Fréttablaðið - 27.05.2006, Blaðsíða 8
8 27. maí 2006 LAUGARDAGUR
���������������������������������������������������������������������
�������������
������������
������� ������������ ���
������������������������������������������������������������������
������
�������
����
����
������
�
������
�����
��� ��� ��
�������������� ���
��������������
�����
���
��� ��� ���
�����������
�������������
������������������������������������������������������� �������������������������������
������������������������������������������������������������������������������������
������������������������������������������ ���������
���������
BJÖRGUN Báturinn Ragnar SF 550
óskaði eftir aðstoð snemma í gær-
morgun eftir að hafa fengið veiðar-
færi í skrúfuna. Björgunarskipið
Ingibjörg fór frá Höfn í Horna-
firði og kom til bjargar.
Báturinn, sem er 15 tonn og
gerður út frá Höfn, var staddur
um tíu sjómílur suður af Höfn.
Björgunarskipið tók bátinn í tog
og flutti hann til hafnar.
Ekkert amaði að þeim þremur
mönnum sem um borð voru í
bátnum og enginn þeirra var
nokkurn tíma í hættu. Veðrið á
þessum slóðum var mjög gott og
vel gekk að koma bátnum til
hafnar. - gþg
Bátur suður af Höfn:
Fékk veiðar-
færi í skrúfuna
VEISTU SVARIÐ?
1 Hvað heitir sigurvegarinn í spurn-ingakeppninni Meistaranum á Stöð
2?
2 Hvað heita forstjórar Enron sem hafa verið dæmdir sekir?
3 Hvaða fótboltalið hefur keypt Fern-ando Morientes?
SVÖRIN ERU Á BLS. 74
Á þönum um allan
bæ á síðustu stundu
Frambjóðendur í Reykjavík hafa komið víða við í kynningarherferðum sínum
um borgina. Í gær var síðasti möguleikinn fyrir þá til að láta ljós sitt skína.
FRJÁLSLYNDIR Ólafur F. Magnús-
son, oddviti Frjálslyndra, spígspor-
aði um Kringluna og kastaði kveðju
á unga jafnt sem aldna Íslendinga
með innkaupapoka og -kerrur.
FRAMSÓKNARFLOKKUR Forsætis-
ráðherrann Halldór Ásgrímsson
mætti í Kringluna í fjarveru Björns
Inga Hrafnssonar, oddvita flokksins.
VINSTRI GRÆN Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri grænna, var í hrókasamræðum við Orkuveitustarfsmann á matstofu Orku-
veitunnar á Bæjarhálsi þegar ljósmyndara bar að garði. Umhverfismál hafa löngum verið Vinstri grænum tungutöm og því má
leiða að því líkur að talið hafi af og til beinst að virkjanamálum í bland við stefnumálin í borginni.
SAMFYLKINGIN Læknirinn Dagur B. Eggertsson heilsaði upp á starfsfólk
Landspítalans í Fossvogi og sló þar á létta strengi með fyrrum kollegum sínum.
Líklegt má telja að heilbrigðismál hafi þar verið skeggrædd fram og aftur og að
umræða um hátæknisjúkrahús hafi farið hátt.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR Vel virtist fara á með starfsmönnum Ríkisútvarpsins og
þeim Gísla Marteini Baldurssyni, Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur og Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur, frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins, þegar þremenningarnir litu
við í Efstaleitinu í gær og spjölluðu um málefni líðandi stundar. Ekki liggur fyrir hvort
fjölmiðlafrumvarpið bar þar á góma eða hvort reynt hafi verið að lokka Gísla aftur til starfa.
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2006
fiJÓ‹VAKI
Litir:
Grænn: pantone 356cvu
Rau•ur: pantone 485cvu
SVEITARFÉLÖG Yfirkjörstjórn Mos-
fellsbæjar hafnar kvörtun Vinstri
hreyfingarinnar - græns framboðs
um að bæjarstjórinn Ragnheiður
Ríkharðsdóttir hafi brotið kosn-
ingalög þegar hún sendi bæjar-
búum undirritaða ávísun fyrir
afslætti fasteignagjalda. Eins er
með yfirstjórnina í Kópavogi
vegna hliðstæðs máls þar.
Þorbjörg Inga Jónsdóttir, for-
maður yfirkjörstjórnar Mosfells-
bæjar, segir að Ragnheiður hafi
einungis verið að framkvæma
ákvörðun bæjarstjórnarinnar um
að greiða fasteignaafsláttinn út og
farið að ráðum fjármálastjórans
þegar ákveðið var að gefa út ávís-
anir. „Jafnvel þó að tvær setning-
ar sem falla ekki beint við ákvörð-
un bæjarstjórnarinnar fari í
niðurlag bréfsins finnst okkur það
ekki ganga svo langt að hægt sé að
fella það undir kosningaspjöll,
enda stóð bæjarstjórnin saman að
ákvörðuninni um afsláttinn.“
Ólafur Þór Gunnarsson, oddviti
Vinstri grænna í Kópavogi, segir
að þrátt fyrir að ávísanamálið sé
metið tæknilega löglegt í Kópa-
vogi, sé það að þeirra mati grímu-
laus tilraun til atkvæðakaupa.
Atvikin verði skoðuð með öðrum
eftir kosningar og þá metið hvort
framkvæmd þeirra hafi verið með
eðlilegum hætti.
Bjarki Bjarnason, formaður
vinstri grænna í Mosfellsbæ, segir
stöðuna metna eftir kosningar. - gag
Yfirkjörstjórn Mosfellsbæjar segir bæjarstjórann ekki hafa brotið kosningalög:
Fór að ráði fjármálastjórans
RAGNHEIÐUR RÍKHARÐSDÓTTIR Bæjar-
stjóri braut ekki lög að mati yfirkjörstjórnar
í Mosfellsbæ.