Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Side 33

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Side 33
Hugarfarssaga fólginn munurinn á hugmyndasögu í hefðbundinni mynd og því, sem nú er kallað hugarfarssaga: hugmyndasagan fékkst ekki nema við ákveðin merkja- kerfi (leiddi t. d. hjá sér hátíðahöld, seremóníur, mannasiði og slíkt) og takmarkaðist gjarnan við það sem nefnt hefur verið „hámenningarfyrir- bæri“, — hún rannsakaði t. d. þróun og feril hugmynda eins og þær komu fyrir í verkum viðurkenndra heimspekinga og hugsuða og klofaði þá kannske yfir hálft árþúsund, t. d. frá Aristótelesi og Stóuspekingum yfir í nýplatónisma. A hinn bóginn felst það beinlínis í aðferðum hugarfarssög- unnar að hún verður að fjalla um „heim merkjanna“ í heild og því er ekki nein ástæða fyrir hana að greina „hámenningarfyrirbæri“ frá öðrum fyrir- bærum, sem hún fjallar um, eins og Jacques Le Goff vildi þó gera, og ýta þeim á einhvern hátt til hliðar. Vitanlega er ekki hægt að útiloka verk eftir stórsnillinga úr „corpus" grafreitalistaverka — reyndar má búast við að þau hafi haft áhrif á önnur verk og mótað „tísku“. A sama hátt er Hinn gubdómlegi gleðileikur Dantes ómissandi hluti af „corpus" þeirra texta miðaldanna sem fjalla um hreinsunareldinn eða gefa til kynna trú manna á þann sérstaka skemmtistað. Rannsókn hugarfarssögunnar á „heimi merkjanna“ leiðir síðan í tvær áttir: annars vegar til hugmyndanna að baki merkjunum sem þau breiða út eða birta, hins vegar til þeirrar hegðunar — eða þeirra atburða — sem útbreiðsla merkja og áhrif þeirra hafa í för með sér. Þessar hliðar eru nátengdar og mynda í heild hið raunverulega verkefni hugarfarssögunnar. Til að útskýra afstöðu þeirra nægir að nefna eitt dæmi, sem tekið er úr riti Jean-Louis Flandrin frá 1983 um viðhorf kirkjunnar til kynferðismála í byrjun miðalda, Að faðmast hefur sinn tíma (sbr. Prédikarann 3,5). A þessu tímabili hafði kirkjan ákveðnar kenningar um ástalíf manna, sem voru reyndar þannig til orðnar, að ýmis konar bönn, sem trúflokkar og heimspekiskólar fornaldarinnar höfðu fundið upp hver í sínu lagi, voru sameinuð í einn stóradóm, en kirkjan setti þennan boðskap ekki skipulega fram og reyndi ekki beinlínis að réttlæta hann. Þessi afstaða til kynlífs leiddi af sér ákveðin merki, sem þó má ekki rugla saman við kenningarnar sjálfar, því að tilgangur þeirra var ekki sá að skýra þær heldur að hafa áhrif á menn: verður þar fyrst að nefna handbækur fyrir skriftafeður sem segja hve mikla iðrun og yfirbót þurfi fyrir brot á hverju banni, og svo prédikanir og fortölur þessara skriftafeðra, sem hafa að mestu leyti verið „stundleg merki“ og ekki eru heimildir um lengur nema að mjög litlu leyti. Loks hafði þessi boðskapur kirkjunnar að öllum líkindum viss áhrif á hegðun manna, a. m. k. þeirra sem strangtrúaðir voru.4) Fíér hefur það sem er að baki merkjunum verið kallað einu nafni „hugmyndir“, og hefur orðið verið notað í mjög víðri merkingu eins og 431
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.