Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2005, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST2005
uv
Lslenski
Tisunn
If ó k u s
1. James Blunt
You’re Beautiful
2. Ufehouse
You And Me
3. Gwen Stefanl
Cool
4. FM Allstars
Sumarlö er tímlnn
5. 3 Doors Down
Let Me Go
6. Black Eyed Peas
Pump It Up
7. Howle Day
Colllde
8. Emlnem
Hallies Song
9. Weezer
Beveriy Hills
10. Fat Joe og Nelly
Get It Poppin
11. Anastacla
Everythlng Bums
12. Akon
Bananza
13. Tlmo Maas
Flrst Day
14. írafár
Alla tíö
15. Juanes
La Camlsa Negra
16. Gorillaz
Dare
17. 50 Cent og Mobb Deep
Outta Control
18. Kelly Clarkson
Behlnd These Hazel Eyes
19. Slmple Plan
Untltled
20. Rlhanna
Pon De Replay
LISHHH
97-7
3.
4.
4 í
m
Trabant
|Maria
System Of a Down
Old School Hollywood
Green Day
jWake Me Up When September
| Ends
Fulli kalllnn MMWm
H| Before 2000
|5. The White Stripes
- My Doorbell
j6. Transplants
Gangsters And Thugs
n. The Viking Giant Show
KB Party at The White House
8. Billy Corgan
Walking Shade
raT”Weezer
teWe Are all On Drugs
10. Mark Lanegan & PJ Harvey
'”“Hit The City
Audioslave
Doesn't Remind Me
Interpol
Narc
Rass
Burt meö kvótann
Death From Above 1979
Black History Month
The Bravery
Fearless
|16. Dr. Spock
Condoleezza
The Killers
All These Things That l’ve Done
18.
Golden Age
Maxlmo Park
■ Going Missing
Hard-Fi
Cash Machine
fíla þá ekkert sér-
staklega. Það eru svona
húkkar sem maður fílar
alveg. Svona lög, svona
melódísk og falleg eins
og Clocks. Mér hefur
reyndar alltaf fundist þeir
hafa getað samið eitt lag
úr Clocks og Speed of
sound. En jú jú þetta er
alveg ágætis hljómsveit.“
Clocks og Speed of sound. En jú, jú,
þetta er alveg ágætis hljómsveit."
Ég heyröi aö ykkur heföi þótt þeir
of mikiö sell-át?
„Það getur vel verið að það hafi
eitthvað með það að gera líka.
Aðalástæðan er samt að við vorum
með okkar eigið prójekt og vorum
bara að einbeita okkur að því.“
Þaö er sem sagt megin ástœöan?
„Það er ástæðan."
Stund milli stríða
Nú nota strákarnir í Sigur Rós
tímann sem þeir hafa heima tO þess
að heimsækja vini og ættingja. Þá
eru þeir einnig að vinna í stúdíói
og undirbúa tónleikaferðina. Það er
bjart framundan hjá strákunum og
á nýja platan þeirra, Takk, eflaust
eftir að slá í gegn eins og fyrra efni
þeirra strákanna.
soli@dv.is
Þetta er bara rökrétt framhald af
því sem við erum búnir að vera að
gera,“ segir Kjartan Sveinsson,
hljómborðsleikari Sigur Rósar um
væntanlega plötu þeirra. Hún ber
heitiö Takk. „Hún er léttari þessi
plata. Meira svona öppbít,” segir
Kjartan, en platan er öll tekin upp í
hljóðveri þeirra í Álafosskvosinni.
Eftirvinnslan fór fram í New York.
Eflaust hægt að dansa
við lögin
Orri Páll Dýrason, trommari
sveitarinnar tekur í sama streng og
Kjartan og segir plötuna vera í létt-
ari kantinum. „Við vorum bara í
þannig stuði þegar við vorum að
gera þessa plötu. Svona ánægðir
með lífið og hamingjusamir. Það
kannski heyrist,” segir Orri.
Voruö þiö svona ánœgöir meö vel-
gengnina eöa...?
„Ég veit það ekki, bara ánægðir
með líflö. Málið með plötima á und-
an, þá vorum við svona víraðir og
þreyttir. Líflð hjá okkur var breytt.
En núna erum við bara sáttir við
það sem við erum að gera, örugg-
ari,“ segir Orri.
Eruö þiö þá búnir aö venjast
frœgöinni?
„Já, öllu þessu breytta lífi, allir
þessir túrar og allt það. Þetta nátt-
úrulega tekur á en núna erum við
bara famir að kunna betur að gera
þetta. Bara orðnir sjóaðir í þessu
sem við erum að gera.“
Þiö taliö um aö platan sé léttari.
Er hœgt aö dansa viö lögin?
„Já, já,“ segir Orri og hlær. „Ég
veit það ekki.“
Hœgt aö stíga nokkur spor?
„Já, já. Eflaust einhvers staðar."
í einhverju ástandi?
„Já.“
Ekkert sukkað
Sigur Rós hefur notið mikilla
vinsælda ytra eins og alþjóö veit en
Kjartan segir að þeir séu jafnvel
vinsælli í Bandaríkjunum en Evr-
ópu. í byrjun september munu þeir
fara í tónleikaferðalag í einn mán-
uð um Bandaríkin. Eftir það snúa
þeir heim til íslands og stoppa í
einn mánuð hér á landi áður en
þeir fara á túr rnn Evrópu.
Hvernig leggst tónleikaferöalagiö
íykkur?
