Morgunblaðið - 06.11.2005, Page 29

Morgunblaðið - 06.11.2005, Page 29
á ferðinni baksviðs uppi í leikhús- inu, þurfti að hringja. Sven Åge Larsen er þá í símanum og ég heyri að hann segir við þann sem hann er með á línunni: – Heyrðu, ég tala við þig á eftir, ég er hérna með nemanda úr leik- listarskólanum. Svo snýr hann sér að mér og spyr: – Geturðu sungið? Þetta var inni í herberginu hjá dyraverði, sem var ekki stórt en ég leit samt um öxl til að gá að því hvort það væri einhver annar fyrir aftan mig sem hann væri að ávarpa. Ég varð hálfhissa, þegar ég gerði mér grein fyrir að hann var að tala við mig og svaraði stamandi: – Ja, já, já. Nú, ég var drifin upp á sal í prufu. Það var búið að prófa fjölda fólks áður, aðallega söngvara, en leikstjórinn hafði engar vífilengjur, heldur sagði við mig: – Gleymdu prófunum í skólan- um, þú átt að mæta klukkan tíu í fyrramálið. Drífðu þig heim og lærðu þetta. Þú átt að kunna þetta atriði fyrir æfinguna á morgun. Svo rétti hann mér handritið að söngleiknum og benti á atriðið sem hann átti við. Sennilega hef ég stamað út úr mér að ég væri að undirbúa loka- prófið. Guðmunda Elíasdóttir söngkona átti að leika þetta hlutverk, en veiktist þegar langt var liðið á æf- ingatímann og missti röddina. Það var mikill harmleikur fyrir hana eins og hún lýsir svo vel í ævisögu sinni, Lífsjátningu. Það var aðeins vika í frumsýn- ingu. Hlutverkið var Bianka, eða öllu heldur leikkonan Lois Lane, sem leikur Biönku í leiknum innan leiksins, yndislegt hlutverk. Ég fór heim og lærði atriðið auðvitað eins og mér var sagt. Ég var fljót að læra, hafði gott sjónminni. Það hjálpaði. Og ég var svo ung að ég vissi ekki hvað það var að fá sviðs- skrekk. Ég hlakkaði bara til frum- sýningarinnar, þó að tíminn væri naumur. Þar með hófst nýtt æv- intýri. Ég var komin á svið sem al- vöru leikari. Í sýningu Dallas-leikhússins á A Different drummer eftir Eugene McKinney 1963. Ljósmynd: Georgette de Bruchard Í gylltum ramma - Saga Sigríðar Þorvaldsdóttur leikkonu kemur út hjá Bókaútgáfu Æskunnar og er 201 blaðsíða. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 29 Flutt í Mörkina 1 HAUSTÚTSALA! Árleg bókaútsala SKJALDBORGAR Eitthvað fyrir alla. Verð í algjöru lágmarki og bónus við magnkaup. Gríptu bókina, jólin nálgast. Skjaldborg – Mörkinni 1 – sími: 588 2400 Netfang: skjaldborg@skjaldborg.is OPIÐ: Virkadag a: 9-17 Laugarda ga: 10-1 7 Sunnuda ga: 13-1 7

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.