Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2002, Page 112

Andvari - 01.01.2002, Page 112
1 10 HJALTI HUGASON ANDVARI dómsskilningur. Það er því ástæða til að gefa persónusköpuninni nokkurn gaum. Sá kirkjuskilningur sem endurspeglast með þessu móti er þó fremur álit höfundarins sjálfs en að hann megi rekja til sögutíma verksins. Þarna er því farið út fyrir viðfangsefni þessarar ritgerðar í þrengsta skilningi. Skal og einvörðungu stiklað á stóru í þessu efni. Biskupinn er aldrei nefndur á nafn og er hann litlausasta persóna þeirrar þrenningar sem helst kemur fram sem málpípa kirkjunnar en henni tilheyra auk biskupsins biskupsfrúin og dómkirkjupresturinn. Honum er fyrst lýst í hinni mögnuðu innkomu í baðstofuna á Rein þegar allar helstu sögupersón- urnar eru á sviðinu samtímis.S4 Þar er þessari mynd hans brugðið upp: „Fyrst- ur sté yfir þröskuld Jóns Hreggviðssonar þrekvaxinn tignarmaður rjóður, í víðri kápu, með hatt bundinn undir kverk, þúngt fíngurgull, silfurkross í festi og dýra svipu.“55 Þó hann umgangist heimafólk í upphafi með sóknarprestinn sem meðal- gangara komst hann að lokum við af hugarangri kerlingarinnar á bænum og strauk „...með kristilegri linkind um votan eltiskinnsvánga hennar og reyndi að fullvissa hana um að þeir mundu ekki taka neitt frá henni sem hana mun- aði um.“56 Gleggsta lýsingin af biskupnum er þó þessi og er hann þá staddur á heima- velli í Skálholti: Innan skamms kom biskupinn með sitt stóra fas og krossinn í festi um hálsinn, breiður sléttur og rjóður og lýsti af honum, útbreiðandi sinn evangeliska góðleiksfaðm mót öllum trúandi og sléttandi úr hverri hrukku og hnökra vegna þess herrans pína boðar fögnuð, allra vin af því drottinn vill sérhver mann skuli leysast, virðandi hvers manns orð á hægra veg af því ekkert brjóst er lokað anda heilögum, uns þar gat komið, er nær dró úrslitum mála, að hin kaldgráu augu hans náðu yfirhendi: af brosinu var ekki eftir nema hrukkumar, eins og gárar verða eftir í sandi við útfiri, og biskupinn opinberaði þann skilníng máls sem flesta varði síst.57 Hið ytra ber biskupinn öll einkenni velsældar. A yfiborðinu er fas hans og mótað af velvilja og góðvild sem þó á sín mörk og þokar þegar á reynir fyr- ir kaldri málafylgju. Gildismati og samfélagshugmyndum biskupsins kynn- umst við svo í orðræðu þeirri sem spinnst undir borðum í Stórustofu í Skál- holti veturinn þegar þau Arnas og Snæfríður dveljast þar bæði. Er það við sama tækifæri og útliti hans og innræti er lýst á framangreindan hátt. Hér eins og í annarri persónusköpun verksins mætum við þeirri viðleitni höfundar að lýsa persónum eingöngu með ytra útliti, atferli, líkamlegum viðbrögðum eða með þeirra eigin orðum, sem og því hvernig hann stillir sig stöðugt um að af- hjúpa tilfinningar þeirra eða hugsanir.5S Við þetta tækifæri reynir biskupinn að breiða bæði yfir þær andstæður sem ólguðu undir yfirborðinu milli borð- nauta hans - assessorsins og dómkirkjuprestsins - og hinar þjóðfélagslegu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.