Morgunblaðið - 06.11.2005, Síða 14

Morgunblaðið - 06.11.2005, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Þ að er löngu vel þekkt að skipuleg leit að krabbameini áður en einkenni gefa sjúk- dóminn til kynna get- ur leitt til lækkunar á dánartíðni. Leitarstöð Krabbameinsfélagsins er fram- kvæmdaraðili slíkrar leitar og ber því að sjá til þess að starfsemin upp- fylli skilyrði Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar (WHO). Hér er gerð grein fyrir stöðu mála og tæknilegri framþróun á þessu sviði. Almenn skilyrði krabbameinsleitar Þar sem skipuleg krabbameinsleit byggist á innköllun einkennalausra („heilbrigðra“) einstaklinga til leitar er siðferðileg ábyrgð heilbrigðisyfir- valda mikil. WHO gerir því kröfu um að leitaraðferðin sé rannsökuð með slembivals-, lífsgæða- og kostnaðar- rannsóknum áður en henni er beitt í almennri leit. Í dag uppfylla þrjú krabbamein þessi skilyrði. Skipuleg leit að leghálskrabba- meini hófst hér á landi 1964. Leit- araðferðin byggist á töku frumu- stroks frá leghálsi og með hefð- bundinni smásjárskoðun má greina afbrigðilega kjarna í frumum stroks- ins. Við upphaf leitar var þessi sjúk- dómur annað til þriðja algengasta krabbameinið meðal kvenna en er nú níunda algengasta meinið. Fullsann- að þykir að þessi aðferð hafi leitt til um 70% lækkunar á fjölda nýrra til- fella (nýgengi) og fjölda þeirra er deyja af völdum sjúkdómsins (dán- artíðni) hér á landi. Orsök sjúkdómsins Leghálskrabbamein orsakast af veiru er nefnist HPV (human papill- oma virus) og aðrir áhættuþættir svo sem reykingar og klamydíusmit auka áhættuna. HPV smitast við kynmök og hafa slík smit hæsta tíðni meðal yngri kvenna fyrst eftir að þær hefja kynlíf. Tíðni sýkinga minnkar með aldrinum og nær jafn- vægi eftir fertugt. Talið er að um 80% kvenna smitist einhvern tímann af HPV. Ný tækni Próf til að greina HPV-smit í leg- hálsi er að finna á markaði erlendis. Þetta próf kemur ekki í stað hefð- bundins frumustroks en nýtist við vissar aðstæður til að greina þær konur sem eru í aukinni áhættu að fá leghálskrabbamein. Þetta próf gagnast best hjá konum með end- urteknar vægar forstigsbreytingar, við eftirlit eftir keiluskurð og loks hjá konum eftir fertugt þrátt fyrir að fyrri frumustrok hafi reynst eðlileg. Ný tækni við töku frumustroks, er byggist á að frumur frá leghálsi eru settar í vökva í stað þess að strjúka þeim á gler, gerir jafnframt kleift að nýta vökvann beint til HPV-grein- ingar. Miðað við reynslu síðustu 10 ára er áætlað að þessar tækniframfarir geti flýtt greiningu og meðferð um 80% þeirra kvenna sem árlega þurfa á meiri meðferð að halda en keilu- skurði. Kostnaður er áætlaður um 40 milljónir á ári sem mun þó að lokum skila sér aftur í lægri meðferðar- kostnaði. HPV-bólusetning Sú staðreynd að veira veldur leg- hálskrabbameini hefur leitt til þró- unar bóluefnis sem í rannsóknum hefur reynst hindra smit af völdum tveggja algengustu stofna veirunn- ar. Vandamálið er þó tengt þeirri staðreynd að um 18 stofnar tengjast þessu krabbameini og mótefni gegn einum stofni dugar ekki á annan stofn. Þannig er talið að framtíðar- bóluefni þurfi að innihalda mótefni gegn fleiri en þeim tveimur stofnum sem nú er unnið með. Bóluefnið hef- ur engin áhrif á konur sem þegar hafa smitast af HPV. Þessu bóluefni verður því beint að stúlkum fyrir kynþroskaaldur og mun á næstu ára- tugum hafa lítil sem engin áhrif á nú- verandi krabbameinsleit. Brjóstakrabbameinsleit Þetta krabbamein er algengasta krabbamein meðal kvenna hér á landi (28% krabbameina). Árangur leitar byggist að mestu á greiningu lítilla æxla á byrjunarstigi sem ekki eru finnanleg með þreifingu einni saman. Átta slembivalsrannsóknir í Evrópu og Norður-Ameríku hafa staðfest að leit með brjóstaröntgen- myndatöku hefur leitt til yfir 20% lækkunar á dánartíðni 40 ára kvenna og eldri sem fóru í slíka rannsókn, miðað við þær sem voru í viðmiðun- arhópi. Niðurstaða þessara rann- sókna hefur leitt til þess að brjóst- aröntgenmyndataka á tveggja ára fresti hefur verið tekin upp sem al- menn leitaraðferð víða um