Andvari - 01.01.1939, Blaðsíða 124
120
Einokunarfélögin 1733 — 1758
Andvari
fé félagsins, eignir, sem stofnendurnir létu ganga til
þess, og lán, sem félagið tók þegar það var nýstofnað.
Því miður eru ekki til aðrar heimildir um uppgjör þessa
félags, en íslandslýsing Skúla var verðlaunuð af hinu
kgl. danska landbúnaðarfélagi, og það hefir eflaust get-
að aflað sér öruggrar vitneskju um slíkt atriði sem þetta,
enda mundi Skúli naumast hafa leyft sér svona lagaða
staðhæfingu í slíku riti, án þess að vita vissu sína.
Hinn 16. apríl 1743 var íslenzka verzlunin boðin upp
til tíu ára, og varð hörmangaralagið í Kaupmannhöfn
hæstbjóðandi með 16 100 dala ársleigu. Nú vandaðist
mál hörmangara, því að þeir höfðu ekki nærri nógu
mikið fé til að reka verzlunina. Fyrst reyndu þeir að
bjóða þeim, meðal hinna frá farandi íslandskaupmanna,
sem verið höfðu í hörmangaralaginu, þátttöku í verzl-
uninni, en þeir neituðu allir og minntu á, að þeir væru
sama sem reknir úr hörmangaralaginu síðan deilan stóð
milli þess og verzlunarfélagsins. Samt réðust hörmangar-
ar í að stofna nýtt íslenzkt verzlunarfélag, sem þá var
kallað, og skyldu hlutirnir vera á 1 000 dali hver, eins
og í félaginu, sem frá gekk, en ekki gátu þeir sjálfir
skrifað sig fyrir meira en 49 hlutum, og þrír borgarar
utan hörmangaralagsins, sem þeir fengu í félagið með
sér, skrifuðu sig fyrir níu hlutum alls. Voru nú komnir
58 000 dalir, en það fé nægði ekki til að hefja verzl-
unarreksturinn, og hörmöngurum veitti fyrst um sinn
erfitt að fá peningamenn í samlag við sig, enda segir
öldurmaður þeirra, sem þá var, að gömlu íslandskaup-
mennirnir hafi spillt fyrir þeim á allan hátt. En þá kom
lautinant nokkur, Lewetzow að nafni, hörmöngurum til
hjálpar og lánaði þeim 60 000 dali. Með þessu fé hófu
þeir verzlun sína hér á landi vorið 1743. Áður en mörg