Hlín - 01.01.1954, Page 81
Hlín
79
alþjóðavísu, svo ekki þurfa karlmennirnir að kvarta. —
En þó að smekkur og fataprýði ráði altaf miklu, þá hygg
jeg, að þær hafi altaf verið vel klæddar eftir því sem efni
leyfðu. — Ef vjer skoðun vandlega hinar ágætu myndir
Gaimards, þá er það eftirtektarvert, hve fataprúðar allar
konur eru á myndunum. í þeim efnum má treysta dómi
Fransmannsins. — Jeg minnist líka með milli ánægju
greinar, sem jeg las nýverið, og vissi ekki áður að var til,
eftir Jónas Hallgrímsson um íslenskan kvenbúning. Grein
Jónasar er eins og myndir Gaimards. — Hann gerir að
vísu grein fyrir hugsanlegum breytingum, en segir jafn-
framt, að öll framkvæmd sje í höndum kvenþjóðarinnar
sjálfrar. — Greinin sjálf er listaverk, og á sama erindi í dag
eins og fyrir meir en hundrað árum, ef ekki enn ríkara. —
Það er með stolti fyrir hönd þessa hjeraðs, sem ól Jónas
Hallgrímsson, að jeg nefni liann í sambandi við kvenbún-
ing og heimilisiðnað.
Jeg lýsi yfir því, að þessi heimilisiðnaðarsýning er opn-
uð, og þakka Sambandi norðlenskra kvenna og öllum
þeim, sem vinna að því að varðveita og fegra fornan stíl
og iðnað og varðveita samhengið í þjóðlegri menningu.