heim. Hér á landi hófst brjóstakrabba- meinsleit í árslok 1987 og hefur dán- artíðni sjúkdómsins minnkað mark- tækt á síðustu fimm árum miðað við árin þar á undan. Þó þessi lækkun tengist vafalaust að hluta áhrifum bættrar meðferðar er enginn vafi á að brjóstaröntgenmyndataka á veru- legan þátt í þessari lækkun vegna þess hversu fljótt sjúkdómurinn greindist. Regluleg mæting á tveggja ára fresti til leitar skiptir því máli. Það hefur þó valdið vonbrigð- um að mætingin er mun minni hér á landi en annars staðar á Norðurlönd- um eða aðeins um 61%. Nýjungar í tækjabúnaði Á síðari árum hafa komið á mark- að stafræn brjóstaröntgentæki þar sem brjóstamyndir eru ekki lengur teknar á hefðbundnar röntgenfilmur heldur fluttar rafrænt yfir á tölvur til úrlestrar. Kostir þessarar tækni eru að hún gefur möguleika á að ná fram betri myndskerpu, eykur ná- kvæmni myndgreiningarinnar og sum þessara tækja minnka geisla- skammtana um allt að 75%. Tæknin býður einnig upp á tölvutengd forrit sem aðstoða röntgenlæknana við að finna afbrigðileg svæði í brjóstunum. Nýleg rannsókn staðfestir að þessi nýja tækni eykur aðallega ná- kvæmni brjóstaröntgenmynda hjá yngri konum, konum við tíðahvarfa- aldur og konum á öllum aldri með þéttan brjóstavef. Unnið er að því að taka upp staf- ræna tækni á flestum röntgendeild- um hér á landi. Kostnaður við að um- breyta tækjabúnaði Leitarstöðvar yfir í stafræna tækni er ekki undir 300 milljónum og er ekki gert ráð fyrir þeim kostnaði í núverandi leit- arsamningi við heilbrigðisráðuneyt- ið. Ristilkrabbamein Þetta krabbamein er þriðja al- gengasta krabbameinið hjá báðum kynjum. Fjórar erlendar slembivals- rannsóknir, þar sem greining blóðs í hægðum leiðir til tilvísunar í ristil- speglun, hafa staðfest yfir 16% marktæka lækkun á dánartíðni af völdum sjúkdómsins. Tilgangur leit- arinnar er að greina krabbamein á byrjunarstigi en auk þess á forstigi þar sem slímhúðarsepar eru fjar- lægðir við speglunina. Áðurnefnd lækkun á dánartíðni byggist aðal- lega á greiningu byrjandi krabba- meins og er búist við enn frekari lækkun þegar áhrifa brottnáms slím- húðarsepa fer að gæta. Niðurstaða þessara rannsókna hefur leitt til þess að margar alþjóðastofnanir hafa mælt með almennri leit á tveggja ára fresti frá 50 ára aldri hjá báðum kynjum. Tillaga landlæknis Á árinu 2004 lagði landlæknir til við heilbrigðisráðherra að hafin yrði leit að þessu krabbameini í aldurs- hópnum 55–70 ára. Tillagan gerir ráð fyrir að vegna áratuga reynslu af skipulagningu krabbameinsleitar yrði boðun og eftirlit á hendi Leit- arstöðvar. Kostnaður Krabbameins- félagsins vegna þessarar leitar er áætlaður um 30 milljónir króna á ári en kostnaður af ristilspeglunum er þar ekki meðtalinn þar sem blóð í hægðum leiðir ætíð til áframhald- andi rannsókna sem ættu að greiðast af Tryggingastofnun ríkisins. Lokaorð Rannsóknir staðfesta að ristil- krabbamein uppfyllir forsendur WHO hvað varðar almenna krabba- meinsleit meðal einkennalausra ein- staklinga. Nú liggur fyrir Alþingi til- laga til þingsályktunar um að hefja slíka leit. Það er ljóst að sú mikla framþróun sem hefur átt sér stað í legháls- og brjóstakrabbameinsleit kostar mikla fjármuni. Þar sem Krabbameins- félagið hefur ekki bolmagn til að standa undir þessum kostnaði hefur það í hyggju að leita eftir fjárstuðn- ingi velunnara félagsins og gerir ráð fyrir að heilbrigðisyfirvöld komi jafnframt að þessari endurnýjun. Morgunblaðið/Árni Sæberg Staða krabbameins- leitar á Íslandi Krabbameinsrannsóknir hjá Krabbameinsfélagi Íslands. Skipuleg leit að krabbameini áður en einkenni koma fram hefur borið árang- ur eins og komið hefur fram með brjóstakrabbamein. Nú er svo komið að rannsóknir staðfesta að ristilkrabbamein uppfyllir skilyrði almennrar leitar. Kristján Sigurðsson fjallar um stöðu krabbameinsleitar á Íslandi. Höfundur er doktor í krabbameins- lækningum og lýðheilsu og er sviðsstjóri leitarsviðs Krabbameinsfélagsins. Í árvekniátaki um brjóstakrabbamein fyrir nokkru var varpað bleikri birtu á Perluna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.