Andvari - 01.01.1939, Blaðsíða 117
Andvari
Einokunarfélögin 1733—1758
113
sinni.i) að stofnendurnir hafi flestir fyrr á æfinni verið f
siglingum til íslands sem kaupmenn eða farmenn /far-
ende köbmænd), og mátti hann um þetta vita, enda er
það sannanlegt af öðrum heimildum um suma þeirra.
Víst er, að þeir höfðu yfirleitt mikil kynni af ís-
landi og íslenzkum verzlunarháttum, og mun sú þekk-
ing hafa komið félaginu að miklu gagni. Vmsir þeirra,
voru einnig í mestu auðfélögum Dana um þær mundir,
Vestindisk-guineiska félaginu, Asíufélaginu og einkum
sjóvátryggingarfélagi Kaupmannahafnar, sem þá var fyrir
skömmu stofnað. Til þess félags greiddu kaupmenn vá-
lryggingargjöld (2V2—3°/o) af skipum sínum og förm-
um, en þeir peningar komu að nokkuru leyti aftur í
vasa sjálfra þeirra, þegar þeir voru í vátryggingarfé-
laginu.
Samþykktir einokunarfélags þess, er hér um ræðir,
munu ekki vera til hreinskrifaðar, en til er uppkast að
samþykktum handa félaginu, dags. 16. apríl 1732,1 2) sam-
ið af stofnöndum þess og sent stjórninni, sem ekkert hafði
við það athuga. Má telja víst, að þetta uppkast hafi
öðlazt gildi sem samþykktir félagsins. Það sést bæði af
uppkastinu og sjóðbók félagsins, að hlutafé þess hefir
ekki verið 200 000 rdr., eins og talið hefir verið, heldur
100 000 rdr. Hver hlutur var á 1 000 dali, og enginn
uiátti eiga meira en átta hluti. Stofnendurnir létu vöru-
birgðir sínar hér á landi og í Kaupmannahöfn, svo og
1) Forsög til en kort beskrivelse af Island, nr. 24 í handrita-
®afni landbúnaðarháskólans í Kaupmannahöfn. Uppskrifl í safni
lóns Sigurðssonar, nr. 33 fol.
2) í ríkisskjalasafni Dana, í sama pakkanum, sem það skjal
Ojering-Matthisens, er áðan var getið. Annars eru skjöl og bæk-
Ur félagsins í bæjarskjalasafni Kaupmannahafnar og (lítið eitt) í
Landsbókasafninu í Reykjavík.
8