Morgunblaðið - 06.11.2009, Blaðsíða 56
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 310. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
Heimild: Seðlabanki Íslands
DOLLARI
STERLINGSPUND
KANADADOLLARI
DÖNSK KRÓNA
NORSK KRÓNA
SÆNSK KRÓNA
SVISSN. FRANKI
JAPANSKT JEN
SDR
EVRA
MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG
124,27
205,03
116,57
24,771
21,783
17,587
122,01
1,3765
197,89
184,35
Gengisskráning 5. nóvember 2009
124,57
205,53
116,91
24,843
21,847
17,639
122,35
1,3805
198,48
184,87
237,2181
MiðKaup Sala
124,87
206,03
117,25
24,915
21,911
17,691
122,69
1,3845
199,07
185,39
Heitast 8°C | Kaldast 3°C
Austan og norð-
austan 10-18 og rigning
einkum sunnan- og suð-
austantil, hvassast um
landið norðaustanvert. »10
Það er spilað á skyn-
færi áhorfandans í
fjöllistaverkinu
Hnykli sem verður
frumsýnt í kvöld á
Seltjarnarnesi. »49
LEIKLIST»
Margslung-
inn Hnykill
ÍSLENSKUR AÐALL»
Tómas Lemarquis spurð-
ur spjörunum úr. »48
Íslensk grafík fagn-
ar fertugsafmæli
sínu með sýningu í
Norræna húsinu
sem verður opnuð á
morgun. »46
MYNDLIST»
40 ára
grafíkfélag
AF LISTUM»
Viljum við frið eða gösl-
aragang á aðventu? »50
KVIKMYNDIR»
Kvikmyndin Desember
frumsýnd í dag. »51
Menning
VEÐUR»
1. Linda Björk aftur í varðhald
2. Líklega óþolinmóð að komast …
3. Íslensk kona á flótta í BNA
4. Sex manna fjölskylda neyðist …
Íslenska krónan veiktist um 0,8%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Jólin eru komin í
Nýdönsk, alveg
eins og í IKEA,
segir söngvari
sveitarinnar
Daníel Ágúst
Haraldsson en
hún stendur fyrir
snemmbæru jólaballi á NASA á
morgun. „Ég held, í alvörunni, að
ekki sé vanþörf á að hleypa hátíð-
arljósinu inn aðeins fyrr þetta árið í
ljósi aðstæðna,“ segir Daníel. „Við
ætlum að klæða nokkur laga okkar í
jólabúning og styðjumst þar við jóla-
legasta hljóminn af þeim öllum,
hreindýrabjölluhljóminn.“
TÓNLIST
Nýdönsk jóla sig og aðra
upp á NASA á morgun
Landsliðsfyrir-
liðinn í knatt-
spyrnu, Hermann
Hreiðarsson,
verður ekki með í
vináttuleiknum
gegn Lúxemborg
14. þessa mánaðar.
Hermann er enn að jafna sig af
meiðslum í il sem hafa plagað hann
síðustu mánuði en hann hefur ekkert
getað leikið með Portsmouth-liðinu
á leiktíðinni. Hermann segist munu
byrja að æfa með liðinu af krafti á
mánudaginn en hann hefur verið
mun lengur að jafna sig en ráð var
fyrir gert.
FÓTBOLTI
Hermann verður ekki með
landsliðinu í Lúxemborg
Ung íslensk leik-
kona, hin tíu ára
gamla Katrín Al-
freðsdóttir, leik-
ur aðalhlutverkið í
sjónvarpsþáttaröð-
inni Theu og Leo-
pold sem frumsýnd
er í dag á dönsku sjónvarpsstöðinni
DR1.
Katrín er alíslensk en fæddist í
Danmörku þar sem hún hefur búið
meira og minna síðan.
Samkvæmt sjónvarpsdagskrá
sem birt er á útvarpssíðu Morgun-
blaðsins verður þátturinn sýndur
klukkan 16.
SJÓNVARP
Fyrsti þáttur Theu og Leo-
polds sýndur á DR1 í dag
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
GOLFFERÐIR til útlanda hafa sjaldan notið
jafnmikilla vinsælda og einmitt í haust, ef marka
má forsvarsmenn þriggja ferðaskrifstofa, VITA,
Úrvals-Útsýnar og Heimsferða. Þrátt fyrir hærra
verð á ferðum og stórhækkað verðlag á áfanga-
stöðum hefur hvert sæti verið skipað og mikill
áhugi á síðustu ferðunum þetta haustið. Jafnframt
er því sem næst fullt í golfferð Úrvals-Útsýnar til
Taílands í janúar.
