Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2005, Síða 18
515 6100 I SYN.IS I SKIFAN I OG VODAFONE
TIL ÁRAMÓTA:
ÁSKRIFTARTILBOÐ
// einn mánuður fritt
sSœsssss
■ilisvæði Digital Islands
IVERPOO
CSKA MOSKVA
I KVOLD KL. 18
SUPER CUP
Forráðamenn ÍBV í Landsbankadeild karla í knattspyrnu eru
æfir eftir að í ljós kom að Börkur Edvardsson, formaður knatt-
spyrnudeildar Vals, ræddi við Atla Jóhannsson, sem er
samningsbundinn ÍBV til ársins 2006. ÍBV hefur kært Val.
Börkur reyndi aö
lokka fltla til Vals
Atli Jóhannsson Hefur
um árabil verið einn allra
besti leikmaður IBV.
vita hver Atli Jóhannsson væri og
kannaðist ekkert við að hafa hringt í
neinn með því nafni. Þá bætti hann
því ennfremur við að orð stæði gegn
orði í þessu máli.
Eins og fram hefur komið hér á
undan hafði Börkur aðra sögu að
segja þegar DV ræddi við hann
nokkrum klukkustundum síðar. Þá
viðurkenndi harm fúslega að hafa
hringt í Atla vegna mistaka sem eru
komin til vegna rangra upplýsinga
frá heimildarmanni sem Börkur vill
ekki gefa upp hver er, eins og fram
hefur komið.
Börkur er því eins tvísaga og hægt
er að verða og virðast skýringar á
málinu vera valdar eftir því hvaða
fjölmiðill á í hlut.
vignir@dv.is, baldur@dv.is
Börkur Edvardsson
Kvaðst I fyrstu ekki vita
hver Atli Jóhannsson
væri en sagði síðan
um misskilning hefði
verið að ræða.
Knattspyrnudeild ÍBV hefur kært knattspyrnudeild Vals til
Knattspyrnusambands íslands fyrir að hafa rætt ólöglega við
Atla Jóhannsson, einn besta leikmann liðsins, en hann er
samningsbundinn ÍBV til ársins 2006.
Forsaga málsins er sú að fyrr í
vikunni hringdi Edvard Börkur
Edvardsson, formaður knattspyrnu-
deildar Vals, persónulega í Atla úr
eigin farsíma og spurði hann hvort
hann hefði hug á að ganga til liðs við
Val næsta sumar. Atli kvaðst
samningsbundinn ÍBV til ársins
2006 og að hann ætlaði sér að standa
við þann samning. Samkvæmt
reglum KSÍ er félögum stranglega
bannað að ræða við samnings-
bundna leikmenn án þess að hafa
fengið leyfi frá því félagi sem
leikmaðurinn er samningsbundinn.
Óþolandi vinnubrögð
Gísli Hjartarson, ritari knatt-
spyrnudeildar ÍBV, segir vinnubrögð
Valsmanna vera lúaleg í meira lagi,
en Valur og ÍBV eigast einmitt við í
Landsbankadeildinni í næstu viku.
„Svona vinnubrögð eru óþolandi og
til háborinnar skammar," segir Gísli.
Edvard Börkur segir að um mis-
skilning hafi verið að ræða. „Við
höfðum það eftir áreiðanlegum
heimildum að samningur leik-
mannsins hefði verið að renna út og
höfðum enga ástæðu til að rengja
það. Eftir að í ljós kom að hann var
samningsbundinn ÍBV lengur en út
sumarið báðumst við afsökunar,"
sagði hann í samtali við DV um
kvöldmatarleytið í gær.
Edvard er tvísaga
Edvard harðneitaði að gefa upp
hver þessi heimildarmaður sinn
væri, en þess má geta að á
heimasíðu KSI er hægt að sjá
samningslengd allra • leikmanna
Landsbankadeildarinnar á afar
auðveldan hátt og eru þær upp-
lýsingar opnar öllum.
Skömmu áður hafði Börkur haft
aðra sögu að segja við vefmiðilinn
Fótbolta.net.
Þar kvaðst
Börkur ekki
Keflvíkingar eru úr leik í Evrópukeppni félagsliða eftir 2-0
tap gegn Mainz i gærkvöld.
Stuðningsmennirnir stálu senunni
Þegar á heildina er litið mega Kefl-
víkingar í raun vel við una, þótt þeir
séu fallnir úr keppni, því þýska liðið
Mainz er gríðarlega vel mannað og
spilar í deild sem er mörgum klössum
ofar en úrvalsdeildin íslenska. Þýska
liðið var þó langt frá því að sýna sínar
bestu hliðar í nepjunni á Laugardals-
velli í gærkvöldi og aðeins þmmu-
fleygur Michaels Thurk eftir 25 mín-
útur, skildi liðin að í fýrrihálfleiknum.
Fallegt mark Toms Geissler undir lok
seinni hálfleiks innsiglaði sigur Þjóð-
verjanna.
Keflvíkingar sköpuðu sér fleiri færi
í leiknum í gær en þeir gerðu ytra á
dögunum, en vitað var að róðurinn
yrði liðinu þungur eins og kom á dag-
inn. Niðurstaðan því samtals 4-0 tap
og Evrópuævintýri Keflvfldnga lokið.
Blaðamaður hitti kollega sinn frá
Þýskalandi í stúkunni í gær og sagði
sá þýski aldrei hafa kom-
ið til greina hjá sínum
mönnum að vanmeta
litla liðið frá íslandi.
„Mótspyma Keflvfldnga
heima í Mainz kom okk-
ur verulega á óvart verð
ég að segja og því tefldi
þjálfarinn ekki á tvær
hættur fyrir síðari leik-
inn. Annars held ég þó að
leikmenn séu dálítið
með hugann við leikinn í
þýsku úrvalsdeildinni
um helgina, því þar em
þeir langt í ffá sannfærandi," sagði
þýski blaðamaðurinn.
Það vom þó ekki úrslit leiksins í
gær sem stóðu upp úr heldur frekar
stemmingin á áhorfendapölltmum,
en hún var virkilega skemmtileg.
Áhangendur liðanna hittust í ölstofu
fyrir leikinn þar sem vel fór á með
þeim og þegar leikurinn hófst mátti
heyra stuðningsmenn beggja liða
syngja og tralla. Þeir kölluðust svo á
allan leikinn og settu góðan svip á
leikinn, sem var því miður, ekki sér-
lega íjömgur.