Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2005, Qupperneq 31
i
DV Fréttir
FÖSTUDACUR 26. ÁCÚST2005 31
Ingibjörg Gestsdóttir
Hannar kjóla eftir höfði
hvers og eins.
Stjórnmálasamband við Eystrasaltsríki
26. ágúst árið 1991 tóku íslend-
ingar, fyrstir allra þjóða, upp form-
legt stjórnmálasamband við Eystra-
saltsriídn Eistland, Lettland og Lit-
háen. Þá hafði ísland nýlega viður-
kennt sjálfstæði og fullveldi Lithá-
ens, Eistlands og Lettlands en lönd-
in voru á þessum tíma að losna und-
an oki gömlu Sovétríkjanna. Jón
Baldvin Hannibalsson var utanríkis-
ráðherra á þessum tíma og drifkraft-
urinn í þessu máli. Steingrímur Her-
mannsson var forsætisráðherra.
„Það hefur geysimikla þýðingu
fyrir okkur að ísland skuli taka upp
stjórnmálasamband
við Eystrasaltslöndin.
Ég efast ekki um að
önnur lönd munu
fylgja í kjölfarið," sagði
Lennart Meri, utanrík-
isráðherra Eistlands, 26. ágúst 1991.
Baldvin í pontu Jón Baid■
vin Hannibaisson ávarpaðiiit-
háíska þingið ijanúar 1992. Þá
þess minnst að ár var liðið
fráþvísovéski herinn fórinn i
Litháen og réðst á óbreytta
borgara sem vildu sjálfstæði.
„Síðustu atburðir í Sovétríkjun-
um verða enn frekar til þess að
styðja málstað okkar. Frelsisbarátta
okkar á sér langa sögu. Við áttum í
stríði við Sovétríkin í tvö ár en það
endaði með friðar-
samningi árið 1920.
Eistland átti friðsam-
leg samskipti við
Sovétríkin í tæp 20 ár
eftir það. Við vorum
síðan innlimaðir í
Sovétríkin með Hitler-
Stalín-samningnum
árið 1939 í síðari
í dag
árið 1994 var í Bretlandi
gerð í fyrsta sinn
skurðaðgerð á manni þar
sem komið var fyrir
gervihjarta með rafltlöðu.
heimsstyrjöldinni. Sú innlimun
markaði djúp sár í þjóðarsál okkar,
sár sem Boris Jeltsín er nú að reyría
að græða. Boris Jeltsín styður
Eystrasaltslöndin dyggilega í sjálf-
stæðisbaráttunni," sagði Meri utan-
ríkisráðherra en bæði hann og
kollegar hans frá Litháen og Lett-
landi voru mjög ánægðir með fram-
lag íslands til frelsisbaráttu þeirra.
Ur bloggheimum
Burkninn heitir Páimi
þegar ég eignast mitt eigiö
heimili ætia ég svo sannar-
lega ekki að hafa potta-
plöntur.. að vökva blóm er
eitt það leiðinlegasta sem ég
veit um.. þegarylfa fór heim i
sumar setti hún okkur fyrir það verkefni að
vökva pálma (burknann hennar) og ég
klíndi þvi nottla á gunnar stein þvi ég myndi
alltafgleyma þvi hvort eð er.. hann vökvaði
kvikindið áðan og það klónaði vatnið eða
eitthvað þvi I Omin seinna byrjaði að leka
gulu vatni útum alla gluggakistuna, ógeð!
katrin.is
Karlar þurfa ekki að vera sætir
Nuj, eriggi Anastasia bara búin að fara í
Lasik og henda öllum týpugleraugunum!
