Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Qupperneq 63

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Qupperneq 63
Takmörkun giftinga eða einstaklingsfrelsi stefnu á Islandi með Þórð Jónasson assessor í broddi fylkingar. Hann hefur hins vegar hlotið þann sess í Islandssögunni að hafa verið „hægfara embætt- ismaður" sem „hafði illan bifur á þróun mála heima og erlendis."11 Þessi dómur Olafs Oddssonar um Þórð er byggður á framgangi hans í norður- reiðarmáli Skagfirðinga. Hér virðist málið komið í hnút, embættismaðurinn var í forsvari frjálslyndis á þingi á sama tíma og hann stýrði her afturhalds- ins gegn þessum sömu hreyfingum utan þings. Eg held að hér verði að leita nærtækari skýringa, ekki síst vegna þess að margir þeirra er studdu framgang málsins á þingi 1859 höfðu hafnað því eindregið tíu árum áður. Við verðum að gera okkur grein fyrir að hjóna- bandið í gamla samfélaginu var hagstjórnartæki — þótt það væri bæði seinvirkt og illavirkt. Meðan notkun getnaðarvarna var ekki almenn, hvort sem það var vegna fáfræði, andstöðu geistlegra yfirvalda, eða hreinlega af því þær voru ekki til, þá var eingöngu hægt að stjórna fólksfjölda með því að stjórna kynlífi, en það átti aðeins að eiga sér stað innan hjónaþands. Giftingin fól í sér leyfi samfélagsins til kynlífs og barneigna og slíkt leyfi varð að vera bundið því að hjónin gætu annast börn sem þau eignuðust. Óg hvernig átti það að gerast án þess að hjónin hefðu öruggan framfærslugrund- völl? Oftast var ætlast til að hjón hefðu jarðnæði til umráða við giftingu og líta má á bannið við öreigagiftingum sem tilraun til að styrkja sambandið á milli jarðaryfirráða og giftinga. Nú var fjöldi jarða á Islandi tiltölulega stöðugur og sveigjanleikinn í landbúnaðinum ekki jafn mikill og í frjósamari og þéttbýlli svæðum Evrópu. Ef yfirráð yfir jarðnæði átti að vera forsenda giftinga, þá var mjög mikilvægt að fjöldi giftinga fylgdi framboðinu á jarðamarkaðnum. A 19. öld fjölgar fólki örar og stöðugar en vitað er um fyrr í sögu þjóðarinnar, nema ef vera kynni við upphaf byggðar. Það er þó frekar fjöldi fólks á giftingaraldri en heildarfjöldi landsmanna sem skiptir máli í þessu sambandi. Ef við tökum aldurshópinn frá 25—34 ára út úr, en á þeim aldri gengu flestir í hjónaband í fyrsta sinn, þá sést að í honum verður sprenging einmitt á áratugnum frá 1850—1860. Arið 1850 voru Islendingar á þessum aldri tæp 8.000 en 10 árum síðar voru þeir komnir yfir 11.500, sem gerir fjölgun um hvorki meira né minna en 45% á 10 árum. A sama tíma varð aðeins 13% heildarfjölgun Islendinga, en fjöldi manna í aldurshópnum varð reyndar aldrei meiri í manntölum 19. aldar.12 Ef við göngum út frá því að allir hafi viljað komast í hjónaband og komast yfir jarðarskika, þá hlýtur þetta að hafa skapað gífurlega eftirspurn eftir jarðnæði. Afleiðingin varð sú að jarðir voru bútaðar niður og margir gengu í hjónaband sem litla möguleika höfðu á að sjá fjölskyldu sinni farborða.13 Bann við öreigagifting- um var tilraun til að koma í veg fyrir stofnun slíkra sambanda. Þegar erfiðara varð að ná sér í jarðnæði fækkaði giftingum sjálfkrafa og þar með 461
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.