Búfræðingurinn - 01.01.1940, Qupperneq 41
BÚ FHÆÐINGURINN
35
ineð því, þegar hvalur eða selur er skorinn til refafóðurs,
að ekkert spik fj'lgi með kjötinu. Sc þessa vandlega gætt
og aðeins notað hryggkjöt af hvalnum, þá verður að telja
hvalkjöt mjög gott refafóður. Reynslan hefir sýnt, að sum-
arfóðrun með góðu fitulausu livalkjöti gefur mun hrein-
litaðra og hlæfallegra hárafar en fóðrun með lirossakjöti,
sem fitan hefir ekki verið skorin úr að mestu eða öllu.
Það liefir verið, og er enn, trú og skoðun margra, sem
við refarækt fást, að ekki sé hægt að fóðra refi, svo vel
fari, nema allverulegur hluti af fóðri þeirra sé kjöt og
kjötmeti. Það er þó mjög vafasamt, að þetta sé rétt. Margt
virðist henda til þess, að þessu sé ekki þannig farið. Má
færa mörg dæmi því til sönnunar.
J. Nordang, rikisráðunautur í Noregi, hefir um margra
ára skeið rekið allstórt refahú. FjTÍr 10—12 árum siðan
hyrjaði liann að gera tilraunir með fóðrun á refum án
þess að gefa þeim nokkurt kjöt eða kjötmeti. í stað kjöts-
ins notaði liann fisk, fiskimjöl, mjólk og mjólkurafurðir,
en annað fóður var kormnatur, grænmeti, lýsi og önnur
bætiefni eftir þörfum eða á sama liátt og þegar kjöt var
gefið. Árangurinn af þessum tilraunum var svo góður,
að síðast liðin sex ár hefir hann ekki gefið refum á refa-
búi sínu neitt kjöt, en i þess stað fisk, fiskimjöl, nýmjólk
og undanrennu. Skinnin af dýrunum hafa reynzt mjög
góð, hreinlit og með þétt, gljáandi og mjúkt hárafar, og
refir frá refahúi Nordangs liafa lilotið fjölda f}Tstu verð-
launa á sýningum í harðri samkeppni við „kjötrefi“. Frjó-
semi og heilsa dýranna hefir verið í hezta lagi eða sizt
lakara en hjá kjötfóðruðum refum.
Ennis Smith, tilraunastjóri á Ellis Island i Canada, hefir
gert allítarlegar tilraunir með fiskfóður i stað kjöts, og
niðurstöður hans henda mjög i sömu átt og tilraunir Nor-
dangs.
Hér á landi hefir verið gerð ein tilraun, að visu í smá-
um stíl, með fiskfóðrun á silfurrefum. Hefir árangur-
inn orðið mjög góður. Dýrin, sem reynd liafa verið, hafa
bæði verið hraust og frjósöm og feldurinn góður. Þannig