Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Page 104

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Page 104
Tímarit Máls og menningar „Þetta eru eins og maurar sem koma allt í einu út í sólskinið og bera hver um sig hvítt egg í munninum," sagði ég við Winní. „Eða eins og sýklar,“ sagði Winní, eins og hvítar veirur í stórri slagæð. Blóðkornin ráðast á þær og gleypa þær, en þau geta ekki gleypt þær eins hratt og þær tímgast.“ Eg starði á hana því slíkur talsmáti var henni framandi. Hún tók snúð af fatinu og dýfði honum í svart kaffið — grönn, sólbrún höndin skalf dálítið. Augun í henni voru stór og gljáandi og þegar hún talaði komu setningarnar í gusum. Hún var ólík sjálfri sér. Og innra með mér fann ég líka sjálfur þessa spennu. Við hringsóluðum um göturnar allan morguninn og sáum hvernig blóðkornin börðust við hvítu veirurnar. Þau gleyptu þær og meltu, og síðan lágu þær allsstaðar á götunum eins og hvítur saur. En veirunum fjölgaði jafnt og þétt. I öllum götum sáum við gangandi dagblöð. Við sátum undir sóltjöldum hér og hvar og sáum þetta. „En það er engin ástæða til að taka mark á þessu,“ sagði ég, „því fyrirsagnirnar væru þá stærri. Fólk myndi safnast saman og láta heyra í sér. Mundu að þetta eru Frakkar.“ „Já, bara að maður heyrði þá hrópa,“ sagði Winní. „Þeir segja ekki orð. Þú heyrir þó að þeir segja ekki eitt einasta orð.“ Þetta var satt, ég tók líka eftir því. Það heyrðist ekkert nema stöðugur umferðargnýrinn. Menn hvorki brostu, kölluðu né skömm- uðust. Meira að segja á gangstéttarkaffihúsunum þagði fólkið í kringum okkur, það sat bara og las blöðin. En þegar við komum heim í götuna okkar gleymdum við þessu alveg, því þar var allt eins og vanalega. Fjölskyldan á móti mataðist við opinn gluggann og holduga stúlkan var farin að bíða eftir ástmanninum. Hann kom í seinna lagi og stóð ekki við nema stutt. Rúllugardínan var ekki dregin fyrir gluggann. Að öðru leyti var allt eins og vanalega. Daginn eftir barðist slagæðin enn við hvítu veirurnar. En nú var farið að bóla á alveg nýju smiti: Einkennisbúningum. Bæði brúnum og bláum einkennisbúningum. Það sáust ekki margir óbreyttir her- menn, aðeins liðsforingjar. Allt í einu voru þeir komnir, eins og svar við einhverju tilteknu merki. Þeir hurfu inn í undirganga og komu þaðan út aftur, með skjalatöskur, svipurinn ábúðarmikill og óræður undir eikarlaufinu. Menn horfðu á þá og viku úr vegi fyrir þeim. 502
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.