Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.01.2012, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 20.01.2012, Qupperneq 32
föstudagur FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 20. JANÚAR 2012 YFIRHEYRSLAN Helga Guðrún Friðriksdóttir verkefna- og markaðsstjóri verslun- arinnar Aurum. Ertu A- eða B-manneskja? Ég er náttúrulega þessi gríðarlega eftir- sóknarverða blanda af A & B, en ekki hvað!? Heppin. Hvaða bók ertu að lesa um þess- ar mundir? Jarðnæði eftir Oddnýju Eiri Ævarsdóttur og svo glugga ég í dýra- lífsbækurnar hans Davids Attenbor- ough og ljóða- bækurnar hans Pablo Neruda reglulega. Ef ég byggi ekki í Reykjavík, byggi ég í: Twin Peaks og alveg orðin gaga, dreymandi dverga og borð- andi kleinuhringi. Hver eru nýjustu kaupin? Dásam- lega falleg myndavélataska úr leðri utan um Leicuna mína nýju sem ég elska af öllu hjarta, næstum eins mikið og fólkið sem gaf mér hana. Hvað dreymir þig um að eignast? Fullkom- ið safn af uppstopp- uðum fuglum ásamt safni af sjaldgæfum orkídeum sem gæf- ust aldrei upp á mér þótt ég kynni ekki alveg að sjá um þær. Hvaða lag kemur þér í gott skap? Tónlist er ómissandi og lögin eru of mörg til að hægt sé að velja á milli … Loud Pipes með Ratatat bætir, Fjólublátt ljós við barinn með Klíkunni hressir og Feel Like Mak- ing Love með Bad Company kætir. Svo er She‘s Gone með Steelheart ódauðleg rokkballaða sem kæmi hvaða fýlupúka sem er í gott skap. Einn hlutur sem þú vissir ekki um mig: Ég er ekki ég, ég er þú … Uppáhaldsdrykk- urinn: Vodka í sóda- vatni með lime í fal- legu glasi með glöðu fólki á góðri stundu. Glæný grenningarvara, viðurkennd af sérfræðingum EFSA*, nú fáanleg á Íslandi VIÐUR- KENNT AF EFSA Nýtt fylgirit Fréttablaðsins Auglýsingasími 512 5050

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.