Yougo girl! Verst samt að hugsa til allrar
stilisingarinnar sem byggð varí kringum
glyrnurnar. Hún ætlaði að meika það sem
gereygð poppstjarna, en varð að sætta sig
við að títtnefndur John „dauði" Denver, Elvis
Costello og John Lennon eru þeir einu sem
púlla það afað vera með slæma sjón og
selja plötur. En þeir voru líka karlar, og allir
vita að karlarþurfa ekki að vera sætir.
icomefromreykjavik.com/halli/
Heimspekilega þenkjandi handbolta-
hetja
Hef verið að lesa aðeins þó minna sé en
venjulega vegna bara þeirrar einföldu
ástæðu að vera á Islandi. Maður
þarfá allri sinni einbeitingu að
halda til að tjúnast ekki upp I
rytmann sem einkennir þetta
þjóöfélag. Hraðinn maður, ert
ekki að grínast. Og veit ein-
hver hvert förinni er heitið? Veit
einhverhvert takmarkið er og ef
svo þá hvort takmarkið hafí gildi. Shopen-
hauer talar um að maður muni lífsitt eitt-
hvað örlitið betur en skáldsögu sem maður
las einhvern tima á lifsleiðinni. Bara örlitið
betur. Soldið scary.
blog.central.is/melankoli
Skaii danskar fyrir tott
við ákváðum að kíkja á
Istedgade ileiðinni heim, en
fyrirþásem ekki vita aðþá
heitir þessi gata á islensku:
Hórugata. Þarna voru mellur
allsstaðar og aföllum stærðum
og gerðum og tók ein sig til þegar éghuns-
aði hana þegar hún grátbað um Skall
danskar fyrir tott og gafmér olnbogaskot og
var mér ekki farið að standa á sama að vera
að labba þarna I kringum þetta RUGL LIÐI!
Sjitthvað maðurþurfti á bjórað halda þeg-
armaður kom heim.
fazmo.is
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar.
Skrifað í blauta steypu
Eldri kona á Miklubrautinni
skrifar:
í fyrrakvöld varð ég nokkuð
hissa. Tveir ungir drengir stóðu við
blauta steypu fyrir utan Suðurver
og skrifuðu nafnið sitt í steypuna.
Ég hafði fengið mér að borða á
Lesendur
kjúklingastaðnum, en þegar ég
kom gangandi að drengjunum
tóku þeir á sprett. Augljóslega
ánægðin með þetta spellvirki sitt.
Ég spyr nú bara: Hvar er virðing
Hjálpum þeim fátæku
Freyr hestamaður hringdi:
Mikið er ég ánægður með söfn-
unina handa Sigurbirni Bárðar-
syni. Það er náttúrlega fáránlegt að
einn af okkar fremstu íþrótta-
mönnum þurfa að skrimta á 70
þúsund krónum á mánuði. Slíkt er
ekki nokkrum manni bjóðandi,
ekki einu sinni öryrkjanum sem
hóf söfnunina handa Sigurbirni.
Ég er sjálfur búinn að gefa Sig-
urbirni
hluta
af
mínum launum og vil hvetja fólk til
að gera slíkt hið sama. Á svona
stundum þurfa allir að sameinast
og hjálpa lítilmagnanum.
Kannski er samt vitlaust að gefa
Sigurbirni pening. Það er eins og
maðurinn sagði: Það er gott að
gefa fátækum manni fisk, en það er
ennþá betra að kenna honum að
fiska.
1-2
'O :o
Oi -c
3 i£
<o
m
&
æskunnar? Af hverju er allt eyðilagt
og ekkert látið í friði. Þetta er nú
samt bara steypa en mér er alveg
sama. Krakkar eiga að bera virð-
ingu fyrir umhverfi sínu. Ekki að
skemma það. Þetta er eina sem ég
vildi segja.
Á forsíðu DV á mánudag var
fyrirsögnin Dópið gerði son minn
að morðingja og vísað á viðtal við
móður piltsins sem varð öðrum
Haldið til haqa
pilti að bana á
Hverfisgötu.
Setningin var
ekki höfð eftir
móður morð-
ingjans og því
var hún ekki
innan
gæsalappa á
forsíðu heldur
var um túlkun blaðsins að ræða,
ekki orð móðurinnar. Hún sagði
hins vegar að dæmin sanni að
fíkniefnaneysla sé þess valdandi
að menn geri hluti sem þeir
myndu annars ekki gera undir
eðlilegum kringumstæðum.
