Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2005, Page 20
20 FÖSTUDACUR 26. ÁGÚST2005
DV Heimilið
FÖSTUDAQUR 26. ÁGÚST2005 21
Egg eru skemmtilegt byggingeretni
„Þetta er lítið en skemmtilegt verkefni sem er um
að gera að dunda við með krökkunum," segir þúsund-
þjalasmiðurinn Mummi þjöl, sem að þessu sinni ætl-
ar að víkja frá hefðbundnum byggingarefnum og leika
sér með egg í matargerð. „Það vita ekki allir að egg, þá
bæði eggjarauðan og eggjahvítan eru skemmtileg
byggingarefni og hægt að útbúa ótrúlega hluti með
þeim.
Skurnin brotin varlega
Síðan er skurnin brotin varlega, betra er að brjóta
bara efri hlutann á henni svo eggið sé meðfærilegra.
Því næst er hvítunni hellt varlega ofan í kökumótið
á pönnunni en rauðan sett í annað mót. í raun má
samt alveg blanda þessu saman, en mér þykir bara
faliegra að gera þetta svona, ég er nefnilega svoh'tiU
sérviskupúki inn við beinið.
Piparkökumót á pönnu
„Finnið piparkökumót og leggið þau á pönnu og
látið hitna svolítið, best er að smyrja mótin með smá
olíu fyrst."
Egg með fallegu lagi
Eggin eru svo steikt í gegn við lágan hita. Því næst
eru þau losuð úr mótunum og síðan borin fram með
hverju því sem fólki þykir fara vel við egg með fallegu
lagi.
Skemmtilegt, einfalt og ljúffengt
Ertu með góða ábendingu?
Sendu okkur tölvubréfá heimili@dv.is efþú ert meö ábendingar
um skemmtilegt viöfangsefni á heimilissiður DV.
Sinnirnú
myndlistini
„Ég hætti fyrir löngu að hafa bóls-
trun sem aðalatvinnu mína en nú
tek ég bara einhverja sérstaka hluti
að mér, fallega antikmuni og þess
háttar," segir Kristján Jóhann Ólafs-
son, fyrrverandi bólstrari og
meðlimur í Silfurh'nunni. Hann
segist hafa unnið við bólstrun í
30 ár, en síðustu árin hafi þó ver-
ið lítið að gera og þá hafi hann
fengið sér vinnu í verksmiðjunni
Plastprenti til að hafa meira fyrir
stafni. „Það var fi'nasta vinna,
skammt frá og mikið af góðum
krökkum sem ég kynntist þar. Mér
finnst þó gaman að hafa loksins
tíma til að sinna myndlistinni eins
og mig langaði ailtaf," segir Kristján,
en hann hefur alla tíð haft brenn-
andi áhuga á að mála.
„Við höfum svo góða aðstöðu í
Hraunbæ, þar er mikið líf og ijör og
margir fallegir munir gerðir úr efn-
um af ýmsu tagi. Ég sjálfur einbeiti
mér samt helst að því að mála
landslagmyndir úr Hvalfirðinum.
Það eru nokkrir krakkar þarna eins
og ég sem helst vilja bara mála
staðina þar sem þau ólust upp,"
segir Kristján og skellir upp úr þeg-
ar hann áttar sig á því að hann talar
um sig og félaga sína í Hraunbæ
sem krakka. „Það er gott að vera
ungur í anda og geta haft eitthvað
fyrir stafni á efri árunum."
Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
FOSFOSER
MEMORY
s- og söluaðili
sími: 551 9239
Heimilið DV
Gerir upp píanó í frístundum
„Undanfarin ár hef ég verið að gera upp gömul píanó sem ég hef svo
selt aftur," segir Haraldur Sigfússon píanóstillingamaður. Hann segist
lengi hafa haft áhuga á þessum stóru og hljómfögru hljóðfærum þó
hann hafi lengst af unnið sem leigubflstjóri.
„Ég hætti að keyra þegar ég varð 72 ára gamall og þá var gott að
geta gripið aftur í píanóin, en ég lærði að stilla þau hjá Pálma heitn-
um ísólfssyni," segir Haraldur sem hefur undanfarin ár tekið að sér
gömul píanó og gert þau upp til að selja aftur.
