Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2005, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST2005
Fréttir DV
Sigurjón
ræðir Eiða
Fundur um málefni Eiða
fór fram á miðvikudaginn
en nú eru um fjögur ár síð-
an nýir eigendur tóku við
staðnum af sveitarfélaginu.
Mörgum hefur
fundist lítið hafa
orðið úr áformum
Sigurjóns Sighvats-
sonar og félaga sem
keyptu Eiða á sín-
um tíma. Á fundin-
um ræddi Sigurjón
starfsemina undan-
farin fjögur ár og urðu
miklar umræður um málið
enda er það umdeilt eystra.
(slandsmót í
kranastjórnun
íslandsmótið í krana-
stjómun verður haldið við
Bæjarflöt í Reykjavík frá
kiukkan 8 til 18 í dag. Sam-
bærilegar keppnir em
haldnar um alla Evrópu og
vinnur sigurvegarinn á
mótinu þátttöku-
rétt í Evrópumót-
inu í kranastjórn-
un sem haldið
verður í Þýska-
landi í haust.
Keppendur eiga
að leysa þraut á nýjum
krana á sem bestum tíma.
„Það eru komnir 28 kepp-
endur og ég veit að ein-
hverjir eiga eftir að
hringja," sagði IngólfurÁ.
Sigþórsson, einn aðstand-
enda mótsins, seinnipart-
inn i gær.
Menningamótt
á sunndegi
Einar Bárðarson
menningarfrömuður.
„Ég vil frekarsjá menning-
arnótt þróastyfir í viöburð sem
næryfir heila helgi i stað þess
að einskorða hátiðarhöldin við
einn dag. Ég er ansi duglegur
sjálfur að sækja viðburði
menningarnætur en ég kemst
ekki yfir nema brot afherleg-
heitunum. Mér finnst ótækt að
láta agavandamál nokkurra
einstaklinga slá sig út aflag-
inu. Þetta er glæsileg hátíð þar
sem mjög vel er að öllu staðið
og nær væri að refsa þeim ör-
fáu sem valda usla í stað þess
að agnúast útíþá sem standa
að hátíðinni."
Hann segir / Hún segir
„Ég missti af menningarnótt
þar sem ég er ekki stödd á
landinu og þvi kannski ekki i
stöðu til að tjá mig um málið.
Ég tók aftur á móti þátt I fyrra
og man ekki betur en allt hafi
farið vel fram. En efþetta er að
fara útí vitleysu er líklega best
að taka í taumana. En efþetta
á að vera partí er kannski
betra að hafa frí daginn eftir
en þeir hér í Helsinki halda
sína menningarnótt i kvöld, á
virkum degi, svo það er
kannski bara í góðu lagi."
Bjargey Ólafsdóttir
myndHstarkona.
Starfsmenn leikskólans Marbakka í Kópavogi starfa við hræðilegar aðstæður.
Matvæli eru geymd í gömlum skúr sem komið var fyrir á lóð skólans fyrir mörg-
um árum og kalt er á veturna þar sem einangrun er ekki lengur þétt og gluggar
halda ekki kuldanum úti. Starfsmennirnir hafa ritað leikskólanefnd bréf og bæjar-
fulltrúi lofar að bæta ástandið.
starfsmönnum urbotum
„Ég lofa starfsfólkinu
á Marbakka að fast
verði tekið á þessu
„Jú, það er rétt, viðhaldið hefur setið á hakanum í nokkurn
tíma," segir HansínaÁ. Björgvinsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi,
um ástand leikskólans Marbakka. Starfsmenn leikskólans hafa
ritað leikskólanefnd bréf þar sem bent er á slæma aðstöðu
starfsfólks.
máli við næstu fjár-
hagsáætlunargerð."
„Nánast ekkert pláss er í eldhús-
inu til að geyma matvæli, þau eru
geymd í gömlum skúr sem komið
var fyrir á lóð skólans fyrir mörgum
árum. Þangað þarf starfsfólk eldhúss
aö sækja matvæli i hvaða veðri sem
er og jafnvel moka sig þar inn í
verstu vetrar-
hríðunum."
Svona
lýsa
starfsmenn leikskólans Marbakka
ástandinu á vinnustað sínum í bréfi
til leikskólanefndar Kópavogsbæjar.
Að hruni kominn
Leikskólinn Marbakki var byggð-
ur árið 1986. Leikskólastarf hefur
breyst mikið síðan þá
og er húsnæði skól-
ans ekki lengur
fullnægjandi
fyrir það starf
sem nú er
unnið á
leikskólan-
um.
Við-
haldi leik-
skólans
hefur ver-
ið illa
sinnt síð-
ustu árin
og segir
Hansina Á. Björg-
vinsdóttir Bæjarfull-
trúinn segir að við-
haldskólans hafi
setið á hakanum.
Hansína Björgvinsdóttir bæjarfull-
trúi það útskýrast af óvissu um
skipulag leikskólamála í framtíðinni.
Óvíst sé hvort byggja eigi við leik-
skólann og tafist hafi að reikna út
hversu mörg börn þurfi á þjónustu
starfsfólksins á Marbakka að halda.
