Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2002, Side 181

Andvari - 01.01.2002, Side 181
ANDVARI ANDANS KONA OG ORÐABÓKARPÚL 179 bókasafni-Háskólabókasafni.3 Umsóknin er öll skrifuð í fyrstu persónu og Bjargar að engu getið. Erfitt er þó að hugsa sér að þau hjón hafi ekki í upp- hafi lagt sameiginlega á ráðin um hvemig að verkinu skyldi staðið. Fram kemur í formálanum að fimm ár voru í upphafi ætluð til að safna til bókarinnar og semja hana. Sigfús var bókavörður við Konunglega bókasafn- ið í Kaupmannahöfn og tók fram að hann hefði aðeins haft tómstundir eftir vinnu til að vinna að orðabókinni. Hugmyndin var að safna saman orðaforða úr útgefnum orðabókum og gefa út bók um samtímamálið. Valdar voru til orðtöku allar þær orðabækur sem snertu samtímamál á einhvern hátt, bæði þær sem höfðu íslensku sem flettuinál en erlendar þýðingar og þær sem höfðu íslenskar þýðingar en danskt eða enskt flettumál. Þá voru einnig lesn- ar orðabækur yfir forna málið ef þær gátu veitt einhverja vitneskju um mál síðari tíma eins og raunin er um orðabók Eiríks Jónssonar og orðabók Ric- hards Cleasbys og Guðbrands Vigfússonar (Guðrún Kvaran 1997: 9-11). Víst er að Sigfús hefur ekki getað lesið allar þær orðabækur sem hann nefnir, valið orð og orðasambönd og skráð á seðla á þeim tíma sem hann ætl- aði til verksins án verulegrar aðstoðar. Það vita allir sem fengist hafa við orðabókarvinnu. Björg hlýtur að hafa lagt honum mikið lið enda segir hún í bréfi til Eiríks Magnússonar sem dagsett er 8. nóvember 1903: Það er svo langtum skemtilegra að fá sjer Iangan göngutúr í góðu veðri, tefla skák eða lesa skáldrit eftir Selmu Lagerlöf og aðra góða menn og konur en að sitja við próflest- ur og orðabókarpúl. Þessi orð vekja hjá lesanda þann grun að Björg hafi ef til vill þegar í upphafi heldur viljað fást við eitthvað annað en orðtöku og unnið fremur af skyldu eiginkonunnar en löngun. Arið 1908 voru fyrstu drög tilbúin en vonbrigðin urðu mikil. Hvar sem borið var niður mátti sjá að langt var í land með að verkið gæti komið að ein- hverjum notum. Til þess var efniviðurinn allt of þröngt valinn. I raun vekur furðu að þeim hjónum hafi ekki orðið þetta ljóst fyrr í þessari fyrstu lotu. Þau hljóta að hafa rekist á orð næstum daglega í eigin málumhverfi, flett þeim upp en ekki fundið í þeim orðabókum sem þau voru að vinna með. Jón Helgason prófessor í Kaupmannahöfn skrifaði grein um Sigfús Blön- dal sjötugan. Um upphaf orðabókarverksins sagði hann: Sumardagurinn fyrsti árið 1903 ntun lengi hafður í minnum í sögu íslenzkra mennta, vegna þess að þá byrjaði Blöndal að safna orðurn til íslenzkrar orðabókar. Hann var þá lostinn sömu blindni og fjöldi annarra ntanna sem eru að hefja stórvirki, að hann hélt þetta yrði ekki nema fárra ára starf, og sannast að segja er þessi blindni hin bezta náð- argjöf, því að án hennar hefði margur verið ragur að ráðast í þau verk sem vér mundum sízt kjósa óunnin (1944: 130).
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.