„Lengi hefur fólk haldið að við séum ekki fullgildir samfélags-
þegnar eftir að við höfum náð sjötugu. Ég hef þó séð að þeir í Húsa-
smiðjunni hafa verið að óska eftir því að fá eldri menn í vinnu við
þjónustustörf, enda búa margir yfir mikilli þekkingu á þeim vörum
sem þar eru í boði." Hann vonar að í framtíðinni verði meira litið til eldri
borgara og telur að þeirra kunnátta sé oft vannýtt í samfélaginu.
„Það er slæmt að hafa ekkert að gera þegar árin færast yfir, það er að
segja ef heilsan leyfir manni að halda áfram að vinna. Margir finna sér
eitthvað að gera, en eins og alltaf eru þeir til sem ekki finna sér neitt,"
segir Haraldur, en hann telur iðjuleysi oft orsök þunglyndis sem hrjáir
svo marga.
Silfurlínan eru samtök eldri iðnaðar-
manna kölluð. Þótt aldurinn hafi færst
yfir þykir þeim nauðsynlegt að geta gripið
í gamla starfið og hafa þeir getið sér gott
orð fyrir velunnin störf enda vandfundnir
menn með meiri reynslu og áhuga. DV
ræddi við nokkra af þessum mönnum og
kannaði hvað þeir höfðu fyrir stafni.
bokDindari meö
áhuga á næringu
„Það er nú þannig að við sem eru komin á aldur megum helst ekki gera
neitt og jafnvel þótt við höfum heilsu og vilja til að gera eitthvað þá er okk-
ur hegnt fyrir það með skerðingu ellilífeyris," segir Halldór Stefánsson, bók-
bindari og dreifingaraðili Herbalife, en hann komst nýlega á eftirlaun. Hall-
dór segist hafa gaman af því að vinna og telur vinnuna ekki síst skipta máli
fyrir heilsu fólks, enda hafi rannsóknir oftsinnis sýnt að þeir sem eitthvað
hafa fyrir stafni á efri árunum halda sér betur.
„Ég er nú samt ekki hættur öllu, ég hef lengi verslað með Herbalife og
hugsa að ég sé nú með þeim elstu sem það selja," segir Halldór og hlær en
hann telur það hafa hjálpað sér mikið í gegnum árin. „Þegar fyrst heyrðist
af þessu hér á landi básúnuðu ýmsir spekingar að þetta væri eitur sem lík-
lega myndi ganga af íslensku þjóðinni dauðri en það er langt frá þvf mín
reynsla. Matur í dag er oft á tíðum orðinn næringarsnauður en Herbalife
inniheldur fullt af næringarefnum og er góð matvara," segir Halldór sann-
færandi, en hann telur að sjálfur hafi hann byrjað að spá í auknum mæli í
hvað hann léti ofan í sig eftir að hann kynntist því. Hann telur að fyrst og
fremst sé mannskepnan það sem hún borðar og að gæta eigi að næringu-
inni áður en haldið er út í apótek.
Halldór tilheyrir félagsskapnum Silfurlínunni, en það eru samtök eldri
iðnaðarmanna sem hafa áhuga á að nýta þekkingu sína til ýmissa viðvika.
Hann segist þó lítið binda inn í dag, en honum þykir leitt hve mikið hefur
dregið úr áhuga fólks á bókum.
„Maður heyrir varla talað um bókasafnara lengur, en það er eins og það
gengur, eitthvað hlýtur að taka við," segir hann þótt greinilegan söknuð
megi greina í rödd hans. „Þetta er svona aðallega til að hafa eitthvað fyrir
stafni því auðvitað má ég ekkert vinna að ráði án þess að þessar 48.000
krónur sem ég fæ á mánuði skerðist. Það er öllum haldið í gíslingu sem eru
á framfæri hins opinbera svo fólk sé ekki að misnota kerfið. Mér hefur þó
oft dottið í hug að það sé betra að einhverjir svindli en hafa þetta svona
strangt, maður getur aldrei komist fyrir allt."
Rafeindavirki og félagi
„Það er ekki spuming að félagsskapur sem þessi er
afar mikilvægur," segir Asgeir Guðnason, rafeindavirki
og meðlimur í Silfurlínunni. Ásgeir segir þó kankvís að
hann teljist þó ekki alveg til eldri borgara þó hann sé
meðlimur í félagsskapnum þar sem hann sé nú aðeins
65 ára. Hann segist þó alla tíð hafa haft ánægju af því
að vera með eldra fólki.
