Fréttablaðið - 27.05.2006, Page 79
Skífan Laugavegi 26 opið alla daga til 22 · Skífan Smáralind · Skífan Kringlunni · Póstkröfusími 591-5310 · www.skifan.is
skemmtir þér ;)
MESTA ÚRVALIÐ ER Í SKÍFUNNI
YFIR 20.000 TITLAR AF TÓNLIST, DVD OG TÖLVULEIKJUM
HELGARTILBOÐ!
Tool
10,000 Days
Lordi
Arockalypse
Neil Young
Living With War
1.799kr. 1.799kr.1.799kr.
Til hamingju Ísland
20 Ár í Eurovision
Eurovision 2006
Öll lögin sem kepptu í Athens
Red Hot Chili Peppers
Stadium Arcadium
2.199kr.
2CD
1.799kr.
2CD
Brokeback MountainDa Vinci Code
Family Guy
Sería 4
4.999kr.
PS2
1.999kr.
DVD
3.799kr.
DVD
2.199kr.
2CD
Háskólanám í LBHÍ
grunnur a› framtí›
7
júní
Umsóknafrestur fyrir
skólavist 2006 / 07
Hvanneyri • 311 Borgarnes • s. 433 5000
www.lbhi.is
Umhverfisskipulag
Búvísindi
Náttúru- og umhverfisfræ›i
Skógfræ›i og landgræ›sla
Kynntu flér námslei›ir vi› LBHÍ,
www.lbhi.is
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
ku
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
af
n
ar
fj
ö
rð
u
r.
Þ
ú
ve
rð
u
r
b
ar
a
lík
a…
Listahátíð teygir sig um víðan völl
og á morgun verður mikið um
dýrðir á Austurlandi. Breska söng-
sveitin I Fagiolini heldur tónleika í
Kirkju- og menningarmiðstöðinni á
Eskifirði og flytur tónleikadag-
skrána „Brennandi hjarta“ þar sem
mörg frægustu verk ítalska endur-
reisnartónskáldsins Claudio Monte-
verdi verða flutt. Síðar um kvöldið
gefst gestum síðan tækifæri á að
hlýða á meistaraverk Haydns, Sköp-
unina, í flutningi Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands undir stjórn
Guðmundar Óla Gunnarssonar og
með fulltingi valinkunnra lista-
manna.
Meðal þeirra sem koma fram eru
einsöngvararnir Keith Reed, Xu
Wen, Tinna Árnadóttir, Þorbjörn
Rúnarsson og Þorbjörn Björnsson
en þess má geta að þau þrjú síðast-
nefndu eru fyrrverandi nemendur
Keiths Reed sem er einn mesti frum-
kvöðull á sviði óperutónlistar þar
eystra og stofnandi Óperustúdíós
Austurlands og Kammerkórs Austur-
lands. Keith segist fullur eftirvænt-
ingar vegna tónleikanna og ánægð-
ur með framtakið. „Tónlistin er
bráðfalleg, Sköpunin er magnað
verk en mjög erfitt og krefjandi.“
Hann telur mikilvægt að skapa
tækifæri fyrir listafólk á svæðinu
til þessa koma í veg fyrir að hérað-
ið missi sitt góða listafólk í burtu.
„Það er líka svo fallegt hér á Eski-
firði og gaman að koma aftur heim
og vinna með góðu fólki,“ segir
Keith en hann er nú búsettur á
höfuðborgarsvæðinu.
Tónleikar I Fagiolini verða haldn-
ir kl. 16 en Sköpunin verður flutt kl.
20. Á milli tónleikanna gefst gestum
kostur á þriggja rétta kvöldverði
sem borinn verður fram í nýrri og
glæsilegri sundlaugarbyggingu
Eskfirðinga. Hópurinn mun síðan
flytja Sköpunina á tónleikum í Egils-
staðakirkju á morgun kl. 15. - khh
Listahátíð fagnað á Austurlandi
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT NORÐURLANDS Metnaðarfullir tónleikar um helgina.
Nú fer hver að verða síðastur að
kíkja á sýningu á verkum Hall-
dórs Dungals sem hanga uppi á
kaffihúsinu Café Mílanó í Faxa-
feni. Það sem gerir þessa sýningu
sérstaka er sú staðreynd að lista-
maðurinn er blindur en hann lætur
það þó ekki aftra sér frá því að
skapa fallegar myndir. Halldór
sýnir tólf litrík olíumálverk á sýn-
ingunni og eru ellefu þeirra máluð
eftir að hann missti sjónina eftir
slys fyrir sex árum. Halldór málar
nú eftir minni en hann hefur alla
tíð málað mikið og fór á sínum
tíma í nám í Myndlistar- og hand-
íðarskólanum. - snæ
Blindlist
LITRÍK VERK Halldór blandar litunum vel
saman og í myndunum má einnig greina
ýmis form. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
27. maí 2006 LAUGARDAGUR 59