Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Page 115

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Page 115
Haukur, Vésteinn Lúðvíksson, Böðvar Guðmundsson og Pétur Gunnarsson, svo að nokkrir séu nefndir, skrifuðu á víxl smásögur og skáldsögur, leikrit, söngva og ljóð. Rithöfundar unnu með leikhússfólki, tónlistarmönnum, börn- um (og gamalmennum) og notuðu form allra þeirra fjölmiðla sem ekki var lokað fyrir þeim í ofboði svo að samfélagið gæti verið í friði fyrir hugmyndum nú- tímans. Eg var uppi á „nýraunsæistímabilinu" og mér fannst alltaf að áttundi áratugur- inn væri bókmenntalega tætingslegur; stundum kúgandi, stundum frelsandi, oftast eitthvað allt annað en heildstæður. Eg veit vel að það er nauðsynlegt að einfalda þegar maður er að reyna að gera sér grein fyrir straumum og stefnum í bókmenntasögunni. En á einhverju verða menn að byggja einfaldanirnar! Þrír „nýraunsæishöfundar" áttu þær bækur sem að mínu mati ristu dýpst í jólabókaflóðinu í fyrra. Það voru Guð- laugur Arason með hina póstmódern- ísku Sólu, Sólu sína, Vésteinn Lúðvíks- son með zen-búddistann Oktavíu, sem gerir samborgara sína svo ráðvillta — og svo Pétur Gunnarsson með bókina sem hér verður talað um, Söguna alla (Punktar, 1985). Litla sagan og stóra Sagan Fyrsta bók Péturs Gunnarssonar um Andra Haraldsson: Punktur, punktur, komma, strik (1976) var tilraun til að lýsa sambúð Andra litla og heimsins, litlu persónusögunni í stóru mannkyns- sögunni, míkrokosmos í makrokosmos. I annarri bókinni um unglinginn Andra er stóra sagan horfin, Andri er svo upptekinn af sjálfum sér (eins og allir unglingar) að einkaheimur hans er heimurinn allur, allt sem hefur einhverja Umsagnir um btekur merkingu rúmast í fjórum föllum eins einasta orðs: Eg um mig frá mér til mín (1978). I þriðju bókinni er Andri kominn í menntaskóla og umheimurinn verður aftur til fyrir honum en ekki sem sam- tímasaga, pólitík eða efnahagsmál — sá heimur sem lýkst upp fyrir Andra er bókmenntaheimur, liðnir tímar í túlkun og tilbúningi ýmissa höfunda, oftast Hemingway og Halldórs Laxness. Þessi bókmenntaheimur er aðgengilegri fyrir Andra en sá sem hann býr í. Hann vill gera þennan heim að sínum, hann veit bara ekki alltaf hvaða persóna hann á að vera, hlutverkaskráin er opin eins og segir í titli bókarinnar: Persónur og leikendur (1982) Oftast velur Andri hlutverk Halldórs Laxness, ekkert jafnast á við Halldór. Eftir að Andri er búinn með stúdents- próf ætlar hann til Parísar til að verða rithöfundur eins og Halldór og Heming- way. Hann segir Bylgju, ástinni sinni, frá fyrirætlunum sínum og flytur henni bókmenntastefnuskrá sína á Þing- völlum. Hún dregur eftirfarandi álykt- un: „Þú ætlar sumsé að smíða veröld sem virkar, innan í veröld sem virkar ekki ...“(Persónur og leikendur, s.103). Bókinni lýkur á því að Andri er kom- inn til Parísar; það er maí 68, hann er staddur í „vitlausri atburðarás“, fólk hleypur eftir götunum, leðurklæddir menn reka flóttann. Andri fær stóru Söguna í hausinn, í orðsins fyllstu merk- ingu, kylfa er reidd til höggs og svo verður allt svart. I bráð og lengd — eins og við sjáum seinna. Fjórða bókin Sagan öll lýkur sögu Andra og hefur sögu Guðmundar Andra. Bókina má lesa sem framhald á hinum þremur eða sem sjálfstæða skáld- sögu, sambandið á milli hennar og fyrri TMM VIII 513
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.