Fréttablaðið - 20.01.2012, Page 32
föstudagur FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 20. JANÚAR 2012
YFIRHEYRSLAN
Helga Guðrún Friðriksdóttir
verkefna- og markaðsstjóri verslun-
arinnar Aurum.
Ertu A- eða B-manneskja? Ég er
náttúrulega þessi gríðarlega eftir-
sóknarverða blanda af A & B, en
ekki hvað!? Heppin.
Hvaða bók ertu að lesa um þess-
ar mundir? Jarðnæði
eftir Oddnýju Eiri
Ævarsdóttur og svo
glugga ég í dýra-
lífsbækurnar hans
Davids Attenbor-
ough og ljóða-
bækurnar hans
Pablo Neruda
reglulega.
Ef ég byggi ekki í Reykjavík, byggi
ég í: Twin Peaks og alveg orðin
gaga, dreymandi dverga og borð-
andi kleinuhringi.
Hver eru nýjustu kaupin? Dásam-
lega falleg myndavélataska úr leðri
utan um Leicuna mína nýju sem ég
elska af öllu hjarta, næstum eins
mikið og fólkið sem gaf mér hana.
Hvað dreymir þig um
að eignast? Fullkom-
ið safn af uppstopp-
uðum fuglum ásamt
safni af sjaldgæfum
orkídeum sem gæf-
ust aldrei upp á mér þótt
ég kynni ekki alveg að sjá
um þær.
Hvaða lag kemur þér í gott skap?
Tónlist er ómissandi og lögin eru
of mörg til að hægt sé að velja á
milli … Loud Pipes með Ratatat
bætir, Fjólublátt ljós við barinn með
Klíkunni hressir og Feel Like Mak-
ing Love með Bad Company kætir.
Svo er She‘s Gone með Steelheart
ódauðleg rokkballaða sem kæmi
hvaða fýlupúka sem er í gott skap.
Einn hlutur sem þú
vissir ekki um mig:
Ég er ekki ég, ég er
þú …
Uppáhaldsdrykk-
urinn: Vodka í sóda-
vatni með lime í fal-
legu glasi með glöðu
fólki á góðri stundu.
Glæný grenningarvara, viðurkennd af
sérfræðingum EFSA*, nú fáanleg á Íslandi
VIÐUR-
KENNT
AF EFSA
Nýtt fylgirit Fréttablaðsins
Auglýsingasími 512 5050