Morgunblaðið - 06.11.2005, Side 10

Morgunblaðið - 06.11.2005, Side 10
10 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Þ að er föstudagsmorgunn og ég mæni á dökkbrúna, ryðgaða sprengju sem gerð hefur verið óvirk. Ég vandræðast og veit ekki hvernig ég á að haga mér gagnvart gripnum, hvessi bara á hann augun og blóta í hljóði. Sprengjan er ein af átta hundruð sem var í stórri klasasprengju og skotið var úr flugvél fyrir meira en þrjátíu árum. Klasasprengjur eru stór hylki sem fyllt eru með mörgum minni sprengjum. Þegar þeim er sleppt skjótast þær minni út og dreifast yfir stór landsvæði. Þessi klasasprengja var tonn að þyngd. „Þetta er náttúrlega ofsalega sniðugt, með þessu er hægt að eyðileggja heil ósköp í einu. Voðalega hentugt,“ tauta ég ískalt og teygi mig í ryðgaða kúluna. Það er eitthvað skrýtið við það að handleika sprengjur sem eru eldri en ég sjálf. Ég fæddist árið 1979. Stríðinu lauk 1975. Bíddu við, valda jafnlöngu liðnir hlutir enn skaða? Hélt að sprengjan væri leikfang Laos er það land sem er einna verst farið af öllum löndum heims, af völdum sprengna. Samtu eru margir sem hafa kannski ekki einu sinni heyrt minnst á ríkið Laos hvað? Í Laos búa 6 milljónir og landið er meira en helmingi stærra að flatarmáli en Íslands. Víet- namstríðið þekkja allir en færri vita að Laos fékk hryllilega útreið í sömu átökum. Banda- ríski herinn henti satt best að segja fleiri sprengjum á Laos eitt og sér en hann gerði á alheimsvísu í seinni heimsstyrjöldinni. Þar kemur vitanlega til breytt hernaðartækni en það magn sprengna sem dreift var yfir Laos samsvarar engu að síður fullum flugvélafarmi sem losaður er á átta mínútna fresti, allan sól- arhringinn – í níu ár. Niðurstaðan er hálft tonn af sprengjum á hvern heimamann. Víetnam- stríðið var ekki bara í Víetnam. Og hver segir svo sem að Víetnamstríðið skuli endilega kallað það en ekki eitthvað ann- að? – Af hverju talarðu alltaf um Víetnamstríð- ið? var ég spurð þegar ég kom til Laos. – Ha, en ekki hvað? spurði ég og lyfti brún- um. – Nú, Bandaríkjastríðið. Voru það ekki Bandaríkjamenn sem mættu á svæðið og fóru í stríð? Heimamaður bendir mér kaldhæðinn á að bandaríska stjórnin hafi verið svo hrædd um að kommúnistar myndu ná heimsyfirráðum að þeir hafi þurft að sprengja fólkið í Laos upp líka. Allt í nafni málstaðarins. Í Laos var upp- gangur kommúnista eins og í Víetnam. Annar lýsir furðu sinni yfir því að heimurinn hafi ekki áttað sig á hvað átti sér stað í Laos á sama tíma og barist var í Víetnam. Sá þriðji segist hafa leikið sér með sprengju sem hann fann sem barn. Hann hélt að hún væri leikfang. Hann er steinhissa á að vera á lífi í dag. 11.000 dáið síðan stríðinu lauk Á föstudegi í höfuðborginni Vientiane virði ég sprengjurnar lengi fyrir mér og grandskoða veggspjöld með myndum af ólíkum tegundum. Ég er stödd í höfuðstöðvum samtakanna Uxo Lao. Þetta eru ríkissamtök sem vinna að því að hreinsa Laos af sprengjum. Mér er bent á að vandamálið sé risavaxið og að það taki gríð- arlegan tíma að sprengjuhreinsa svæði. Fara þarf yfir það með þar til gerðum tólum og tækjum og aðgerðin er óheyrilega dýr. Síðan stríðinu lauk fyrir 30 árum hafa 11.000 manns látið lífið af völdum sprengna sem ekki Asíuríkið Laos líður fyrir gríðarlegt magn sprengna sem liggja grafnar í jörðu. Þeim var kastað úr lofti í Ví- etnamstríðinu fyrir meira en 30 ár- um en sprungu ekki á sínum tíma. Að jafnaði deyja 200 Laosbúar á ári hverju af völdum sprengnanna og margir ganga hungraðir til hvílu vegna skorts á sprengjuhreinsuðu svæði til akuryrkju. Sigríður Víðis Jónsdóttir var í Laos og handlék sprengjur frá því í Víetnamstríðinu – sem heimamenn vísa reyndar til sem Bandaríkjastríðsins. Laos er það land sem er einna verst farið af öllum löndum heims, af völdum sprengna. Þar var barist í Víetnamstríðinu þrátt fyrir samninga sem bönn- uðu það. Stríðið var svo mikið laumuspil að það var aldrei nefnt opinberlega í neinum talstöðvasamskiptum en sprengjum var látið rigna yfir landið. 30 ára gamlar sprengjur Greinarhöfundur handleikur margra áratuga gamla sprengju sem kastað var yfir Laos á sama tíma og barist var í Víetnam. Drengur í munkaklæðum býst til að baða sig í á. Börn eru algeng fórn- arlömb ósprunginna sprengna. „Varúð! Ósprungin sprengja.“ Skilti á skrifstofu Uxo Lao. Götulíf í Laos. Laos er fátækt land þar sem sprengjur úr löngu liðnu stríði hindra alla framþróun.                 

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.