Á meðan hefur starfsfólkið unnið
við þennan slæma aðbúnað. Þakk-
antur skólans er að hruni kominn,
gólfdúkurinn þar sem börnin leika
sér er illa farinn og á veturna er oft
kalt þar sem einangrun er ekki
lengur þétt og gluggar
halda ekki kuldan-
um úti.
Starfsfólki sárnar áhugaleysi
„Ég lofa starfsfólkinu á Marbakka
að fast verði tekið á þessu máli við
næstu fjárhagsáætlunargerð," segir
Hansína og bætir við að minna eigi
fólkið ekki skilið fyrir sitt óeigin-
gjama starf á leikskólanum. „Það er
okkur mikið kappsmál að hlúa vel að
starfsfólki okkar og við erum ekki
þekkt fyrir annað hérna hjá Kópa-
vogsbæ," bætir Hansína við.
Hólmifíður Sigmarsdóttir, leik-
skólastjóri á Marbakka, vonast til að
Hansína standi við stóm orðin og knýi
á um úrlausnir fyrir starfsfólk. „Okkur
hefur náttúrulega sámað hversu illa
þessu hefur verið sinnt en við erum
bjartsýn á að tekið verði á þessu
ástandi sem fyrst," segir hún.
Þetta viðhorf endurspeglast einnig
í bréfi starfsmanna til leikskólanefnd-
arinnar. „Marbakki er lítill, vinalegur
leikskóli með stóra sál. Það er gott að
vera á Marbakka og böm og starfsfólk
una sér vel í leik og starfi. Það hlýtur
þó að teljast mikilvægt að sú að-
staða sem boðið er upp á af hálfu
bæjarins sé í takt við nýja tíma,
breyttar áherslur og auknar
kröfur til faglegs gæða-
staifs."
andri@dv.is
Marbakki Aðstaða starfsfóiks
er ekki til fyrirmyndar.
Sjálfstæöismenn gagnrýna skýrslu
Segja borgarstjóra handstýra
endurskoðun
Kjartan Magnússon
borgarfulltrúi Segir
skýrslu tortryggilega.
„Ég held að maður hljóti að velta
því fýrir sér hvort innri endurskoðun
sé handstýrt af borgarstjóra, miðað
við þessa skýrslu," segir Kjartan
Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins en á fundi borgarráðs í
gær lögðu borgarráðsfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins ffam bókun þar sem
þeir gagnrýna skýrslu innri endur-
skoðunar Reykjavíkurborgar á kaup-
um á Stjömubíósreitnum. Sjálfstæð-
ismenn í borginni fóru fram á það á
sínum tíma að skýrslan yrði gerð en
þeir töldu að kaupverð lóðarinnar
hefði verið alltof hátt en hún var sem
kunnugt er í eigu Jóns Ólafssonar
kaupsýslumanns.
„í skýrslunni er fundið að máls-
meðferðinni en niðurstaðan er sú
að verðið hafi verið sanngjarnt,"
segir Kjartan og bætir við: „I skýrsl-
unni kemur fram mikil ónákvæmni
og ýmsum hugtökum er ruglað
saman. Ég get til dæmis nefnt að
þeir finna markaðsverð á lóðinni í
ársskýrslu Fasteignamats ríkisins
árið 2003 en kaupin fóru auðvitað
fram árið 2002 þegar fasteignaverð
var miklu lægra," segir Kjartan og
segir að fjölmargt í skýrslunni sé
bæði villandi og rangt. Hann segir
að miðað við leiðréttar forsendur
verði niðurstaðan sú að borgin
hefði átt að kaupa lóðina á sjötíu
milljónir en ekki hundrað og fjöru-
tíu eins og hún gerði á sínum tíma.
„Innri endurskoðun heyrir undir
borgarstjóra sem er auðvitað mjög
óeðlilegt og maður hlýtur að velta
því fyrir sér hvort borgarstjórinn
handstýri henni," segir borgarfull-
trúinn.
Starfsfólki fækkar
Hagstofan hefur tekið saman tölur
um starfsfólk í skólum á háskólastigi í
mars 2004. Þar kemur ffam að alls
starfa 2.378 manns við skólana í 1.835
stöðugildum. Starfsmönnum hefur
fækkað um 137 frá því á sama tíma árið
2003 en stöðugildunum hefur fjölgaö
um 26. Fækkunin er aðallega á meðal
starfsmanna sem unnu hlutastörf og er
meiri á meðal kvenna en karla.
fvið fleiri konur starfa í skólum á
háskólastigi, em 51% af starfsmönn-
um. Konumar em fleiri meðal lektora
og í sérfræðistörfum ýmiss konar sem
og skrifstofustörfum en karlar em fjöl-
mennari í stöðum rektora, prófessora
og dósenta. Athygli vekur þó að konur
em rektorar í tveimur stærsm háskól-
um landsins því Guðfinna S. Bjama-
dóttir er rektor Háskólans í
Reykjavík og Kristín .
Ingólfsdóttir er ný- j
skipaður rektor Há-l
skóla Islands.
Kristín og Guðfinna Konur
ráða ríkjum i tveimur stærstu
háskólum landsins.