Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.05.2000, Qupperneq 16

Freyr - 01.05.2000, Qupperneq 16
Hrútasýningar haustið 1999 Haustið 1999 voru hrútasýn- ingar um allt land með sama sniði og verið hefur undangengin tvö ár. Sýningamar eru miðaðar við skoðun á vetur- gömlum hrútum, en auk þess eru teknir til dóms eldri ódæmdir hrútar eða hrútar sem eigendur meta að hafi ekki hafa náð að sýna kosti sína veturgamlir. Mikil þátttaka var í sýningunum. Til dóms kom samtals 3041 hrútur en til samanburðar var fjöldi þeirra haustið 1998 3073. Breytingamar í þátttöku á milli ára eru hins vegar feikilega miklar eftir héruðum. Munur á hrútaásetningi í þeim hér- uðum þar sem sæðingarstöðvar starfa aðeins annað hvert ár er orð- inn feikilega mikill á milli ára. Þannig var stórfelld fækkun á sýnd- um hrútum á Norðurlandi, en aukn- ing að sama skapi á Vesturlandi, en í öðmm hémðum þar sem sæðing- arstarfsemin er reglulegri vom litlar sveiflur í sýningaþátttöku. í hópi eldri hrúta, sem settir vom til dóms, vom samtals 209 og hafði fækkað nokkuð eins og eðlilegt er. Þessir hrútar em ekki vænir, eða 93,3 kg að meðaltali, en þá ber að hafa í huga að margt af þessu eru hrútar sem skort hefur á þroska vet- urgamla til að ná að sýna sitt eðli- lega gervi. Af þessum hrútum vom 187 með I. verðlaun, 20 fengu II. verðlaun og tveir voru ekki taldir til nokkurs nýtir. Samtals voru sýndir 2832 vetur- gamlir hrútar eða þremur hrútum fleira en haustið 1998 í þessum aldurshópi. Veturgömlu hrútamir vógu á fæti að meðaltali 80,6 eða rúmu hálfu kg meira en haustið áður. Þessi aukni vænleiki og betra ástand hrútanna er mjög fljótt að birtast í betri flokkun þeirra enda fengu 2470 þeirra eða 87,2% I. verðlaun og er það umtalsvert betri flokkun en haustið áður. Þá vou 336 af þessum hrútum með II. verðlaun og 26 þeirra þóttu ekki hæfir til neinna frekari nota. Þessar niðurstöður sýna að hrútavalið er víðast orðið mjög vandað sem er eðlileg afleiðing þeirrar skipulegu vinnu sem undanfarin haust hefur aukist ár frá ári við lambhrútaval og fjallað er um á öðrum stað í blaðinu. I þeim texta, sem fylgir hér á eft- ir, er gerð grein fyrir umfangi sýn- ingarhaldsins í hverju héraði og fjallað um nokkra athyglisverðustu einstaklingana sem fram komu á hrútasýningunum haustið 1999. 16- FREYR 4-5/2000

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.