„Ég hef notið þess að vera í félagsskap með eldra
fólki frá því ég var barn og tengi það því að ég hljóti að
vera svona gömul sál," segirÁsgeir og hlær.
Hann telur mikiivægt að eldra fólki sé sinnt, því oft
fyllist fólk einmanaleika þegar árin færast yfir. „Það er
nú einu sinni þannig að það er miklu fleira fólk í
Reykjavík einmana en maður heldur. Oft er hringt í
mann og maður er beðinn um smá viðvik en í raun er
ástæðan sú að fólki skortir félagsskap. Sérstaklega á
þetta við um gamlar konur. Þær lifa eiginmennina sína
og sitja svona aleinar með fjölskyldumyndunum, þess-
ar elskur," segir Ásgeir og greinilegrar samúðar gætir í
rödd hans.
Hann segist hafa afskaplega gaman af starfi sínu og
að hann geti í raun gert við flest öll rafmagnstæki þó
hann hafi mestmegnis verið að gera við myndbands-
tæki, sjónvörp og þess háttar tæki. „Ég held að það
hljóti að vera mikilvægt fyrir alla að geta haldið áfram
að vinna hafi þeir á annað borð heilsu til."
Fyrrverandi
lögregluþjónn
pússar og
olíuber útihurðir
„Ég hafði nú alltaf gaman af því að
grípa í smíðar, en lengst af starfaði ég
sem lögregluþjónn," segir Þórir Her-
sveinsson, fyrrverandi lögregluþjónn
sem er nú í félaginu Silfurlínunni og
sinnir ýmsum viðgerðum, en það er ekki
amalegt að vita af því nú þegar skort-
urinn á iðnaðarmönnum hefur sjaldan
verið meiri.
„Ég er sérstaklega í því að gera við
útihurðir, pússa þær og olíubera. Helst
er þetta fyrir eldra fólk en ég vísa þó
öðrum ekki frá," segir Þórir, sem segir
nauðsynlegt fyrir fólk að geta haft eitt-
hvað fyrir stafiú þó það sé komið á efri
ár. „Þetta er mjög skemmtilegt og gott
að eitthvað kom eftir að ég lauk störf-
um hjá lögreglunni. Það er jú alveg
nauðsynlegt fyrir alla að vinna eitthvað á
meðan heilsan leyfir. Það er nú samt
þannig að fólk vill helst ekki að maður
geri neitt eftir að maður hefúr náð sjö-
tugsaldri," segir Þórir sem var í óða önn
við að hafa sig til fyrir vinnuna.
Draumatækið
Algjört geimskip
„Úff, ég er algert tækjafrík og verö helst aö kaupa allar þær
græjur sem ég heyri um.Égheld að þettasé bara ein erfið-
asta spurning sem ég heffengiö frá blaöamanni, “segir
Þröstur Cestsson, beturþekktur sem Þröstur 3000, og hugs-
ar sig vel um. Eftir talsveröa umhugsun rennur svariö þó upp
fyrir Þresti og hann færist allur I aukana. „Þaö er nýr
Landcruiser 100, þaö er árgerð 2007 sem kemur breytt.
Landcruiserinn veröur aö vera meö öllum aukahlutum en þá
er þetta algjört geimskip. “
Leyfum söfnunaráráttunni
að njóta sín
Margar konur njóta þess aö safna töskum og öörum skrautleg-
um fylgihlutum. Þaö er þó verra þegar þessir hlutir fara aö safn-
ast upp I skápum og þvælast fyrir manni. Söfnun á að fylla mann
ánægju og stolti og engin ástæöa til að fara I felur meö þennan
áhuga. Auðveld leið til að hafa töskur eða annað sllkt er að
hengja þær hreinlega upp á vegg eins og sést á myndinni
hér til hliðar. Þær eru þá alltaftil taks auk þess sem
þær geta alveg verið til augnayndis á vegg rétt eins
og á handlegg. Eftuskudýr barnanna þvælast fyrir
þér má nota svipaöa aðferð til aö losna við
þvælinginn. Umfram allt á að leyfa safninu að
njóta sln.
Birkiaska
ftefy
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
Sími: 551 9239
BETUSAN
Járn og gler ehf - Skútuvogur 1H „ „
Barkarvogsmegin - S: 58 58 900 WWW.jamgler„IS
MARGAR GERÐIR
rywja
Laugavegi 29 • Sími 552 4320
www.brynja.is • brynja@brynja.is