Andvari - 01.01.1939, Blaðsíða 24
20
Tryggvi Þórhallsson
Andvari
hafi tilviljun prófúrslitanna ráðið hvörfum í lífi hans. Eg
ætla, að það sé ofmælt. Hann hefði efalaust fyrr eða
síðar tekið að gefa sig við stjórnmálum, þótt hann hefði
tekið kennaraembættið að sér. Hér urðu bara þau um-
skipti, að stjórnmálin urðu aðalviðfangsefnið, fræðimennsk-
an og fræðslan aukastarf, og gaf hann sig þó nokkuð
jafnan síðar að hvoru tveggja, eftir því sem ástæður
leyfðu. Hann kenndi nemöndum Samvinnuskólans sögu
og íslenzku um 10 ára skeið af mikilli prýði og ótví-
ræðum hæfileikum til að fræða og örva unga menn til
starfa og framtaks um nám sitt og önnur gagnleg við-
fangsefni. En persónuleg áhrif þessu gerfilega, starfs-
glaða, hlýhuga manns voru sízt minna virði en fræðslan
og munu seinast úr minni ganga lærisveinum hans. Um
fræðistörf hans verður hér fátt sagt, enda auðnaðist
honum ekki að Ijúka við svo semSneitt af því, sem hann
hafði þó lagt mikla vinnu í. Helzt mætti hér nefna rit-
gerð hans um Brand biskup Jónsson (Skírnir 1923).
Ritgerðina um Gissur biskup Einarsson, er aldrei var
prentuð, og rit um ættir Strandamanna, er var í prent-
un er hann lézt, en varð ekki fulllokið. Rannsóknum
hans um íslenzka kirkjusögu á 14. og 15. öld varð aldrei
lokið, en þar var hann nokkuð á veg kominn og yfir-
leitt var hann prýðilega vel að sér í miðaldasögu vorn
og sögu Sturlungaaldar, og svo í ættfræði að fornu og
nýju. Hefði hann vafalaust unnið hér mikið og merki-
legt verk, ef honum hefði enzt aldur til og mátt gefa
sig við slíku, eins og hann hafði mestan hug á síðustu
æviár sín.
Hér verður ekki rakinn stjórnmálaferill Tryggva Þór-
hallssonar til neinnar hlýtar, því að til þess, að svo mætti
verða, yrði að rita sögu Framsóknarflokksins og þar
með alla stjórnmálasögu vora um a. m. k. 15 ára skeið,