„Bara vel, okkur finnst öllum
gaman að spila. Við njótum þess að
spila læf,“ segir Orri. „Þegar við
erum á túr þá er svo mikil bið og
oft bara brot af þessum tíma sem
fer í að spila. Mikil ferðalög og mik-
il bið, svona lýjandi. En það gleym-
ist þegar við erum komnir á svið.“
Er ekki bölvaö sukk á ykkur á
þessum tónleikaferöalögum?
„Nei, nei, það er álltaf bjór og
svona. Það er alltaf fagnað eftir
hverja tónleika. En nei, nei, ég
myndi ekki kalla það sukk,“ segir
Orri.
Bara gleði?
„Já.“
Hljómsveitin Amina mun slást í
för með Sigur Rós og hitar upp fyr-
ir þá á tónleikaferðalaginu, en Am-
ina útsetur eitt lag með þeim á plöt-
unni Takk.
Þá gerði hljómsveitin nýlega
myndband við lagið Sæglópur, en
það er að sögn Kjartans saga um lít-
inn strák sem vaknar og finnur
ekki sólina. Leggur hann því upp í
ferðalag í leit að sólinni. Myndband
þeirra við lagið Vöku var einmitt
kosið besta myndband ársins af
áhorfendum MTV árið 2003.
Stefniö þiö aö einhverju slíku
núna?
„Við gerum ekki neitt nema að
reyna að fá verðlaun fyrir það,“
segir Kjartan kíminn. „Nei, það er
sko, bara
verið að
reyna að
gera sitt besta. Þó það sé auðvitað
alltaf gaman að fá verðlaun."
Vildu ekki túra með Cold-
play
Hljómsveitin Sigur Rós hefur átt
nokkur lög í stórum Hollywood
kvikmyndum, þar á meðal Vanilla
Sky sem var með Tom Cruise í að-
alhlutverki.
Er eitthvaö svoleiöis á döfinni?
„Það kemur alltaf bara svona
öðru hvoru. En nei, það er ekkert á
döfinni," segir Kjartan. „Það er ein
mynd sem heitir Mysterious skin,
ég veit ekki hvort hún er tilbúin.
En það eru alltaf að koma tilboö
öðru hvoru. Svo bara velur maður
og hafiiar."
Coldplay-strákarnir buöu ykkur
aö túra meö sér ekki satt? Vilduö þiö
þaö ekki?
„Nei, við vorum bara að undir-
búa okkar eigin túr og fannst það
nógu spennandi. Skemmtilegra að
fara út með okkar eigið sjóv og okk-
ar eigin græjur heldur en að vera
hita upp fyrir einhverjar hljóm-
sveitir," segir Kjartan.
Fílið þiö ekki Coldplay?
„Ég fíla þá ekkert sérstaklega.
Það eru svona húkkar sem maður
fílar alveg. Svona lög, svona
melódísk og falleg eins og Clocks.
Mér hefur reyndar alltaf fundist
þeir hafa getað samið eitt lag úr
Ekkert sukk,
rrnsrrss-*-
Gítarar í stjörnuhlutverkinu
Arctic Death Ship er önnur plata
Kimono, en sú fyrsta Mineur-
Aggressif kom út fyrir tveimur
árum. Hún sýndi efnilega sveit sem
haföi ekki náð að fúllvinna tónlistina
sína, hvorki hvað lagasmíðar né upp-
tökur og hijóm varðar. Á Arctic
Death Ship er þessi sama sveit, sem
er reyndar komin með nýjan
trommuleikara, búin að skerpa á
lagasmíðunum og vinna í sándi og
upptökumálum og afraksturinn er í
einu orði sagt frábær plata.
Tónlist Kimono er þróað og leit-
andi gítarrokk. Það má alveg stað-
sefja hana í síðrokkinu, en áhrifa
gætir frá ólíkum tímabilum í rokk-
sögunni, t.d. frá prog-rokki áttunda
áratugarins, post-pönki og banda-
rísku jaðarrokki. Arctic Death Ship
er töluvert fjölbreyttari plata heldur
4^] Kimono Arctic Death
Ship
m. Smekkleysa
★★★★★^
„Þaö er langt
síöan ég hef fengið
jafn mikiö út úr því aö
hlusta á gítarleik eins
og á þessari plötu.“
Tj—"
0.
en fyrri platan. Hún byrjar á hinu þung-
lamalega, en áhrifaríka Standing
PlÖtlJdnmi Wave- Það er eins °8 forspil, en
u' 1 svo taka við jafn ólík lög eins og
hið poppaða Sober, post-pönk
smellurinn Aftermath, „spænska lagið"
Sonar og hið tilraunakennda Onom-
atopoeia. Allt frábær lög. Platan er flott
uppbyggð og endar líkt og hún byrjar á
frekar þungu og drungalegu rokklagi.
Meðlimimir fjórir standa sig allir vel
á plötunni. Trommuleikarinn og bassa-
leikarinn eiga flotta spretti og Alex hef-
ur vaxið mikiö sem söngvari, en það
eru samt gítaramir sem em í stjömu-
hlutverki hér. Ótrúlega ferskir,
skemmtilegir og skapandi hlutir í
gangi. Það er langt síðan ég hef fengið
jafh mikið út úr því að hlusta á gítar-
leik eins og á þessari plötu.
Á heildina litið er Árctic Death Ship
hörku plata. Hún lætur frekar lítið yfir
sér þegar maður rennir henni í gegn í
fyrsta sinn, en eftir nokkur skipti á góð-
um styrk þá er maður gjörsamlega fall-
inn fýrir henni. Hiklaust ein af bestu
plötum ársins hingað til!
TraustiJúltusson