Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1931, Blaðsíða 41
IÐUNN
Björgvin.
235
og sýnir bæjarbúum vindáttina, pví að veðurviti þessi
sést vel neðan úr bænum. Flöj er sama sem fliaug, er
þýðir ör; Flöjfjeld: Flaugarfjalil. Skamt frá brún er
þar veitingastaður kunnur, sem ljómaðii mjög í Ijósa-
dýrð á kvöldum; kom ég þar aldrei upþ á fjöllin að
kvöldi dags, en um daga þótti mér gott að sitja uppi á
einhverjum fjallkollinum og hugsa um sögu og landa-
fræði Noregs, auk margs annars, að jarðfræðinni
ógleymdri. Er þarna mjög ólíkt landslag því, sem á
íslandi er, og bergið mjög miklu eldira.
II.
Ekki má svo stutt skrifa um Björgvin, að ekki sé get-
ið um eina þá mestu bæjarprýðdi, sem þar er, safnið
mikla, Bergens Museum. Er safn |>etta bænum til mikils
sóma, og hefir nú verið settur þar á stofn háskóli, í
sambandi við það. Tvo af prófessorunum, var ég svo
heppinn að hitta, af því að þeir voru af sérstökum
ástæðum staddiir í bœnum þá dagana, fyrst hinn ágæta
■dýrafræðing próf. Aug. Brinchmann; var það mér
mikilsverð stund, er hann sýndi mér dýrafræðideild
safnsins, og þótti mér einkum mikið til koma að sjá
kensludeiild þá, er hann hafði útbúið af mi'killá snild;
hafði han-n, ef ég man rétt, unnið að því í 10 ár, að
koma upp deild þessari. Meðal annars, sem >próf.
firinchmann sýndi mér, var hjarta úr hval; hafði ég
Það ekki áður séð; var það býsna myndarlegt líffæri,
Þó að ekki væri það úr neinuni hinna stærri hvala.
Kiom mér í hug, hversu fróðlegt mundi vera að geta
séð starfa í fulílum krafti hjarta, sem er að þyngd á
við stórt naut, eins og vera mun i hinum stærstu hvöl-
um, og hversu furðuleg vé! slíkt er, sem getur haldið
hfram að starfa hvíldarlaust í 200 ár eða lengur; er