (Japan). Eftir Masahiro Kobayashi.
Battle in the Sky (Mexíkó). Eftir Carlos Reygadas.
The Best of our Times (Taívan–Japan).
Eftir Hou Hsiao–Hsien.
Broken Flowers (Frakkland–Bandaríkin).
Eftir Jim Jarmusch.
Cache (Frakkland–Austurríki–Þýskaland–Ítalía).
Eftir Michael Haneke.
Conte de Cinema (Suður Kórea).
Eftir Hong Sang–soo.
Don’t Come Knockin’ (Þýskaland–Frakkland).
Eftir Wim Wenders.
Election (Hong Kong). Eftir Johnny To.
L’Enfant (Belgía).
Eftir Jean–Pierre Dardenne og Luc Dardenne.
Free Zone (Ísrael–Belgía). Eftir Amos Gitai.
A History of Violence (Bandaríkin–Kanada).
Eftir David Cronenberg.
Keuk Jang Jeon (Tale of cinema) (Suður Kórea).
Eftir Hong Sangsoo.
Kilometre Zero (Írak). Eftir Hiner Saleem.
Last Days (Bandaríkin). Eftir Gus Van Sant.
Lemming (Frakkland). Eftir Dominik Moll.
Manderlay (Danmörk–Svíþjóð–Holland).
Eftir Lars Von Trier.
Peindre ou Faire L’Amour (Frakkland).
Eftir Arnaud Larrieu og Jean–Marie Larrieu.
Quando Sei Nato Non Puoi Piu Nasconderti
(Ítalía). Eftir Marco Tullio Giordana.
Shanghai Dreams (Kína). Eftir Wang Xiaoshuai.
Sin City (Bandaríkin).
Eftir Frank Miller og –Robert Rodriguez.
The Three Burials of Melquiades Estrada
(Bandaríkin). Eftir Tommy Lee Jones.
Where the Truth Lies (Kanada).
Eftir Atom Egoyan.
Aðalkeppnin í Cannes 2005