Morgunblaðið - 06.11.2005, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 06.11.2005, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 25 TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is Þurfti mamma endilega að hringja þegar ég var að láta renna í baðið? Fasteignatrygging TM Dæmi um vatnstjón sem Fasteignatrygging TM bætir: // Fasteignatrygging TM bætir tjónið þegar pípulagnir hússins fara að leka, hvort sem um er að ræða vatnsleiðslur eða frárennslislagnir. // Ef vaskar og önnur hreinlætistæki heimilisins yfirfyllast og flæða yfir, færðu tjónið bætt. // Þú færð líka tjónið bætt þegar frysti- eða kæliskápur heimilisins byrjar skyndilega að leka. Dæmi um vatnstjón sem Fasteignatrygging TM bætir ekki: // Ef vatn berst inn í hús utan frá, t.d. vegna úrkomu eða snjóbráðar, og veldur tjóni, færðu það ekki bætt. // Tjón sem verður vegna stíflu í lögnum fyrir utan grunninn á húsinu þínu færðu ekki bætt. // Fasteignatrygging TM bætir ekki tjón sem rekja má til þess að frárennslislögnin í grunni hússins gefur sig vegna aldurs eða eðlilegs slits. Við sumum spurningum fást bara engin svör. Óhöpp henda okkur og við því er ekkert að gera. En þú getur brugðist við strax með því að tryggja hjá tryggingarfélagi sem gefur þér skýr svör og leggur áherslu á hraðvirkan frágang tjónamála. Alltaf skal það koma okkur jafnmikið á óvart þegar blessað vatnið rennur aðra leið en því er ætlað. Afleiðingin er tjón sem oft er ansi þungt fyrir budduna. Fasteignatrygging TM er ekki flókinn hlutur og það tekur enga stund að ganga frá henni. Fasteignatrygging TM veitir víðtæka vernd fyrir tjóni á fasteignum, t.d. af völdum vatns, óve›urs e›a innbrota. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T M I 28 60 5 1 1/ 20 05 Það er góð regla að lesa vel tryggingaskilmálana, þeir eru sá grundvöllur sem samskipti þín og TM byggjast á. Hringdu í síma 515 2000 eða farðu á www.tryggingamidstodin.is og fáðu skýr svör. Stofan hans Sigi var mjög eftirsótt og hann var frábær kennari. Kennsla hans og upplýsingar frá kærastanum mínum, sem tekið hafði þátt í mörg- um keppnum sem módel, hjálpuðu mér til að fóta mig á keppnisvettvang- inum. Á röskum tveimur árum náði ég árangri sem tekur flesta miklu lengri tíma. Kærastinn minn var bara einu sinni módel hjá mér, það var hagkvæmara að hann ynni hjá öðrum, hann hafði þá mjög góð laun sem módel en svo dró úr því með árunum. Ég flutti fljótlega til hans og lífið var mjög spennandi, nýtt umhverfi og kærasti. Mikill árangur í hárgreiðslukeppnum Þótt ég sé skilin við þennan mann nú þá get ég ekki annað sagt en ég hafi lært mikið af samvistum við hann, þær samvistir gáfu mér innsýn í allt annan og framandi heim. Ég skildi þó ekki strax hve framandi þessi heimur er, ég fór að skilja það betur síðar. Við vorum saman alls í átján ár. Við byrjuðum að vera saman 1986 og giftum okkur 1991. Þá ákvað ég að opna eigin stofu. Um það leyti var ég búin að ná því sem hægt var á keppnisvettvangi án þess að borga þjálfurum undir borðið svo þeir hefðu áhrif á dómarana, slíkt tíðkast hér. Ég komst inn í þýska landsliðið á Evrópumóti og varð meistari á CAT- móti, sem er alþjóðlegt mót sem fram fór í Darmstadt sem er ekki langt hér frá, fjarlægðin skiptir máli, það er dýrt að taka þátt í svona mótum. Á umræddu móti kom að máli við mig eldri maður og sagði mér að ég þyrfti að vera í fagfélagi til þess að eiga möguleika á að vinna en ef ég gengi í félagið á staðnum yrði ég þýskur CAT-meistari. Ég gekk í félagið og vann titilinn og fékk marga bikara, einn risastóran. Þetta skipti miklu máli og eins hitt að á þessum tíma voru fáar konur í herrahárgreiðslu. Um titil minn var mikið talað í því mikla karlaveldi sem þessi grein var þá. Þátttakan í keppn- um var mjög skemmtileg og gagnleg, hún kennir fólki að greiða fólki hratt og vel á stuttum tíma. Eigi að síður hætti ég að keppa, ég hafði ekki efni á að borga undir borðið. Til að ná á toppinn t.d. í dömu- greiðslum þarf að borga háar fjár- hæðir, ég hef heyrt allt upp í fimmtíu þúsund evrur en tek ekki ábyrgð á að þessi upphæð sé rétt. En reynslan af keppnum hefur nýst mér vel í sambandi við sýningar sem ég hef í ríkum mæli tekið þátt í síðari árin og stóru hárvörufyrirtækin standa fyrir. Þeir sem annast hár- greiðslu á þessum sýningum kynna nýjustu tísku og nota um leið vörur frá viðkomandi fyrirtæki.