Freyr

Volume

Freyr - 01.05.2000, Page 56

Freyr - 01.05.2000, Page 56
Afurðaverð og afkoma Eins og áður sagði hafa allir styrkir til landbúnaðar verið felldir niður og verða bændur því að spjara sig með því eingöngu að selja afurðir á heims- markaðsverði. Verð á afurðum er fijálst og breytilegt milli ára og árstíma. Sláturhús auglýsa verð sem þau bjóða fyrir sláturgripi vikulega og samkeppni er milli sláturaðila um gripi. Kjötið er verðlagt eftir fallþunga og fituþykkt og er hæsta verðið greitt fyrir 15-17 kg skrokka með minna en 8-9 mm fituþykkt á síðu. Verðsveiflur innan ára fara aðal- lega eítir framboði og er verðið allhátt Við Tekapo vatnið á hálendi suðureyjar Nýja Sjálands. Á þessu svœði er mjög strjálbýlt og oft stórar jarðir með þúsundum jjár. Við vatnið er gömul steinkirkja, sem nefnist kirkja góða hirðisins og tengist sögu fjárhirða á þessu svœði í lok síðustu aldar. sláturstærð og frekar reynt að selja lakari lömbin til annarra bænda ef beitina þrýtur. Féð er ullarmeira en íslenskt fé og reyfi af fullorðinni kind yfirleitt 4-5 kg. Töluvert hefur verið lagt upp úr ullarmiklu fé þar sem verulegur hluti tekna sauðfjárbænda hefur verið af ullarsölu. Ull af Rornney kindum og skyldum kynjum er tiltölulega gróf og jöfn að lengd (yfir 30 my, sem er svipað og allra fínasta tog á íslensku fé) og er fyrst og fremst notuð í gólf- teppaband. Ull af Merino fé er hins vegar ákaflega fín (innan við 25 my) og eingöngu notuð í fatnað, bæði vefnað og vélpijón. Skýrsluhald í sauðfjárrækt er ekki almennt meðal bænda sem framleiða kjöt og ull og fé ekki ein- staklingsmerkt. Þó er töluverður hluti bænda sem færir skýrslur og heildarfjöldi fjár á skýrslum er mjög mikill miðað við önnur lönd. Starfandi eru ræktunarbú fyrir hvert fjárkyn, sem selja kynbótahrúta til almennra bænda, og þessi bú færa yfirleitt skýrslur. Nú sem stendur er unnið að endurbótum á skýrslu- haldinu og kynbótauppgjörinu og er áætlað að samræma skýrsluhald og uppgjör fyrir mismunandi fjár- kyn og koma á tölvutengingu við sláturhús til að ná inn skráningu á fallþunga. Þetta kerfi virðist geta orðið mjög öflugt tæki fyrir rækt- unarstarfið. Ær af Romney kyni á tilraunastöð AgResearch í Invermay, sunnarlegá á suðureynni. Myndin er tekin í nýrri fjárragsaðstöðu (sheep yard), sem eru hólfaðar réttir undir þaki, með möguleika á hringrekstri og flokkun í sundurdráttargöngum. í upphafi sláturtíðar (sumarslátrun) en lægra þegar líður á haustið. í mars og apríl 1998 og 1999 voru greiddir u.þ.b. NZ $ 2,50 fyrir kg af bestu skrokkunum - hæsta verð er greitt í desember og getur verið allt að 50% hærra. Á núverandi gengi (ca 40 kr./NZ $) leggur lambið sig þannig á 1500 - 2200 kr. íyrir kjötið. Sláturhús em flest stór og með fleiri en einni vinnslulínu, oft rekur sama fyrirtækið mörg hús víðsvegar um landið. Sláturhúsið sem ég kom í var með þijár línur eða færibönd, fúll afköst vom 12000 fjár á dag og þar tóku frystigeymslumar 350 þúsund skrokka. Vinnulag er mjög svipað því sem er í nýrri sláturhúsum hér á landi. Mikið er lagt upp úr því að ná sem mestu magni í gegnum þessi stóm hús, að einhveiju leyti á kostnað gæðanna á stundum. Lítil sjálfstæð sláturhús em einnig starfandi og sum þeirra hafa vinnslu á kjöti tengda slátruninni og leggja áherslu á sérstaka gæðavöm. Sauðfjárslátmn er í gangi árið um kring þó að mikið dragi úr henni yfir vetrarmánuðina og sumum sláturhúsum er lokað í 3 -4 mánuði á ári. Mjög mikið er lagt upp úr hreinlæti við slátmnina, sem kemur m.a. ffam í því að ekki er tekið á móti óhreinum gripum til slátmnar. Lömb sem em eða hafa verið með skim eða 56- FREYR 4-5/2000

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.