Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1993, Síða 20

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1993, Síða 20
listir eru Okkur (hér Rússum) eitthvað ann- að og meira en Ykkur. En aðrir taka í svip- aða strengi, séu þeir ekki vissir um að bókmenntirnar bjargi öllu mannkyni, þá skulu þær samt bjarga þeirra eigin þjóð. Þetta hér er haft eftir George Gordon (og er þá komið nokkuð á okkar öld), en hann var bókmenntaprófessor í Oxford: England er sjúkt og — enskar bókmenntir verða að bjarga því. Kirkjurnar hafa (að mínu mati) brugðist, og félagslegar umbæt- ur hafa gengið hægt. Enskar bókmenntir hafa nú þrennskonar hlutverki að gegna: þær munu enn veita oss ánægju og fræðslu, en umfram allt: bjarga sálum vorum og lækna Ríkið.13 Við getum farið um allan heim og fundið ótal staðfestingar á þessu viðhorfi. Bók- menntir eru heilagar — að mati skáldanna sjálfra — til þeirra sækjum við skilning og skynjun á samhenginu í tilverunni, þær kenna kærleika, mannskilning, umburðar- lyndi, sjálfskilning — bæði einstaklinga og þjóða. Það er rökrétt framhald af þessu að Halldór Laxness lætur Jón Prímus segja í Kristnihaldi undirJökli: ,,Sá sem ekki liftr í skáldskap liftr ekki af hér á jörðinni“.14 Við íslendingar lítum kannski ekki endilega svo á (líkt því sem Rússinn Vengerov gerði) að okkar skáldskapur sé göfugri en annarra þjóða. Hinsvegar höfum við sérstaklega sterka tilhneigingu til að líta á þá staðreynd, að við iðkum skáldskap og tökum hann til okkar, sem veigamikinn hluta af réttlætingu okkar tilveru sem þjóðar. Skáldskapurinn og bóklestur eru í ótal ræðum og ritum gerðar að okkar helgasta sérkenni, án þessa hættum við að vera það sem við erum. í þjóðhátíðarræðu sinni 1974 sagði Halldór Laxness einmitt á þá leið, að ,,þann dag sem við (íslendingar) hættum að yrkja fyrir fullt og fast, þá megi bréfa að hér sé uppvöknuð önnur þjóð en var".1^ Sem fyrr segir: trúin á bókmenntimar sem hér var lýst, hún hefur lifað margar sviptingar. Til að minna á það að hún er hreint ekki útafdauð vitna ég í ræðu sem Thor Vilhjálmsson flutti við afhendingu Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs ár- ið 1987. En þar lofar hann listgrein sína fyrir að hún færir okkur æðstu og helgustu blekkinguna um það sem var og stuðlar að því að espa þá logandi vitund sem helgar tilveruna og færir ljós inn í tóm eilífðarinnar. Thor veit hinsvegar betur en fyrri tíma menn af tvíræðni listar, hún stundar, segir hann, bæði ,,uppbyggingu og niðurrif‘, en hún er til þess ,,að við getum kjörið okkur þær minningar sem hjálpa okkur að vera til, bæði með því að játa í trausti og trú og ógna með efanum hugmyndum sem við höfum aflað okkur“.16 Eins og hver önnur iðja? Oh, lasst mich nicht ersticken hier in dieser engen Kramerwelt Heinrich Heine En þótt trúin á heilögu erindi bókmennt- anna lift, þá eru mörg merki þess að hún eigi í vök að verjast. Ekki barasta vegna þess að allt frá dögum háfleygrar rómantíkur hafa skáldin mitt í sinni sjálfshafningu haft þörf fyrir írónískt niðurrif á skáldadraumnum mikla: Ich stehe auf dem Berges Spitze und werde sentimental 18 TMM 1993:2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.