“ Skilnaðurinn var erfiður En hvernig verður hártískan til? „Tískan verður til út á götu, í flest- um tilvikum spretta upp hugmyndir hjá krökkum á götunni, þær eru svo útfærðar og mótaðar betur í hópi leið- andi hárgreiðslufólks – það er mjög gaman að vera í þeim hópi. Það er með tísku í hárgreiðslu eins og aðra tísku, á sýningum er allt nokkuð yf- irdrifið, – en sýnir línuna. Eldri dóttir mín hefur kynnt mér margar góðar hugmyndir. Einu sinni kom hún t.d. inn í stofu til mín, þá sex ára, með mynd af prinsessu með kórónu, upp úr kórónunni var eldgos. Ég var að fara á heimsmeistaramót í hár- greiðslu í Berlín og tók þessari hug- mynd tveim höndum, bjó til risakór- ónu með köldum flugeldum upp úr, þetta vakti gífurlega athygli á sýning- unni. Ég hef farið víða um heim á keppnir og sýningar.“ Íris á tvær dætur með fyrrverandi manni sínum. Þegar hún ákvað að skilja höfðu bæði ættingjar og vinir áhyggjur af að erfiðleikar myndu koma upp vegna forræðis barnanna. „Ég kveið fyrir að segja frá þeirri ákvörðun minni að vilja skilnað. Tengdaforeldrar mínir höfðu um ára- bil búið hjá okkur hjónunum, vissu- lega var það á margan hátt gott en líka slæmt, rýmið verður lítið. Þar kom að ég staldraði við og fann að ég var orðin æði þreytt á að vera aðalfyrirvinna fyrir okkur hjónin, börnin okkar og tengdaforeldrana, þannig hafði þetta þróast með tíman- um. Ég átti mörg góð ár með þessu fólki en þar kom að mér fannst eins og ég væri komin í þá stöðu að vera bara sú sem gaf. Góðar samvistir ganga jú út á að vera bæði gefandi og þiggj- andi. Ég fór til Íslands og í þeirri ferð tók ég ákvörðun sem hafði smám saman verið að mótast innra með mér, ég ákvað að skilja við manninn minn. Þegar ég kom út úr flugvélinni tók maðurinn minn á móti mér. Ég hugs- aði: „Mig langar ekki að verða gömul með þessum manni.“ Á leiðinni til Ma- inz sagði ég manninum mínum að ég vildi skilnað. Ég bjóst við hinu versta og vissulega brá honum mjög, en hann tók þessum tíðindum þó betur en ég hefði þorað að vona. Þetta er erfitt fyrir hann, ég veit það. Vegna módelstarfa sinna hafði hann ekki notfært sér menntun sína sem vélaverkfræðingur og ef fólk fer ekki strax í það fag sem það menntar sig til hér í Þýskalandi er erfitt að komast inn síðar. Hann hafði kosið að vinna að mód- elstörfum og hjálpa mér við resktur hágreiðslustofunnar. Niðurstaðan varð að hann héldi hárgreiðslustof- unni og þremur starfsmönnum en ég stofnaði nýja stofu. Við ákváðum að hafa sameiginlegt forræði með börn- unum og það hefur gengið enn sem komið er, ég er með stelpurnar á mánudögum, þriðjudögum og mið- vikudögum og aðra hvora helgi. Versti tíminn í skilnaðarferlinu var meðan við þurftum að búa undir sama þaki, mér fór að líða betur eftir að ég flutti ég út af heimilinu. Það hjálpaði mér í þessu ferli öllu að hafa góðan lögfræðing. Ég hef kynnst íslenskum manni sem ég bý með nú en um það vita tengdaforeldrar mínir fyrrverandi ekki, maðurinn minn fyrrverandi vill ekki segja þeim það. Þess ber að geta að skilnaðurinn er ekki alveg frágeng- inn, fjármálin eru enn í skoðun. Margir hafa undrast að ég skyldi taka þessa ákvörðun, maðurinn minn fyrrverandi á fimm systkini, þau halda vel saman og þetta fólk tók því ekki vel að missa „gullkálfinn“. En ég vona að ég komist frá þessu án þess að lenda í illindum við fyrrverandi eiginmann minn og tengdafólk, um það er þó of snemmt að spá ennþá. Mig langar til að flytja heim til Ís- lands en það getur orðið erfitt út af börnunum, mig langar ekki að lenda í álíka máli og Sophia Hansen. En ein- hvern tímann flyt ég heim, – hvenær sem það getur orðið.“ Íris er ein vinsælasta uppgreiðslu- kona Þýskalands. Nú eru krullur í aðalhlutverki. Glæsileg uppgreiðsla eftir Írisi. gudrung@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.