Bændablaðið - 17.04.2007, Blaðsíða 37
Bændablaðið | Þriðjudagur 17. apríl 200737
Heiðruð af
Búnaðarfélagi
Biskupstungna
Á hverju ári veitir Búnaðarfélag
Biskupstungna afrekshorn félags-
ins. Að þessu sinni varð fyrir val-
inu Ásborg Arnþórsdóttir, ferða-
málafulltrúi Uppsveita Árnessýslu.
Ásborg hefur starfað sem ferða-
málafulltrúi frá 1986 fyrir uppsveit-
irnar og hefur ferðaþjónusta undir
hennar leiðsögn og stuðningi vaxið
mjög mikið og dafnað á svæðinu.
Umdæmi Ásborgar er ekki ein-
göngu stórt og fjölbreytilegt, þ.e. 7
þúsund ferkílómetrar eða 6,5% af
Íslandi, heldur er þetta fjölsóttasta
ferðamannasvæði landsins. MHH
Ásborg tók við afrekshorninu úr
hendi Óttars Braga Þráinsson í
Miklholti, sem er formaður Búnað-
arfélags Biskupstungna.
Blái hnötturinn á Sólheimum
Leikfélagið á Sólheimum frumsýnir nú á sumardaginn fyrsta, 19. apríl, leikritið Bláa hnöttinn eftir Andra Snæ
Magnason. Sýnt er á Sólheimum og hefst sýningin kl. 14. Það hefur mikil gleði verið ríkjandi á Sólheimum meðan
á æfingum hefur staðið og þátttakendur orðið fyrir mikilli vakningu af þeim einfalda og áhrifaríka boðskap sem
fram kemur í verkinu, segir í frétt. Leikstjóri er Þórný Jónsdóttir.
Kjúklinga- og kalkúnakjöt frá Sólfugli á Hellu slær í gegn
Hjónin Gísli Stefánsson og Hafdís Dóra Sigurðardóttir á Hellu eiga og reka fyrirtækið Sólfugl á Hellu þar sem
þau vinna til jafns úr kjúklinga- og kalkúnakjöti. Mest vinna þau fyrir veitingahús og stóreldhús á höfuðborg-
arsvæðinu. Starfsemi fyrirtækisins hefur vaxið ár frá ári en þar vinna sex starfsmenn að jafnaði. „Já, þetta gengur
ljómandi vel, við kvörtum allavega ekki. Það er alltaf vitlaust að gera enda mikil eftirspurn eftir vörum frá okkur,
þær hafa greinilega slegið í gegn,“ sagði Gísli í samtali við blaðið. MHH
Gísli Stefánsson, kjötiðnaðarmaður hjá Sólfugli á
Hellu. Hann er líka þekktur fyrir söng sinn á Suð-
urlandi við hinar ýmsu athafnir, er líklega vinsæl-
asti söngvari svæðisins við brúðkaup, jarðarfarir,
afmæli o.fl.