Með ákveðnum fyrirvörum má gera ráð fyrir að
í haust hafi um fimmtán hundruð Íslendingar með
golfsettin á bakinu flúið Icesave, stöðugleikasátt-
málann og almenna umræðu á illa höldnu landinu.
Fleiri eru á flótta því Úrval-Útsýn hefur bætt við
tveimur ferðum í þessum mánuði og hafa verið
góð viðbrögð við þeim.
„Við höfum ekki selt fleiri golfferðir að hausti í
sögu fyrirtækisins,“ segir Þorsteinn Guðjónsson,
framkvæmdastjóri ÚÚ. „Það seldist fljótt upp hjá
okkur í allar ferðir og svo vorum við í því að bæta
við ferðum fram í nóvember.“ Hann bætir við að
um fjörutíu manns fari í golfferð með ferðaskrif-
stofunni til Taílands í upphafi nýs árs.
Helgi Eysteinsson, framkvæmdastjóri ferða-
skrifstofunnar VITA, segir golftímabilinu hafa
lokið um mánaðamótin síðustu. Uppselt hafi verið
í allar ferðir haustsins og sama segir Tómas
Gestsson, framkvæmdastjóri Heimsferða.
Enn flykkist fólk í golfferðir
Gríðarlegur áhugi var á golfferðum til útlanda í haust og hvert sæti skipað
Um fimmtán hundruð Íslendingar fóru með þremur ferðaskrifstofum
Reuters
Í blíðu Þar sem frostið hefur tekið yfir velli hér á landi er gott að skreppa í hlýjuna til að spila golf.
ÍRSKI tónlist-
armaðurinn
Damien Rice hef-
ur á síðustu dög-
um staðið fyrir
opnu upptöku-
ferli í ótilgreindu
hljóðveri á
höfuðborgar-
svæðinu þar sem
fámennur hópur
áhorfenda hefur átt kost á því að
fylgjast með honum tilkeyra nýtt
efni. Rice, sem er mikill umhverf-
issinni, ætlar jafnframt að nýta dvöl
sína hér til að vekja máls á því
hugðarefni sínu með sérstakri dag-
skrá í Ráðhúsinu í dag kl. 16. Ekki
nóg með það, heldur mun hann
gróðursetja í Hljómskálagarðinum
ásamt leikskólabörnum og borg-
arstjóra fyrr um daginn, í sér-
stökum Laufásborgarlundi. | 53
Damien Rice hlúir
að íslenskri náttúru
Damien Rice
SÁ einn veit er víða ratar segir í Hávamálum og þetta
vita líka þeir háskólanemar sem sóttu Alþjóðadag á Há-
skólatorgi í gær. Markmið Alþjóðadags HÍ er að gefa
nemendum tækifæri til að kynna sér hvernig þeir geta
auðgað námið með því að flétta það saman við erlenda
skóla enda eiga íslenskir háskólar í samstarfi við
hundruð skóla á erlendri grundu. Fjöldi Íslendinga
dýpkar árlega þekkingu sína og reynslu með námsdvöl
í öðrum löndum og þótt gengi krónunnar þyngi róð-
urinn er lífsreynslan sem í því felst öllum ómetanleg.
Morgunblaðið/Kristinn
VÍÐA RATAÐ Á ALÞJÓÐADEGI
MEÐ hlýnandi veðurfari eru nú far-
fuglar fyrr á ferðinni á vorin og ló-
an kemur allt að tíu dögum fyrr en
hún gerði í kringum 1990. Far-
fuglar sem dveljast í NV-Evrópu yf-
ir vetrartímann virðast þannig geta
metið aðstæður hérlendis á vorin
áður en lagt er í farflug. Fuglar
sem koma lengra að eiga hins veg-
ar erfitt með að meta aðstæður og
koma á svipuðum tíma og áður.
Þetta er meðal þess sem lesa má
úr rannsókn Tómasar Grétars
Gunnarssonar líffræðings. | 8
Farfuglar geta metið
aðstæður fyrirfram