Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.2000, Síða 4

Freyr - 01.05.2000, Síða 4
Ásbjörn Sigurgeirsson, sauöfjárbóndi á Ásbjarnarstöðum: Mikilvœgt fyrir greinina að markaðssetningin takist vel sbjöm Sigurgeirsson hefur rekið sauðfjárbú á Ásbjam- arstöðum í Stafholtstungum í 20 ár ásamt fjölskyldu sinni. Auk þess hefur hann tekið þátt í marg- víslegum félagsmálum fyrir sauð- fjárbændur, bæði í heimahéraði og fyrir landssamtökin. Hann var m.a. í samninganefnd Landssamtaka sauðfjárbænda í viðræðum um nýj- an sauðfjársamning sem nú hefur verið undirritaður. Blaðamaður Freys tók hús á Ásbimi og ræddi við hann um búskap hans, greinina í heild og þá framtíð sem blasir við henni. Ásbjöm er fæddur í Borgamesi 1952 og ólst þar upp. Foreldrar hans eru Dóra Ema Ásbjömsdóttir frá Borgamesi og Sigurgeir Ingi- marsson frá Akranesi. Að loknu grunnskólanámi í Borgamesi hélt hann til Reykjavíkur til náms í Verslunarskóla íslands. Þaðan út- skrifaðist hann sem stúdent 1974 og vann við trésmíðar á sumrin meðan á náminu stóð. Hann lauk síðan búfræðiprófi frá Hvanneyri 1976. Eiginkona Ásbjöms er Kristín Siemsen frá Reykjavík og eiga þau þrjú böm, Gústav Magnús 21 árs, Dóru Ernu 17 ára og Bimu Kristínu 6 ára. Hvernig kom það til að þú hófst búskap á Ásbjartiarstöðum ? Ég hafði lengi haft áhuga á bú- skap og þegar ég frétti að þessi jörð var til sölu létum við hjónin slag standa, seldum hús sem við áttum í Borgarnesi og keyptum jörðina 1980. Við byrjuðum með sauðfjár- búskap í 200 kinda fjárhúsum sem vom hér fyrir og þau fylltust á fyrsta ári. Nú er ég með 450 kinda fjárbú með 370 ærgilda greiðslu- marki og 30-40 hross. Á síðasta ári lagði ég inn um 9 tonn af kinda- kjöti. Hvernig hefur afkoman verið af búinu ? Fyrstu árin, þegar við vomm að koma okkur fyrir og byggja upp jörðina, voru erfiðust hjá okkur eins og flestum öðmm sem standa í þessum sporum. Þessu frumbýl- ingstímabili lauk eftir 4-5 ár og síð- an þá hefur reksturinn skilað hagn- aði eftir reiknuð laun ef árin 1997- 1998 eru undanskilin. Ástæðan fyr- ir því var fyrst og fremst verðfall á gærum auk þess sem ég var að end- umýja vélakostinn og því fylgdu töluverðar afskriftir. Ég er því ekki ósáttur við afkomuna en það liggur náttúrlega mikil vinna að baki þessu. Það má reyndar taka fram að þær tekjur sem heimilið hér aflar em ekki eingöngu frá rekstrinum sjálf- um heldur einnig frá ýmsum störf- um utan búsins. Auk þess höfum við nokkrar veiðitekjur en Ásbjam- arstaðir eiga land að Þverá. Nú skilst mér að þú hafir verið með fyrstu sauðfjárbœndum til að tileinka þér rúllutœkni. Hvernig kom það til? Fyrsta rúlluvélin var prófuð á Hvanneyri árið 1983 og þá frétti ég fyrst af þessari tækni. Þetta sama ár kaupir Bjami Guðnason á Nesi í Reykholtsdal rúlluvél sem er fyrsta vélin sem ég veit til að kemur í hér- aðið. Ég var á þessum árum að byggja fjárhús og hlöðu og sá ekki fram á að geta komið súgþurrkun- arkerfi í hlöðuna fyrr en næsta sum- ar á eftir, þ.e. 1984. Það varð því úr að ég og nágranni minn, Gísli Sig- 4 - FREYR 4-5/2000

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.