Andvari - 01.01.1939, Blaðsíða 7
Andvari
Tryggvi Þórhallsson.
Eftir Þorkel Jóhannesson.
I.
Saga íslendinga síðustu hálfa öld er saga kappsam-
legrar framsóknar í öllum efnum. í mörgum greinum
hefir hér verið byggt frá grunni. í öðrum stöðum hefir
s?o gagngerð breyting á orðið um tækni og starfsháttu,
að mjög nálgast það, að lítt eða ekki eimi eftir af fornu
starfslagi. Á þetta einkum við sjávarútveginn og samgöng-
Ur innan lands og við útlönd, og að nokkru leyti má
se9Ía hið sama um landbúnað vorn. Þetta er reyndar
alkunnugt og þarf ekki langrar ræðu. En um hitt myndi
ef til vill vera minna hugsað og sjaldnar rætt, hve gagn-
9er áhrif þetta mikla starf, gerbreyting viðhorfa og ný
viðfangsefni, hafa haft á þá kynslóð, er hér hafði for-
Ystu og ruddi hinar fyrstu, torfæru brautir. Þvílíkt hlut-
sk'Pti hefir ekki að höndum borið neinni kynslóð ann-
f?r‘ ' sögu þjóðar vorrar, nema ef hér mætti tilnefna
hina fyrstu landnámsmenn og sonu þeirra og dætur, er
Yrstir byggðu landið og könnuðu, og sköpuðu hér og
treystu fyrstir Iögbundið þegnfélag. Slík átök og örlög
SV0 "íikils háttar marka dýpri spor í starfslífi, skapgerð
°9 allri menningu kynslóðar þeirrar, er slíkt tekst á
endur, en svo, að auðveldlega máist og hverfi, þótt
aöstæðUr ýmsar breytist og mjög margt taki að horfa
annan veg við.
því er sannarlega svo farið, að viðfangsefnin skapa