Geir Ágústsson
skrifar um afrek
R-listans.
Frjálshyggjumaðurinn segir
Tíu stærstu
afrek R-listans
Loksins leið ekki-Sjálfstæðis-
flokkurinn í Reykjavik undir lok, oft
nefíidur R-listínn. Þetta kosninga-
bandaíag þeirra sem ekki geta kos-
ið Sjálfstæðisflokkinn undir nein-
um kringumstæðum mun skilja
eftir sig margar minningar. í fyrsta
lagi var ijármálum borgarinnar
klúðrað á fleiri en einn og fleiri en
tvo vegu.
I öðru lagi var nágrannasveitar-
félögum Reykjavíkur gert kleift að
bæta við sig íbúum með þvf að
gera fólki ókleift að búa í Reylq'avík.
1 þriðja lagi voru allar skattalækk-
anir ríkisstjómarinnar færðar
starfsmönnum Ráðhússins til
brúks. í fjórða lagi tókst að stór-
auka fjölda opinberra starfsmanna
Reykjavíkurborgar án þess að fjölga
dagsverkunum á sama hraða.
í fimmta lagi fengu ekki-Sjálf-
stæðismenn til vinstri tímabundið
atlivarf til að fela stefnu- og hug-
myndaleysi sitt. í sjötta lagi tókst
að sýna landsmönnum hvað Ingi-
björg Sólrún er dugleg að fela
stefnu- og hugmyndaleysi áhang-
enda sinna. í áttunda lagi var reynt,
en án árangurs, að drepa niður
einkaframtak í mermtamálum í
Reykjavík.
í níunda lagi tókst að ijölga fólki
með ákveðna tegund kynfæra á
ffamfærslu hjá útsvars-
greiðendum í Reykjavík
og gera mikið úr því. í
tíunda lagi tókst að
gera manneskju eins
og Steinunni Valdísi
mtf Óskarsdóttur að
borgarstjóra.Ætli
það hafi ekki verið
stærsta aftekið?
Éi
Skemmtilegast að hanna
brúðar- og samkvæmiskjóla
Maður dagsins
Ingibjörg Gestsdóttir er fata-
hönnuður í Pelli og purpura og
hefur haft nóg að gera við að
hanna og sauma brúðarkjóla í
sumar. „Pell og purpuri er 5 ára
gamalt fyrirtæki og við vinnum
þrjár saman og hönnum föt eftir
pöntunum," segir Ingibjörg.
„Strax í menntaskóla fór ég að
sauma fötin mín sjálf," segir
hún. Ingibjörg vinnur í nærfata-
verslun eftir hádegi vegna þess
að það ekki nóg að gera í fata-
hönnuninni til að hafa hana sem
fullt starf.
„Mér finnst skemmtilegast að
hanna brúðar- og samkvæmis-
kjóla," segir Ingibjörg. Hún segir
að flestar konur séu með
„Ekki hægt að verða
ríkur á því að vera
fatahönnuður en
þetta er rosalega
gaman."
ákveðnar hugmyndir þegar þær
koma á staðinn. Hún segir brúð-
arkjólana ekki bara vera hvíta og
klassíska heldur líka í litum og
jafnvel gerða úr skinni og roði.
„Svo eru sumar konur sem fá
ekki á sig föt í verslunum vegna
vaxtarlags síns og koma og láta
sauma á sig," segir Ingibjörg.
Hún segir flest fötin saumuð frá
grunni en að hún sé ekki mikið í
því að breyta fötum. „Ég verð
ekki rík á þessu starfi en finnst
þetta mjög skemmtilegt og þá er
tilganginum náð," segir Ingi-
björg.
Ingibjörg er fatahönnuður og útskrifaðist frá Köbenhavns mode og derígn
skole. Hún starfraekir fyrirtækið Pell og Purpura og hun hannar og saumar
föt á fólk eftir pöntun. -
A
4.